Fréttablaðið - 04.12.2004, Page 90

Fréttablaðið - 04.12.2004, Page 90
Það skiptir litlu máli hvortykkur líkar vel eða illa viðEminem, það er ekki hægt að horfa framhjá þeirri staðreynd að hann er einn stærsti og merkilegasti tónlistarmaður okkar tíma, ef ekki sá stærsti. Hann er duglegur að minna okkur á að leið hans upp á topp var ekki sársaukalaus, en þangað hefði hann auðvitað ekki komist ef hann hefði ekki stórkostlega hæfileika sem textasmiður og rappari. Frá því að hann kom okkur fyrst fyrir sjónir hefur hann verið harkalega gagnrýndur, enda geta textar hans verið grófir, ofbeldisfullir og nær alltaf kaldhæðnislegir. Með orðum sínum hefur Eminem fengið ýmsa upp á móti sér; samtök samkynhneigðra, Hvíta húsið, rapptímaritið The Source og samtök foreldra sem eru með ritskoðun, til þess að nefna nokkra. Einnig hafa ófáir popparar fengið einn á lúðurinn. Hann hefur tvisvar sinnum verið kærður fyrir meiðyrði, af fyrrum skólafélaga og sinni eigin móður, og nú eru líkur á því að Michael Jackson bætist í þann hóp. Það sem hefur svo gefið textunum aukið gildi er að hann fjallar oft opinskátt um líf sitt í þeim. Þannig hefur dóttir hans Hailie Jade komið ítrekað við sögu á plötum hans og hann hefur kálað barnsmóður sinni, Kim, tvisvar á 5 ára útgáfuferli. Í gegnum tíðina hefur hann svo gert upp stormasamt samband sitt við móður sína í gegnum texta sína. Á sama tíma og Eminem hefur verið að kljást við innri djöfla í gegnum texta sína hafa pólitísk öfl í Bandaríkjunum reynt hvað þau geta til þess að þagga niður í honum. Vegna þess hversu ósmeykur Eminem er við að nota munninn á sér er hann orðinn að einni helstu þolraun á málfrelsi í Bandaríkjunum. Hann er einnig orðinn pólitískt afl sem nær betur til ungviðisins í Bandaríkjunum en ráðamenn í Hvíta húsinu þora að viðurkenna. Hann fylgist greinilega vel með því sem skrifað er. Í textum sínum hefur hann fjallað um flest þau hitamál sem honum hafa tengst, svo sem rasisma, hommafóbíu og áhrif ofbeldisfullra texta hans á aðdáendur. Nú síðast gerði hann myndband við lagið Mosh, þar sem hann lýsti yfir andstöðu sinni við stjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta og utanríkis- stefnu hans. Síðasta breiðskífa Eminems, The Eminem Show, seldist í um 12 milljónum eintaka þegar hún kom út fyrir tveimur árum síðan. Búist er við því að nýja platan hans, Encore, seljist í allt að 9 milljónum eintaka. Þrátt fyrir þessar gífurlegu vinsældir hefur hann ekki selt sig í auglýsingar, eins og svo margar stórstjörnur í Bandaríkjunum, og hefur þannig náð að viðhalda trúverðugleika sínum í hiphop- geiranum og samkvæmt pressunni. Þið sjáið Eminem ekki auglýsa gosdrykki, og þið heyrið ekki lög hans í bíómyndum eða sjónvarpsþáttum þar sem þau eiga ekki heima. Hann hefur líka haldið sér tryggum hiphop-rótum sínum með því að leggja metnað í það að koma öðrum á framfæri. Það eru þó margir sem vilja sjá Eminem renna á rassgatið, á því liggur enginn vafi, en er hann jafn hættulegur og foreldrar og pólitíkusar óttast? Árin á botninum Eminem heitir réttu nafni Marshall Mathers og er fæddur í smábænum St. Joseph, sem er rétt fyrir utan Kansas-borg, árið 1972. Það er óhætt að fullyrða að æska hans hafi verið erfið, því hann var á stöðugum faraldsfæti á milli Detroit og St. Joseph fram að táningsaldri. Hann laðaðist snemma að hiphop-tónlist og byrjaði að rappa 14 ára gamall í kjallaranum hjá vini sínum. Upphaflega valdi Marshall sér listamannanafnið M&M, sem eru upphafsstafir hans, og það varð fljótlega að Eminem. Hann átti erfitt með að koma sér á framfæri í senunni í Detroit til þess að byrja með vegna þess að fáir voru reiðubúnir til þess að gefa hvítum rappara séns. Hann hoppaði beint í djúpu laugina og vann sér gott orð með því að battla við viðurkennda rappara á klúbbum. Fljótlega voru aðrir byrjaðir að skora á hann, í von um að auka orðspor sitt. Það var á þessu tímabili sem Eminem kynntist rapparanum Proof sem bauð honum að verða hluti af krúinu Dirty Dozen, eða D- 12 eins og við þekkjum það í dag. Áður en Eminem komst í feitt hafði hann oft hugleitt hvort hann gæti haldið áfram að rappa. Fyrsta hléið tók hann eftir að frændi hans framdi sjálfsmorð, svo lagði hann míkrófóninn tímabundið á hilluna þegar hann og kærasta hans Kim eignuðust Hailie Jade árið 1995. Eminem var frekar bitur út í lífið og þótti duglegur við að drekkja sorgum sínum í flöskunni eða í fíkniefnum. Kim sagði honum upp og bannaði honum að hitta dóttur þeirra í langan tíma. Hann neyddist því til þess að flytja aftur til mömmu sinnar, en hún var veikur alkóhólisti og fíkill, og hann hefur alla tíð átt stormasamt samband við hana. Hann gaf árið 1996 út plötuna Infinite sem gagnrýnendum þótti ekki mjög merkileg. Aðallega var hann gagnrýndur fyrir að stæla rappstíl Nas og AZ. Á svipuðum tíma var mamma hans sökuð um að beita yngri bróður Eminem andlegu og líkamlegu ofbeldi. Í dag lýsir Eminem þessum upptökum sem demóum sem óvart voru pressuð á vínyl. Þarna skrapaði Emineim sinn andlega botn, og eina leiðin var upp á við. Fæðing Slim Shady Eftir vonbrigði fyrstu útgáfunnar, og eina mislukkaða sjálfsmorðs- tilraun, ákvað Eminem að hann hefði engu að tapa. Innra með sér bjó hann til persónuna Slim Shady sem sagði nákvæmlega það sem honum datt í hug, án þess að Marshall næði að ritskoða hann af ótta við textainnihaldið. Eminem ákvað að tappa af persónulegum vandræðum sínum í gegnum kaldhæðna texta. Niðurstaðan varð sú að Slim Shady var mun illkvittnari og beittari textasmíður en Marshall hafði þorað að vera sem Eminem. Það var á þessum tíma sem lagið Just Don't Give a Fuck varð til. Eminem gerði nokkur lög sem Slim Shady og gaf út á þröngskífunni Slim Shady EP árið 1997. Sú plata opnaði margar dyr fyrir hann. Hennar vegna komst hann í stóra rímnaflæðikeppni í Los Angeles þar sem hann lenti í öðru sæti. Í kjölfarið var honum boðið að koma fram í þættinum Wake Up Show sem þátta- stjórnendurnir Sway og Tech stjórnuðu og þar heyrði Dr. Dre í honum fyrst. Eminem fékk tækifæri til þess að spinna og ákvað að vera eins grófur og hann gæti í von um að fanga athygli. Dre þótti rímurnar svo beittar og kaldhæðnislegar að hann leitaði Eminem uppi. Varð svo steinhissa þegar hann sá að pilturinn var hvítur. Í dag segir Eminem að þessi ferð til Los Angeles hafi verið upp á líf og dauða fyrir sig. Hann viðurkennir að leggja sig fram við að segja hluti sem hann vonist til að muni ganga fram af fólki, þó að hann sé ekki að reyna að breyta heiminum eins og Tupac Shakur. Önnur saga segir svo frá því að Dr. Dre hafi þegar þekkt til Eminem, en ekki vitað hver hann væri. Hann á að hafa fundið spólu á gólfi hljóðvers síns og líkað vel við, en látið hana renna framhjá sér þar sem spólan var ekki merkt með neinu símanúmeri eða heimilisfangi. Dr. Dre (réttu nafni Andre 62 4. desember 2004 LAUGARDAGUR Hann hefur tvisvar sinnum verið kærður fyrir meiðyrði, af fyrrum skólafélaga og sinni eigin móður, og nú eru líkur á því að Michael Jackson bætist í þann hóp. ,, Kr. 12.500,- Birkigrund 31 • 200 Kópavogur Sími: 661-4153 • Opið: 10-22 Nýtt – Carbon Fiber bogar Fiðlur – Selló - Kontrabassar Þverflautur – Trompet - Klarinet Hljómar og List Gæða hljóðfæri á lágmarksverði Rapparinn Eminem gaf nýverið út fjórðu breiðskífu sína, Encore. Hann er löngu orðinn einn stærsti listamaður okkar tíma. Birgir Örn Steinarsson fer yfir feril og einkalíf kappans. EMINEM Rapparinn knái gaf nýlega út sína fjórðu breiðskífu, Encore. Eminem er einn vinsælasti rappari heims en jafnframt einn sá umdeildasti. Hvíti rappkóngurinn The Slim Shady LP „Fyrstu breiðskífu sinni til- einkaði Eminem hliðarsjálfi sínu, Slim Shady, sem hann notaði til þess að komast hjá því að ritskoða sjálfan sig. Platan er sett saman af upptökum sem Eminem gerði með Dr. Dre og inniheldur lög á borð við I Just Don’t Give a Fuck, My Name Is, Guilty Conscience og Bonnie and Clyde ‘97. Of- beldið í rímunum er álíka öfgafullt og í teikni- myndum en kaldhæðnislegra. Húmor Eminem hefur aldrei verið beittari en á frumraun hans.“ The Marshall Mathers LP „Eminem ýtti hliðarsjálfi sínu til hliðar á annarri plötu sinni og beindi sviðsljósinu að sjálfum sér og sínum pers- ónulegu vandamálum. Þannig fannst mörgum aðdáendum eins og þeir kæmust nær honum, en hann er duglegur að segja þeim að þeir þekki ekki, og fái ekki að kynnast hans innra manni betur. Þetta er án efa besta plata Eminem til þessa. Hér er að finna meistarastykki eins og Stan, The Way I Am, The Real Slim Shady og Kill You. Eminem fékk fleiri kærur á hendur sér eftir textasmíð- arnar á þessari plötu en á hinum. Þetta er líka mest selda rappplata allra tíma, af góðri ástæðu.“ The Eminem Show „Á þriðju plötu sinni gerir Eminem upp feril sinn fram til þessa. Hann heldur áfram að pirra aðra poppara, en einbeitir sér að því að hreinsa út úr skápi sínum, eins og þegar hann gerir upp samband sitt við móður sína í laginu Cleaning Out My Closet. Í fyrsta skiptið gerist Eminem pólitískur, í lögunum White America og Square Dance, og gleymir ekki sprellinu, eins og í laginu Without Me. Frábær plata, og kóróna Eminem stóð kyrr á höfði hans.“ Encore „Í fyrsta skiptið sýnir Eminem merki stöðnunar. Miðið er orðið aðeins skakkt. Encore er fín, en ekkert meira en það. Lögin eru enn grípandi, og flæðið óaðfinnanlegt en spaugið heldur þunnt. Best tekst honum upp á alvarlegri nót- unum. Meistari Eminem á að geta gert betur en þetta!“ [ SMS ] UM PLÖTUR EMINEM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.