Fréttablaðið - 27.01.2005, Page 1

Fréttablaðið - 27.01.2005, Page 1
HEILBRIGÐISMÁL Íslenskir læknar sinna tilkynningarskyldu sinni varðandi aukaverkanir lyfja ekki sem skyldi, að sögn Rannveigar Gunnarsdóttur, forstjóra Lyfja- stofnunar. Aðeins þrjár tilkynning- ar um aukaverkanir gigtarlyfsins Vioxx bárust stofnuninni á árabil- inu 2000 til 2004, þeim tíma sem lyfið var á markaði hér, þar af tvær alvarlegar. Rannveig sagði Lyfjastofnun ekki hafa borist nein- ar tilkynningar um dauðsföll tengd notkun lyfsins hér á Íslandi. Hún sagði að aðstandendur tveggja sjúklinga hefðu haft sam- band við Lyfjastofnun vegna gruns um að sjúklingarnir hefðu skaðast alvarlega af notkun lyfsins, annar þeirra jafnvel látist af völdum þess, en það væru einungis vanga- veltur eftir að umræðan hefði haf- ist um aukaverkanir þess. Mikið hefur verið rætt erlendis um aukaverkanir gigtarlyfsins Vioxx, sem tekið var af markaði eftir að þrjár klínískar rannsóknir höfðu sýnt að hætta væri á hættu- legum aukaverkunum af notkun þess, þar á meðal hjartaslagi og heilablóðfalli. Sérfræðingar bæði í Bandaríkjunum og Evrópu telja að fjöldi sjúklinga hafi fengið hjarta- sjúkdóma eða jafnvel látist af völdum aukaverkana. Ljóst er af tölum frá Trygginga- stofnun að notkun lyfsins hefur verið mikil hér á landi á þeim tíma sem það var leyft. „Það skortir á að íslenskt heil- brigðisstarfsfólk sinni þessari til- kynningaskyldu sinni,“ sagði Rannveig. „Sumir læknar hringja jafnvel í okkur og velta því fyrir sér hvort um aukaverkanir geti verið að ræða í ákveðnum tilvik- um. Þeir eru þá hvattir til að senda tilkynningu, en hún kemur allt of sjaldan.“ „Vegna þessarar umræðu vil ég benda á að lyfjastofnanir á Evr- ópska efnahagssvæðinu hafa náið samstarf,“ sagði Rannveig. „Starf- andi er vinnuhópur, lyfjagátar- nefnd, á vegum Lyfjastofnunar Evrópu. Hann safnar saman upp- lýsingum um aukaverkanir lyfja frá öllum löndum og ákveður hvort skoða þurfi einhver þeirra nánar. Nú er til dæmis COX 2 hemla lyfja- flokkurinn í sérstakri skoðun.“ jss@frettabladid.is Sjá síðu 6 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI FIMMTUDAGUR ÍSLENSKU BÓKMENNTAVERÐ- LAUNIN AFHENT Ólafur Ragnar Gríms- son forseti afhendir Íslensku bókmennta- verðlaunin á Bessastöðum í dag. Verðlaunin verða veitt í flokki fagurbókmennta og flokki fræðirita og bóka almenns efnis. Fimm bækur eru tilnefndar í hvorum flokki. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG 27. janúar 2005 – 25. tölublað – 5. árgangur ● geta einbeitt sér að rússum Skyldusigur á Kúvæt í gærkvöld HM í Túnis: ▲ SÍÐA 26 HVÍTA HÚSIÐ MEÐ YFIRLÝSINGU DAVÍÐS Í yfirlýsingu Davíðs Oddssonar frá 18. mars 2003, sem finna má á vef Hvíta hússins, vísar hann til yfirlýsingar íslensku ríkisstjórnarinnar um deilurnar í Írak. Ekki var hægt að fá uppgefið frá ráðuneytum hvaða yfirlýsingar var verið að vísa til. Sjá síðu 2 ÞINGMENN UNDRANDI Á VERÐ- HÆKKUNUM Þingmaður Sjálfstæðis- flokks segir að fullyrt hafi verið á þingi að raforkuverð myndi ekki hækka svo nokkru næmi. Nú sé annað að koma í ljós. Þing- maður Frjálslyndra segir hækkanir allt að 75 prósent. Sjá síðu 4 ÓLÍKT FÓLK – LÍKAR STEFNUR Lítill stefnumunur er talinn á formannsefnum Samfylkingarinnar en þó er Össur Skarphéð- insson talinn hægra megin við miðju en Ingibjörg Sólrún vinstra megin. Sjá síðu 6 Kvikmyndir 34 Tónlist 30 Leikhús 32 Myndlist 32 Íþróttir 26 Sjónvarp 36 ● heimili ● matur ● tíska Rekur skransölu með sál í 105 Guðrún Gerður Guðrúnardóttir: ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS LITLAR SEM ENGAR BREYTING- AR Í VEÐRINU og áfram frostlaust um allt land. Nokkur vindur norðanlands en annars fremur hæg SV-átt. Sjá síðu 4 Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 Trassa að tilkynna aukaverkanir lyfja Íslenskir læknar standa sig ekki í að tilkynna aukaverkanir lyfja til Lyfjastofn- unar, að sögn Rannveigar Gunnarsdóttur forstjóra. Aðeins þrjár tilkynningar bárust um hið illræmda Vioxx-gigtarlyf á árunum 2000 til 2004. FLOGIÐ HÆRRA Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, og Hannes Smárason stjórnarformaður undirrituðu í gær stærsta flugvélakaupa- samning í sögu félagsins. Samningurinn hljóðar upp á kaup á tíu Boeing 737-800 þotum fyrir 40 milljarða króna. Stofnað verður dóttur- félag sem sér um kaup og útleigu flugvéla. Vélarnar verða afhentar árin 2006 og 2007 og munu verða leigðar áfram. Sjá nánar síðu 22. KJARAMÁL Nýjasti dómur Hæsta- réttar í máli gegn Akureyrarbæ er varðar mismunun vegna kyn- bundins launamunar markar tímamót. Þetta segir Sif Konráðs- dóttir hæstaréttarlögmaður. Hæstiréttur staðfesti að starf kvenkyns deildarstjóra á félagsmálastofnun Akureyrar- bæjar væri jafnverðmætt og starf karlkyns deildartækni- fræðings hjá sama bæjarfélagi. „Dómurinn gæti hugsanlega haft áhrif á kjarasamninga háskólastétta, en í málinu voru stjórnunarstöður taldar jafn verð- mætar sem krefjast háskóla- menntunar annars vegar á sviði félagsvísinda og hins vegar tæknifræði,“ segir Sif. Gísli Tryggvason, fram- kvæmdastjóri Bandalags háskóla- manna, segir að staðfestur launa- munur sé milli kynjanna. „Al- mennt skortir aðferðafræði við að bera saman ólík störf. Í þessum dómi var aðferðafræðin til staðar og vildi ég óska þess að svo væri víðar svo stórar hefðbundnar kvennastéttir háskólamenntaðs fólks gætu borið kjör sín saman við það sem þær teldu sambæri- legt,“ segir Gísli. - sda Jafnréttismál gegn Akureyrarbæ: Tímamótadómur vegna kynbundins launamunar Inni í Fréttablaðinu í dag Stephan Stephensen og Jóhann Jóhannsson ■ Göturnar í lífi Eddu Sverrisdóttur í Flex ■ Skíðað niður Kaldbak Pönk/diskó á bók ■ Matgæðingurinn Nanna Rögnvaldardóttir ■ Franskur klassíker F24. TBL. 2. ÁRG. 27. 1. 2005 Eftirlaunafrumvarpið Stríðshanskanum var kastað Hnakkarnir hertaka rokklúkkið Ætlar ekki að sitja á varamannabekknum Ingibjörg Sólrún Me›allestur dagblaða MorgunblaðiðFréttablaðið 69% 49% ARNALDUR INDRIÐASON Hástökkvari vikunnar á þýska metsölulistanum. Arnaldur Indriðason: Í öðru sæti í Þýskalandi BÆKUR Napóleonsskjölin eftir Arnald Indriðason er í 2. sæti þýska bóksölulistans sem birtur var í gær. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskum höfundi tekst að komast svo hátt á metsölulista í Þýskalandi. Bókin kom út fyrir tveimur vikum og skaust þá beint í 25. sæt- ið en er nú hástökkvari vikunnar. Arnaldur átti fyrra sölumet Ís- lendings í Þýskalandi, en á síðasta ári komst bókin Grafarþögn í 6. sæti þýska listans. Sjá síðu 2 í F2 Uppgjör KB banka: Íslandsmet í hagnaði VIÐSKIPTI Hagnaður KB banka eftir skatta í fyrra nam 15,7 millj- örðum króna. Ekkert íslenskt fyrirtæki hefur hagnast viðlíka mikið áður. Ríflega helmingur hagnaðar bankans er til orðinn vegna starfsemi utan Íslands. Hagnaður bankans fyrir skatta nam ríflega 20 milljörðum króna. Stjórn bankans hyggst verja 3,3 milljörðum króna í greiðslu arðs til hluthafa. Yfir 70 prósent hluta- fjár eru í íslenskri eigu. Bankinn hagnaðist um fjóra milljarða á síðasta fjórðungi lið- ins árs. Stjórnendur bankans meta horfur í rekstri hans góðar fyrir þetta ár. - hh Sjá síðu 23 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.