Fréttablaðið - 04.12.2004, Page 91
Young) var þá þegar orðinn
goðsögn í hiphopheimum. Hann
braust fram á sjónarsviðið með
NWA, sem var í miklu uppáhaldi
hjá Eminem, og skaut svo Snoop
Doggy Dogg upp á yfirborðið
þegar hann gerði með honum
meistarastykkið Doggystyle.
Fyrsta sólóplatan hans, The
Chronic frá 1992, þykir líka
hiphoppklassík.
Dr. Dre rekur útgáfuna
Aftermath og bauð Eminem strax
upptöku- og útgáfusamning. Þeir
hófust strax handa, unnu hratt og
gerðu flesta slagarana á fyrstu
plötu hans á nokkrum vikum. Á
fyrstu breiðskífu Eminem, Slim
Shady LP, er svo að finna mörg
þeirra laga sem voru á samnefndri
þröngskífu. Það eitt að Dr. Dre
hefði gerst lærifaðir Eminem var
nóg til þess að rappheimurinn tæki
honum opnum örmum.
„Stóra hvíta vonin“
Árið 1998 var stórt ár í lífi
Marshall. Hann sættist við fyrrum
kærustu sína Kim og giftist henni.
Hann var kominn með samning við
stóra útgáfu og rappblöðin voru
þegar byrjuð að kalla hann „stóru
hvítu vonina“ í hipphoppi í kjölfar
tengsla hans við Dr. Dre. Saman
höfðu þeir félagar gengið frá
alþjóðasamningi við Interscope
Records og Eminem gat einungis
séð spennandi tíma fram undan.
Snemma árs 1999 voru svo
smáskífurnar My Name Is og
Guilty Conscience gefnar út og
frábær myndbönd gerð við lögin.
Síðan þá hafa flest myndbönd hans
haft ákveðinn teiknimyndasjarma
yfir sér. MTV tók rapparanum því
fagnandi, enda langt síðan hiphopp
hafði verið svona hispurslaust,
skemmtilegt – og hvítt.
Enginn hafði heyrt rappara í
meginstraumnum tjá sig um
lyfjanotkun móður sinnar eða
hugaróra um að drepa barnsmóður
sína.
Það kom því mörgum í opna
skjöldu þegar Eminem opnaði
hjarta sitt upp á gátt á annarri
plötu sinni, The Marshall Mathers
LP, sem fylgdi strax í kjölfarið árið
2000. Lagið Stan varð þar stærsti
smellurinn, en þar svaraði hann
gagnrýni foreldranna að textar
hans gætu haft slæm áhrif á
aðdáendurna. Textinn er dæmisaga
þar sem hann setur sig í spor
andlega sjúks aðdáanda sem
ákveður að drepa barnsmóður sína,
eins og hann gerði í texta lagsins
Bonnie and Clyde ‘97 af fyrri
plötunni. Vinsældir Eminems voru
orðnar slíkar að hann seldi
2 milljónir eintaka í Banda-
ríkjunum af annarri plötunni í
útgáfuvikunni. Engin rappplata
hafði þá selst jafn hratt.
Því meira sem vinsældir
Eminem hafa aukist, því
umdeildari verður hann, og því
fleiri hafa hótað honum kærum.
Nokkrir hafa meira að segja látið
verða af því.
C h r i s t i n a
Aguilera var
ekkert allt of
sátt við þá
meðferð sem
hún fékk í
laginu The Real
Slim Shady,
s t a r f s f ó l k
Insane Clown
Posse réðst að
rapparanum í
hljómflutnings-
tækjaverslun,
mamma hans
kærði hann
fyrir meiðyrði
og Eminem
réðst að manni
v o p n a ð u r
s k a m m b y s s u
eftir að hafa séð
hann kyssa
eiginkonu sína
fyrir utan
næturklúbb.
F j ö l m i ð l a r
kepptust um að
saka rapparann
um hommafóbíu, kvenfyrirlitningu
og almenn ósmekklegheit. Lögin
Kill You og Kim af annarri plötu
Eminem, þar sem hann kallar
móður sína og eiginkonu öllum
illum nöfnum, voru oftust notuð
sem dæmi. Í texta lagsins Kim
drepur hann hana á afar blóðugan
og ógeðfelldan hátt með því að
skera hana á háls eftir hart rifrildi.
Álagið reyndist of mikið fyrir
Kim, sem skildi við eiginmann
sinn eftir mislukkaða sjálfs-
morðstilraun. Mamma hans brást
þannig við að hún bjó til rapplag,
og gaf út, þar sem hún svarar
ásökunum sonar sins.
Eminem mætti í réttarsalinn
hvað eftir annað á þessu tíma og
svaraði til saka. Í tilraun til þess að
kveða niður ásakanir um meinta
hommafóbíu fékk hann Elton
John til þess að flytja með sér
lagið „Stan“ á Grammy-verð-
launahátíðinni árið 2000. Eftir
flutninginn gekk hann upp að
honum og faðmaði hann innilega að
sér.
Og hvað svo?
Eminem varð svo ennþá stærri
með útgáfu þriðju plötu sinnar, The
Eminem Show. Hann hélt áfram að
skjóta á aðra poppara í textum
sínum og nú var það Moby sem
fékk einn á hann í laginu Without
Me. Moby brást lítið sem ekkert
við, þrátt fyrir stöðugar árásir.
Eminem samþykkti að leika í
myndinni 8 Mile, sem leikstjórinn
(og aðdáandi rapparans) Curtis
Hanson (Wonder Boys og LA
Confidential) gerði. Sagan var
byggð lauslega á uppvaxtarárum
rapparans í Detroit. Þegar lag
Eminems, Lose Yourself, var
tilnefnt til Óskarsverðlauna árið
2003 var hann beðinn um að breyta
textum sínum ef hann ætlaði að
koma fram. Hann neitaði því,
mætti ekki á staðinn og sendi vin
sinn til þess að taka á móti
styttunni sem hann vann.
Á þriðju plötu sinni heldur
Eminem áfram að tala um erfiða
æsku sína, og gerir upp samband
sitt við móður sína í laginu Cleanin
Out My Closet, á öllu siðprúðari
hátt.
Eminem hefur aldrei horfið af
sjónarsviðinu þrátt fyrir að allt að
tveimur árum hafi liðið á milli
platna. Þess á milli hefur hann
komið fram á plötum rapphópsins
D-12 sem hann hefur alla tíð haldið
tryggð við. Eftirvæntingin eftir
fjórðu plötu hans, Encore, var því
kannski ekki eins mikil og hún
hefði getað orðið.
Eminem varð fyrst pólitískur
í laginu Square Dance á The
Eminem Show, þar sem hann
skýtur á utanríkisstefnu Bush
Bandaríkjaforseta og varar
bandarískt ungviði við því að fara í
herinn. Þessu heldur hann áfram á
nýju plötunni, og gaf frá sér lagið
Mosh í síðasta mánuði til þess að
h v e t j a
aðdáendur sína
til að fella
forsetann úr
stóli.
G a g n -
rýnendur hafa
margir sagt
nýju plötuna
hans slökustu
til þessa en
viðbrögð plötu-
kaupenda hafa
verið svipuð og
áður.
E m i n e m
virðist vera að
færa sig í
svipaða stöðu
og lærifaðirinn
Dr. Dre. Hann
hefur oft gefið
vísbendingar
þess efnis að
hann ætli sér
að draga sig
til baka og
einbeita sér að
því að koma
öðrum lista-
mönnum á framfæri, á plötu-
fyrirtæki sínu Shady Records.
Eminem er þannig maðurinn á bak
við 50 Cent, Obie Trice og G-Unit.
Stjórnaði upptökum á plötum
þeirra, er tíður gestur á þeim og
gefur sjálfur út.
Sama hvernig fer mun goðsögn
Eminems lifa lengur en hann. ■
LAUGARDAGUR 4. desember 2004
Enginn hafði heyrt
rappara í megin-
straumnum tjá sig um
lyfjanotkun móður sinnar
eða hugaróra um að drepa
barnsmóður sína.
,,
AIDS FUND
Legg›u flitt af mörkum
Hver króna af seldum VIVA GLAM varalit rennur í Alnæmissjóð MAC.
Sjóðurinn styrkir baráttuna gegn alnæmi á Íslandi. Í tilefni af alþjóðlegum
Alnæmisdegi koma landsþekktir einstaklingar sem láta sig málið varða í
heimsókn í MAC, Debenhams, í dag milli kl. 13 og 18 og leggja sitt af mörkum:
Sverrir, Auðunn og Pétur úr 70 mínútum, hljómsveitin Nylon, Jónsi úr Í svörtum
fötum, Svanhildur Hólm og Logi Bergmann Eiðsson, Jói Fel, Inga Lind Karlsdóttir
og Gulli Helga úr Íslandi í bítið, Sölvi Fannar framkvæmdastjóri Heilsuráðgjafar,
Ívar Guðmundsson Bylgjunni, Jón Axel Ólafsson, Ragnhildur Steinunn úr Ópinu,
Sigríður Klingeberg spámiðill, Simmi úr Idolinu og Þröstur 3000 af FM 95,7.
Rauða slaufan til styrktar Alnæmissamtökunum er seld á staðnum. Gegn
framlögum er boðið upp á kaffi frá Te og Kaffi, gos frá Vífilfelli og konfekt frá Góu.
Sóley DJ sér um tónlistina, Róbert og Nína frá Jóa og félögum sýna
hátíðargreiðsluna, jólaförðun og „Body Painting“.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
66
92
12
/2
00
4
UMDEILDUR Fjölmiðlar hafa keppst um að
saka rapparann um hommafóbíu,
kvenfyrirlitningu og almenn ósmekklegheit.