Fréttablaðið - 21.01.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 21.01.2005, Blaðsíða 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 62,61 62,91 116,90 117,46 81,08 81,54 10,90 10,96 9,92 9,98 8,98 9,03 0,61 0,61 94,90 95,46 GENGI GJALDMIÐLA 20.01.2005 GENGIÐ Heimild: Seðlabanki Íslands SALA 111,82 +0,26% 4 21. janúar 2005 FÖSTUDAGUR Álþynnuverksmiðja: Akureyri enn í myndinni STÓRIÐJA Líkur á að álþynnuverk- smiðja verði reist við Akureyri hafa aukist eftir að ítalska fyrir- tækið Becromal tilkynnti að Ak- ureyri væri annar tveggja staða í heiminum sem enn væri verið að skoða. Að sögn Magnúsar Ás- geirssonar, framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Eyja- fjarðar, hafa Ítalirnir ekki viljað gefa upp hver hinn staðurinn er en að líkindum er hann þar sem ódýra orku er að fá. Verði Akur- eyri fyrir valinu er einkum horft til lóðar á Rangárvöllum, sunnan við Norðurorku, en Magnús seg- ir að aðrir kostir séu einnig í stöðunni. Becromal er alþjóðlegt fjöl- skyldufyrirtæki og komu fulltrú- ar þess til Akureyrar síðastliðið haust til að skoða aðstæður fyrir álþynnuverksmiðju. „Í fyrstu komu fimm lönd til greina og er ég sæmilega bjartsýnn eftir að þeim hefur fækkað í tvö. Verði Akureyri fyrir valinu verður það mikil lyftistöng fyrir atvinnulíf í Eyjafirði en um 100 manns munu starfa í verksmiðjunni. Stór hluti þeirra starfa verður hátækni- störf sem kalla á sérhæfða menntun,“ sagði Magnús. - kk Sniffuðu kókaín af salernisvaskinum Lögreglan og veitingahúsaeigendur virðast sammála um að neysla fíkniefna sé stór hluti af skemmtanalífinu. Viðmælanda blaðsins brá í brún þegar hann kom að jakkafataklæddum mönnum sniffa kókaín á salerni veitingastaðar. FÍKNIEFNI Nokkrir veitingahúsa- eigendur sem Fréttablaðið ræddi við segja að ekki fari á milli mála að talsvert mikið sé notað af kókaíni samhliða skemmtana- haldi í miðborg Reykjavíkur. Fréttablaðið ræddi einnig við mann sem nýlega fór út að skemmta sér og var heldur brugðið þegar hann fór inn á sal- erni ónefnds skemmtistaðar í miðborginni þar sem jakkafata- klæddir menn sniffuðu kókaín af vaskborði fyrir allra augum. Fyrir nokkrum árum hefðu langflestir landsmenn staðið sam- an og með lögregl- unni og talið fíkni- efnaneyslu vera vandamál, að sögn Harðar Jóhannes- sonar yfirlögreglu- þjóns í Reykjavík. Nú sé neyslan orðin hluti af skemmtana- mynstrinu. Einn veitingahúseigand- inn sagði því miður greinilegt að neysla kókaíns væri nokkuð stórt vandamál sem virtist fara vaxandi. Ungu fólki sem rétt hefur aldur til að fara inn á skemmtistaðina fynd- ist sjálfsagt mál að kókaín væri hluti af skemmtanalífinu. Hann segist nokkuð oft heyra sögur af samkvæmum sem fólk hafi verið í áður en haldið var af stað í miðbæ- inn þar sem nóg hafi verið af kóka- íni. Annar maður sem rekur skemmtistað segir kókaínneysluna virðast vera svo sjálfsagða í aug- um margra þeirra sem neyta kóka- ínsins að þeir fari ekki einu sinni leynt með neysluna. Á að minnsta kosti einum skemmtistaðanna hef- ur verið sett upp gæsla við salern- in til að reyna að sporna við því að fíkniefnanna sé neytt inni á veit- ingastaðnum. Þeir sem blaðið ræddi við voru sammála um að margt hafi breyst með lengri opnunartíma skemmtistaðanna. Fáir geti hald- ið út að skemmta sér frá kvöld- mat og fram á rauðan morgun, kvöld eftir kvöld og helgi eftir helgi án hjálpar örvandi efna. Á nokkrum skemmtistöðum hefur verið tekið upp á því að selja vatnsglös þar sem sala áfengis hefur minnkað í kjölfar neyslu annarra vímuefna. Aðrir staðir selja ekki vatnsglösin og merkja ekki lakari sölu áfengis þrátt fyrir að vart hafi verið við neyslu kókaíns og annarra örvandi efna inni á stöðunum. hrs@frettabladid.is Hamfarasvæðið í Asíu: Enginn hungurdauði BANDA ACEH, AP Enginn þeirra sem lifðu af hamfarirnar við Indlands- haf fyrir tæpum mánuði mun deyja af völdum hungurs, fullyrð- ir Tony Banbury, yfirmaður mat- vælaaðstoðar Sameinuðu þjóð- anna. „Við munum koma mat til allra þeirra sem þess þarfnast,“ sagði hann eftir heimsókn í þorp á vesturströnd Indónesíu. Banbury segir að hjálpar- starfsmenn hafi þurft að yfirstíga mikla erfiðleika til að koma mat- vælum til þurfandi fólks. Hann segir helsta verkefni matvælaað- stoðarinnar að koma fjölbreyttari mat til fólks, en margir hafa þurft að lifa á hrísgrjónum og núðlum svo vikum skiptir. ■ ■ Einn veitinga- húseigandinn sagði því miður greinilegt að neysla kókaíns væri nokkuð stórt vandamál og virtist fara vaxandi. Umferðarslys: Þrír rákust saman ÁREKSTUR Einn bíll gjöreyðilagðist og tveir skemmdust mikið í þriggja bíla árekstri í Fagradal í Suður- Múlasýslu um sjöleytið á miðviku- dagskvöld. Að sögn lögreglunnar á Eski- firði óku tveir jeppar og ein fólks- bifreið í röð eftir veginum í Fagra- dal og óku aftan á hvern annan með fyrrgreindum afleiðingum. Einn var í hverjum bíl en allir sluppu þeir ómeiddir þó einn bíll hafi gjör- eyðilagst við áreksturinn. ■ NEYSLA KÓKAÍNS Kókaíns er neytt inni á skemmtistöðunum og virðast sumir neytendanna ekki einu sinni fara leynt með neysluna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I Akureyrarbær: Gjaldskrár- lækkun BÆJARMÁL Bæjaryfirvöld á Akur- eyri hafa ákveðið að lækka vatns- gjald á fasteignir um tæp sex pró- sent og holræsagjald um tæp fimm prósent. Þá hefur verið ákveðið að hámarksafsláttur af fasteigna- skatti til efnalítilla elli- og örorku- lífeyrisþega verði hækkaður í 40 þúsund krónur í ár en afslátturinn var 30 þúsund í fyrra. Dan Jens Brynjarsson, sviðs- stjóri stjórnsýslusviðs Akureyrar- bæjar, segir að gjaldskrárlækkun- in og aukinn afsláttur eigi að vega á móti hækkun fasteignamats um áramótin en fasteignamatið hækk- aði þá um 13% á Akureyri. - kk ÓSAMIÐ Í JÁRNBLENDINU Farið er að reyna á þolinmæði Verkalýðs- félags Akraness vegna þess hversu erfiðlega gengur að semja um kjör starfsmanna Íslenska járnblendifélagsins við eigendur. Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar 25. janúar og segir á vef verkalýðsfélagsins að þá verði að gera heiðarlega tilraun til að klára kjaraviðræðurnar. ■ KJARAMÁL Ísraelsher: Skutu dreng JENIN, AP Þrettán ára drengur var skotinn til bana af ísraelskum her- mönnum á Vesturbakkanum í gær eftir að hann beindi leikfanga- byssu að þeim. Ættingjar drengsins segja að hann hafi ásamt öðrum börnum gert gys og kastað grjótum að her- mönnunum og beint heimagerðri leikfangabyssu að þeim þegar hermaður skaut hann. Drengur- inn var úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi skömmu síðar. Tals- menn Ísraelshers segja að mikill mannfjöldi hafi safnast saman á svæðinu og látið ófriðlega og að hermaðurinn sem skaut hafi talið sig í hættu þegar drengurinn beindi byssunni að honum. ■ Öryrkjabandalagið: Nýr formað- ur kjörinn FÉLAGSSAMTÖK Emil Thoroddsen tók við formennsku í Öryrkja- bandalagi Íslands í gær en Garðar Sverrisson lét af formennsku af h e i l s u f a r s á - stæðum. Emil var áður varafor- maður Ör- y r k j a b a n d a - lagsins og hef- ur einnig verið framkvæmda- stjóri Gigtar- félags Íslands síðan 1994. Hann tók sæti í aðal- stjórn Öryrkjabandalagsins sama ár og var kosinn í framkvæmda- stjórn þess árið 1999. Hann varð varaformaður ári seinna og hefur gegnt þeirri stöðu þar til nú. Garðar Sverrisson tók fyrst sæti í aðalstjórn Öryrkjabanda- lagsins árið 1996, var kjörinn varaformaður þess árið 1997 og formaður árið 1999. ■ EMIL THÓRODDSEN MAGNÚS ÁSGEIRSSON Næsta skref er að skrifað verði undir vilja- yfirlýsingu til að tryggja trúnað á milli Becromal og íslenskra viðsemjenda. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.