Fréttablaðið - 04.12.2004, Side 40
Notaðir bílar
Notaðir bílar eru sannarlega í uppsveiflu. Fyrstu tíu mánuði ársins var flutt-
ur inn 1.621 notaður fólksbíll. Það eru um sextán prósent af innflutningi
nýrra bíla. Allt árið í fyrra voru hins vegar fluttir inn 1.309 notaðir bílar.[ ]
ALLT Á EINUM STAÐ
• HEILSÁRSDEKK
• OLÍS SMURSTÖÐ
• BÓN OG ÞVOTTUR
• HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• NAGLADEKK
• RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• BREMSUKLOSSAR
• PÚSTÞJÓNUSTA
SBD, SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
B O S S A V E R M I R
Er kalt í bílnum?
Sætisáklæði í bílinn með hita
Aðeins 4.900 kr
Klettháls 9 • s: 587 5547 • www.ag-car.is/motorsport
Fæst einnig hjá
Bónstöðinni,
Njarðarnesi 1,
Akureyri
Rúmgóður skutbíll
fyrir útilegugræjurnar
Guðrún Árný er bíllaus í augnablikinu en stefnir að því að kaupa sér rúmgóðan skutbíl eftir áramót.
Guðrún Árný Karlsdóttir söng-
kona á sér draumabíl sem er stór
og rúmgóður ferðabíll, en hún
hefur ekki sérstaka tegund í
huga. „Ég þarf einmitt að fá mér
bíl eftir áramót, en ég hef ekki
haft tíma undanfarið til að skoða
bíla. Volvo kæmi alveg til greina,
hann er bæði flottur og öruggur,
en ég tek enga ákvörðum fyrr en
ég er búin að skoða markaðinn.“
Guðrún segist myndu leggja
mikið upp úr að hafa gott pláss
fyrir farangur því útilegur eru
hennar ær og kýr. „Ég fer með
fullan bíl af útilegubúnaði, hús-
tjald með góðu fortjaldi, dýnur,
sængur og allan pakkann. Ég er
svona 45 mínútur að koma mér
fyrir á tjaldstað,“ segir hún hlæj-
andi. „Þetta er auðvitað fyrirhöfn
en ánægjan er öllu öðru yfirsterk-
ari.“
Guðrún hefur staðið í flutning-
um og nú getur hún ekki beðið
eftir að koma sér vel fyrir í nýju
íbúðinni og skreyta í hólf og gólf.
„Ég ætla að setja upp fullt af
seríum og jólatréð í ár verður
risa,“ segir hún og hlær. „Ég hef
búið undir súð í mörg ár en nú er
ég komin með mikla lofthæð svo
tréð mun ná frá gólfi og upp úr.“
Guðrún Árný er söngkona með
Dívunum en þær voru einmitt að
gefa út jóladisk. „Þetta er „live“-
plata, með jólatónleikunum sem
við héldum í fyrra, og heitir
Frostrósir. Við erum voðalega
stoltar af þessum diski, sem kem-
ur alveg frá hjartanu.“
edda@frettabladid.is
Guðrún Árný Karlsdóttir vill aka um á góðum bíl en hann verður
líka að vera flottur. Hún vill hafa gott pláss fyrir farangur.
Hekla kynnir í dag og á morgun
nýjan bíl frá Audi, fimm dyra
Audi Sportback. Framendinn á
Audi Sportback er mjög áber-
andi og heilsteypt kæligrindin er
einkenni sem margir þekkja af
hinum 12 strokka Audi A8 og
nýja Audi A6 bílnum.
„Sportback hefur bestu eigin-
leika snaggaralegra sportbíla,
fjölhæfni fimm dyra fólksbíla og
háþróaðan tæknibúnað auk þess
sem hann er einstaklega ná-
kvæmur og sprækur í akstri.
Hægt er að velja á milli fjögurra
bensín- og dísilvéla sem skila allt
að 200 hestöflum, framhjóladrifs
eða quattro-sídrifs á öllum hjól-
um. Bæði vél, drifbúnaður og
undirvagn standa undir þeim
væntingum sem sportlegt útlit
þessa fimm dyra bíls skapar og
hann býður einstaka akstursá-
nægju í alveg nýjum búningi,“
segir í fréttatilkynningu frá
Heklu. ■
Desembertilboð
hjá B&L
Frí ábyrgðar- og kaskótrygging
Frí ábyrgðar- og kaskótrygging og eng-
ar afborganir fyrr en 1. apríl á næsta
ári er inntakið í sérstöku tilboði sem
B&L eru með í desember undir yfir-
skriftinni „magnað desembertilboð“.
Tilboðið nær til þriggja bíla úr Megane-
línunni frá Renault; fimm dyra Mega-
ne, fjögurra dyra Megane Saloon og
fjölnotabílnum Megane Scenic.
Að sögn Heiðars J. Sveinssonar, for-
stöðumanns sölusviðs, sýnir reynsla
undanfarinna ára að áhugi á bílakaup-
um er að aukast í desember. „Við finn-
um þó enn að einhverju leyti fyrir
þessum hefðbundna samdrætti í að-
ventunni, sem er afar skiljanlegur. Við
erum jú flest með athyglina við jólin.
Með þessu tilboði erum við því að
reyna að koma til móts við árstíða-
sveifluna, vonandi með áhugaverðum
hætti. Við erum jafnframt með smá
leik fyrir þá sem koma og reynsluaka
einhverjum af þessum þremur bílum.
Nöfn þeirra fara sjálfkrafa í pott og
munu nokkrir heppnir vinna kr. 10.000
úttekt í Smáralindinni fyrir jólin.“
Renault Megane
Audi Sportback
Frumkynning hjá Heklu.