Fréttablaðið - 04.12.2004, Page 80
Óbirt skáldsaga eftir Capote
Fyrsta skáldsaga Truman Capote, sem aldrei komst á
prent, er komin í leitirnar. Menn höfðu staðið í þeirri
trú að hún væri að eilífu glötuð en hún fannst í kassa
sem var í geymslu hjá ráðskonu höfundarins.
Skáldsagan nefnist Summer Crossing og var skrifuð
árið 1944 þegar Capote var tvítugur. Handritið verður
boðið upp hjá Sothebys í New York. Aðalpersóna
skáldsögunnar er 17 ára gömul stúlka en sagan gerist
á einu sumri í New York.
BÓKASKÁPURINN
52 4. desember 2004 LAUGARDAGUR
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
EYMUNDSSON
MÁL OG MENNING
PENNINN
[ METSÖLULISTI ]
Samkvæmisleikir er ný skáld-saga Braga Ólafssonar. Tilstóð að hún kæmi út í fyrra
en Bragi ákvað að fresta henni
um ár. Það virðist hafa verið vit-
urleg ákvörðun því bókin hefur
fengið einkar góða dóma. „Mér
fannst að ég gæti unnið hana bet-
ur og í því ferli bættust við alls
kyns þræðir og hugmyndir, sagan
lengdist um einhver fimmtíu pró-
sent en styttist svo aftur um tutt-
ugu af þeim fimmtíu. Og varð
auðvitað um leið þrjátíu prósent-
um betri,“ segir Bragi. Þegar
hann er spurður hvort honum
þyki of mikið um það að menn séu
að senda sér bækur sem ekki eru
tilbúnar segir hann: „Höfundar
lenda oft í tímahraki vegna þess
að hér eru skáldsögur einungis
gefnar út fyrir jólin, og til að höf-
undurinn geti haldið sín jól verð-
ur bókin hans að koma út. En slík
pressa verður held ég oft til þess
að bókin eyðileggur jólin fyrir
höfundinum.“
Afmarkað sögusvið
Þessi nýja bók er tíðindameiri en
fyrri skáldsögur Braga. „Í þessari
bók gerast ef til vill stærri atburð-
ir en samt er margt í bókinni sem
kallast á við Hvíldardaga og
Gæludýrin. Vinur minn sagði að
sumt í þessari bók minnti hann á
fyrstu ljóðabók mína,“ segir
Bragi. „Í dómi um leikrit mitt,
Belgísku Kóngó, var sagt að ég
væri skáld tíðindaleysisins. Ég get
ekki með nokkru móti fallist á það.
Í smásögum og skáldsögum mín-
um eru nýir atburðir á nánast
hverri einustu síðu, ýmist á yfir-
borði sögunnar eða í höfði persóna
eða höfundar. En ef tíðindaleysi
merkir að ég sé ekki að skrifa ein-
hverjar örlagaþrungnar fjöl-
skyldusögur eða að taka fyrir ein-
hver mein sem eru í tísku í það og
það skiptið, þá á þetta með tíðinda-
leysið í bókum mínum örugglega
við rök að styðjast. En yfirleitt
nota ég þröngt og afmarkað sögu-
svið, án þess að ég ákveði það
alltaf fyrirfram. Og ég býst við að
skáldskapur minn leiti mestan
part inn á við, í alls kyns skilningi.
Ég hef engan áhuga á að skrifa um
það sem gerist í fjölmiðlum, þó að
ég notfæri mér ýmislegt úr þeim.
Krafan um að skáldsagan eigi að
hafa skýrt samfélagslegt erindi er
algerlega blind krafa, sérstaklega
á okkar tímum. Ég held að vel
skrifað og frumlegt skáldverk
hafi það eina hlutverk að þjóna
sjálfu sér. Og því dularfyllra og
óræðara sem það er, því betra.“
Fær sterk viðbrögð
Bragi segir að kveikjan að Sam-
kvæmisleikjum hafi verið ókunn-
ugt skópar sem hann sá fyrir utan
dyrnar hjá foreldrum sínum.
Þetta skópar kemur síðan fyrir í
fyrstu setningu bókarinnar. „Síð-
an byrjaði sagan að rúlla og bæta
á sig og hefur verið að tútna út og
taka á sig mynd þessi tvö ár sem
ég hef verið að vinna í henni.“
Persónur bókarinnar eru stöðugt
að koma lesandanum á óvart. „Ég
vil ekki að lesendur geti gengið
að þeim sem vísum og ég reyni að
sýna þær frá sem flestum hlið-
um,“ segir Bragi. „Þó að maður
þykist sjálfur þekkja fólk sem
maður umgengst veit maður
aldrei hvar maður hefur það. Ég
tala nú ekki um skáldsagnaper-
sónur, þær geta orðið stórhættu-
legar höfundi sínum og geta líka
haft voðaleg áhrif á þann sem
slysast til að lesa um þær.“
Bragi segir að sá tími þegar
beðið er eftir viðbrögðum við
bók sé oft erfiður. „Þegar maður
hefur sent handrit í prent og bíð-
ur eftir að það verði að bók kem-
ur að því að lifa með því sem
maður hefur skrifað. Og þá fer
maður að kynnast persónum
verksins almennilega, og ekki
síður eftir að lesandinn, bæði
hinn raunverulegi lesandi og
hinn ímyndaði, hefur blásið í þær
lífi. Nema auðvitað að bókin detti
niður dauð og kalli ekki á nein
viðbrögð. En ég hef yfirleitt
fengið sterk viðbrögð við því
sem ég hef gefið út, og við þess-
ari nýju bók hafa þau verið meiri
en áður.“
kolla@frettabladid.is
Hailey látinn
Rithöfundurinn Arthur Hailey lést í svefni í síðustu viku, 84
ára gamall. Hann skrifaði ellefu skáldsögur, þær vinsælustu
eru Airport og Hotel. Bækur hans hafa komið út í fjörtíu
löndum og selst í rúmlega hundrað og sjötíu milljónum
eintaka. Gagnrýnendur báru lof á rannsóknarvinnu höfund-
arins en kvörtuðu stundum undan því að bækurnar væru
klisjukenndar. Almennir lesendur voru óþreytandi við að
senda Hailey aðdáendabréf og ekkja hans segir þau hafa
glatt höfundinn mjög. Hailey bjó á Bahamaeyjum og hafði
lagt svo fyrir að eftir dauða sinn héldi fjölskyldan mikla há-
tíð. Það boð verður haldið í janúar.
Á þessum degi árið1916 sigldi Somerset Maugham til Pago Pago. Persónur sem
hann hitti í ferðinni, þar á meðal gleðikona og trúboði, urðu innblástur að einni
frægustu smásögu hans Miss Thompson sem seinna varð að leikritinu Regn. Meðal
frægustu skáldsagna Maugham eru Of Human Bondage og The Moon and Six-
pence, um listamann sem er greinilega byggður á persónu málarans Paul Gauguin.
Maugham varð háaldraður og lést 91 árs gamall.
Ekkert orð er skrípi, ef það stendur á
réttum stað.
Halldór Laxness
BRAGI ÓLAFSSON „Krafan um að skáldsagan eigi að hafa skýrt samfélagslegt erindi er algerlega blind krafa, sérstaklega á okkar tímum. Ég
held að vel skrifað og frumlegt skáldverk hafi það eina hlutverk að þjóna sjálfu sér. Og því dularfyllra og óræðara sem það er, því betra.“
NÝ SKÁLDSAGA BRAGA ÓLAFSSONAR, SAMKVÆMISLEIKIR, HEFUR VAKIÐ MIKLA ATHYGLI
B Í Ó M I Ð I Á
S E E D O F
N Ú Í B Í Ó
Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
Vinningar:
Miðar á Seed of Chucky
DVD myndir
Margt fleira.
Sendu SMS skeytið
JA SCF
á númerið 1900
og þú gætir unnið.
9 . h v e r v i n n u r
Fjárhættuspilarinn eftir FjodorDostojevskí í þýðingu Ingibjarg-
ar Haraldsdóttur. Dostojevskí skrif-
aði þessa bók á 26 dögum árið 1866
og hún er svo sannarlega engin
hrákasmíði. Meistaraleg saga um
spilafíkn - að hluta sjálfsævisöguleg
því Dostojevskí var árum saman
þræll þessarar fíknar.
NÝJAR BÆKUR
AÐALLISTINN - ALLAR BÆKUR
KLEIFARVATN
Arnaldur Indriðason
ARABÍUKONUR
Jóhanna Kristjónsdóttir
BARÓNINN
Þórarinn Eldjárn
HEIMSMETABÓK GUINNES
Vaka Helgafell
EYJÓLFUR SUNDKAPPI
Jón Birgir Pétursson
SAKLEYSINGJARNIR
Ólafur Jóhann Ólafsson
DAUÐANS ÓVISSI TÍMI
Þráinn Bertelsson
HALLDÓR LAXNESS - ÆVISAGA
Halldór Guðmundsson
DA VINCI LYKILLINN
Dan Brown
KARÍTAS ÁN TITILS
Kristín Marja Baldursdóttir
SKÁLDVERK - INNBUNDNAR BÆKUR
KLEIFARVATN
Arnaldur Indriðason
BARÓNINN
Þórarinn Eldjárn
SAKLEYSINGJARNIR
Ólafur Jóhann Ólafsson
DAUÐANS ÓVISSI TÍMI
Þráinn Bertelsson
KARÍTAS ÁN TITILS
Kristín Marja Baldursdóttir
ENGLAR OG DJÖFLAR
Dan Brown
BELLADONNA SKJALIÐ
Ian Caldwell
SAMKVÆMISLEIKIR
Bragi Ólafsson
BÍTLAÁVARPIÐ
Einar Már Guðmundsson
BÁTUR MEÐ SEGLI OG ALLT
Gerður Kristný
LISTINN ER GERÐUR ÚT FRÁ SÖLU DAGANA
24.11.- 30.11. 2004 Í
BÓKABÚÐUM MÁLS OG MENNINGAR,
EYMUNDSSON OG PENNANUM
Skáldskapur sem leitar inn á við