Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.01.2005, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 21.01.2005, Qupperneq 62
42 21. janúar 2005 FÖSTUDAGUR Fókus fylg ir DV í dag Týpur menntaskól anna Fókus fór á gangana [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 225 þúsund manns. Bandaríkjanna. Borgarholtsskóla. Margir hrukku í kút við þær frétt- ir að lið MR-inga hefði dottið úr keppni í Gettu betur í sextán liða úrslitum í útvarpinu í fyrradag. Borgarholtsskóli hafði betur í viðureign skólanna og sigraði MR með 29 stigum gegn 26 en það voru einnig Borghyltingar sem slógu Latínuskólann úr keppni í fyrra í undanúrslitum. Borgar- holtsskóli hefur því rækilega stöðvað sigurgöngu Menntaskól- ans í Reykjavík, sem hafði áður unnið keppnina ellefu ár í röð. Ásgeir Pétur Þorvaldsson er einn meðlimur MR-liðsins. Ekki var að heyra mikinn vonleysistón í hans röddu. Aðspurður hvernig stemningin væri í skólanum sagði hann að nemendur tækju þessu alls ekkert illa og þvert á móti fyndu liðsmenn mikinn stuðning. „Fólk tekur þessu ágætlega og krakkarnir eru alls ekkert súrir, þeir hafa einmitt bara hrósað okk- ur fyrir að hafa staðið okkur vel og það gerðum við líka,“ sagði Ás- geir. MR-liðið mun taka breyting- um strax aftur á næsta ári þar sem tveir liðsmenn útskrifast í vor. Það sést á spjallrás MR-inga að vilji nemenda er að Borgar- holtsskóli vinni keppnina þar sem lið þeirra mun ekki gera það. Allt virðist vera betra en að Verzlunarskóli Íslands vinni, sem sést best á orðunum „Muera Verzló“ sem einn nemandinn skrifar á spjallið. Þetta þýðir að öllum líkindum „Deyi Verzló“ á uppáhaldstungumáli MR-inga, latínu. „Jú, er það ekki alltaf þannig að allt er betra fyrir MR- inga en að Verzló vinni? Við von- um auðvitað að Borgó taki þetta, sem þýðir þá að við höfum fallið fyrir þeim bestu. Það eru alls engin illindi á milli Borgó og MR.“ Þeir skólar sem eru komnir áfram í sjónvarpið, auk Borgarholtsskóla, eru Mennta- skólinn við Hamrahlíð, Verzlunar- skólinn, Menntaskólinn á Akur- eyri, Menntaskólinn við Sund, Fjölbraut á Laugum, Menntaskólinn á Egilsstöðum og Menntaskólinn í Kópavogi. hilda@frettabladid.is GETTU BETUR: BORGHYLTINGAR STÖÐVA SIGURGÖNGU LATÍNUSKÓLANS Frekar Borgó en Verzló Stórar töskur. Hver er ekki orðinn endalaust þreyttur álitlu mínítöskunum sem eru búnar að vera svo lengi í tísku. „Hmm, hvort ætti ég að taka með mér símann eða veskið?“ Ekki getur maður tekið bæði því það kemst ekki fyrir! Þessi tími er liðinn því stórar töskur eru málið núna. Núna er hægt að grípa hvað sem er og henda því ofan í töskuna á leiðinni út. Hvað er líka betra en að geta sett jakkann sinn eða trefilinn ofan í töskuna á djamminu? Stór og litrík belti eru frábær leið til þess að krydda upp ídauðum fatnaði. Þau geta þó oft verið mjög dýr og því um að gera að gramsa í fataskápnum hjá mömmu eða ömmu eða grafa upp gömul belti úr geymslunni og sjá hvort þau séu ekki bara allt í lagi núna. Utan um peysur, boli eða hvað sem er. Veislur. Grámyglan í hversdagslífinu er marga að drepaþessa dagana og því um að gera að halda glamúr veislur með frábærum vinum. Þá er gott ráð að skreyta híbýlin eilít- ið áður en gestir mæta og taka á móti þeim með flottum kokkteilum. Tilefnið þarf ekki að vera neitt. Fátt hressir meira en flottar veislur með skemmtilegu fólki. Rafmagnað hár er nokkuð sem pirrar marga í kuldan-um þessa dagana. Einhverra hluta vegna hefur kuldi þessi áhrif á flókann á höfðinu á okkur og ekkert við því að gera annað en að nota næringu! Og þetta á líka við strákana. Nóg af hárnæringu í hárið og það hættir að reisa sig upp af höfðinu eins og margar litlar lifandi verur með sjálfstæðar hugsanir. Ókurteisi er eitt það allra leiðinlegasta. Af hverju íósköpunum að vera ókurteis þegar maður getur verið kurteis? Það er alltaf jafn gaman að hitta kurteist fólk en getur hins vegar dregið hrikalega úr manni vind- inn að hitta ókurteist fólk. Kurteisi er mannasiður sem allir ættu að temja sér. Sorgarrendur undir nöglunum eru afskaplegasorglegt og óaðlaðandi fyrirbæri. Að sjálfsögðu er fyrirgefanlegt að litlir krakkar séu einstaka sinnum með rendur undir nöglunum eftir drullumall heilu dagana. En þegar fullorðið fólk sprangar um með sorgarrendur undir nöglunum er mælirinn fullur. INNI ÚTI ...fá Vala og Björg, hönnunarsyst- ur í Spakmannsspjörum, sem hafa hannað föt á heimsfræga einstaklinga og ekki gefist upp þótt á móti hafi blásið. HRÓSIÐ Fyrsta plata tónlistarmannsins Mugison, Lonely Mountain, fékk mjög góða dóma í danska blaðinu Politiken á dögunum, eða fimm hjörtu af sex mögulegum. Í dómnum segir að platan sé á köflum nokkuð tormelt en einnig sé þar að finna gullfallegar meló- díur. Textagerðinni er einnig hrósað og hún sögð nútímaleg. Er Mugison sagður undir áhrifum frá hinum virta tónlistarmanni Tom Waits. Mugison segist vera mjög ánægður með þá athygli sem platan sé að fá. Það kemur honum samt á óvart að erlendir gagnrýnendur séu fyrst að kveikja á henni núna því hún kom út árið 2003. Mugison, sem varð faðir á dögunum, verður í fríi fram í maí. Þá verður önnur plata hans gefin út erlendis og ætlar hann í tónleikaferð til að fylgja henni eftir. ■ Góðir dómar í Danmörku MUGISON Tónlistarmaðurinn Mugison sló í gegn fyrir síðustu jól með plötunni Mugimama, Is This Monkeymusic? 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 Lárétt: 1klukka,6róm,7já,8áð,9tab, 10bor, 12svr, 14mók,15au,16an, 17öln,18saur. Lóðrétt: 1krás,2lóð,3um,4kjarval, 5aáb,9tos,11bóna,13runa,14mas, 17ör. Lárétt: 1 tímamælir, 6 borg, 7 svar, 8 hvílt, 9 vörumerki, 10 verkfæri, 12 sam- göngufyrirtæki, 14 blundur, 15 tvíhljóði, 16 á nótu, 17 framhandleggur, 18 skítur. Lóðrétt: 1 dýrindis matur, 2 landspilda, 3 varðandi, 4 listamaður, 5 í röð, 9 drátt- ur, 11 pússa, 13 romsa, 14 blaður, 17 píla. Lausn: GETTU BETUR Lið Menntaskólans í Reykjavík er dottið úr keppni í Gettu betur og kemst því ekki í sjónvarpið. Þetta hefur ekki gerst síðan 1991. » FA S T U R » PUNKTUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.