Fréttablaðið - 27.01.2005, Síða 6
6 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Þingmaður Vinstri grænna segir losunarheimildir landsins springa:
Mengunarkvótar skapa skriffinnsku
ALÞINGI Ekki er ástæða til að setja
mengunarkvóta á losunarheimild-
ir fyrirtækja á innanlandsmark-
aði, sagði Sigríður Anna Þórðar-
dóttir umhverfisráðherra á þing-
fundi Alþingis í gær. Ávinningur-
inn yrði enginn, hagkvæmnin eng-
in en umsýslan mikil.
Kolbrún Halldórsdóttir, þing-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, sagði svör um-
hverfisráðherra vonbrigði. Sigríð-
ur Anna sagði að ríkjum sem aðild
eiga að Kyoto-bókuninni yrði gert
að setja upp bókunarkerfi um
mengun fyrirtækja. Kerfið yrði
vistað hjá Umhverfisstofnun.
Breytist aðstæður verði auðvelt
að vinna upplýsingar úr kerfinu.
Mörður Árnason lagði fyrir-
spurn um málið fram. Hann sagði
ólíklegt að Íslendingar fengju
alltaf heimildir til að menga langt
umfram aðrar þjóðir.
„Ég er undrandi og hlessa á
svörum umhverfisráðherra,“ sagði
Mörður á Alþingi. Hugmyndaflug
hans hafi ekki náð til þess að
stjórnvöld sætu aðgerðalaus gagn-
vart aukinni mengun. - gag
Össur Skarphéðinsson:
Karlinn í brúnni
Styrkur Össurar er talinn liggja í því að hann er sitjandi for-
maður og þykir hafa unnið gott uppbyggingarstarf, brætt
saman ósamstæð flokksbrot og myndað flokk. Össur er tals-
maður flokksins á þingi, þar sem Ingibjörg Sólrún á ekki sæti.
Þá er hann talinn búa að góðu tengslakerfi, ekki síst úti á
landi og hafa til að bera léttleika sem reynist þungur á met-
unum á atkvæðaveiðum. Bent er á að hann hafi nær tvöfald-
að fylgi flokksins. Mun geta skorað formenn annarra flokka á
hólm í þinginu hvenær sem þörf krefur.
Veikleikar Össurar eru taldir þeir að hann er sakaður um að
vera tækifærissinnaður galgopi sem hafi orðið á ótrúlegar
skyssur á borð við Baugsbréfið svokallaða. Skjall pólitískra
andstæðinga sýni að hann sé draumaandstæðingur þeirra.
Vinnubrögð hans séu tilviljanakennd og hann hafi vanrækt
stefnumótun og skipulag fyrir síðustu kosningar. Efasemdir
um að illa valin upphlaup í þinginu komi honum til góða.
Þykir skorta virðuleika til að eiga erindi í forsætisráðherra-
embættið. - ás
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Kona úr borginni
Styrkur Ingibjargar Sólrúnar er fyrst og fremst reynsla
hennar úr borgarstjórastóli í Reykjavík – sem löngum
hefur verið stökkpallur í forsætisráðherrastólinn. Getur
státað af því að fylkja vinstrimönnum í R-listanum og
vinna borgina af sjálfstæðismönnum. Pólitískur styrkur
hennar er sagður hafa verið viðurkenndur þegar hún var
forsætisráðherraefni. Þá er sú staðreynd að hún er kona
þung á metunum í flokki sem nýtur meiri stuðnings
kvenna en karla.
Veikleikar Ingibjargar Sólrúnar eru sagðir þeir að hún eigi
síður gott með að laða aðra flokka til samstarfs og væri
formennska hennar því ávísun á langvinna stjórnarand-
stöðu. Sökuð um að hafa gert mörg pólitísk mistök og í
raun drepið R-listasamstarfið með brottför úr borgar-
stjórastól. Ingibjörg Sólrún er ekki talin búa að sama
tengslaneti og Össur, að minnsta kosti ekki á landsbyggð-
inni. Talið er að það geti orðið henni fjötur um fót að
eiga ekki sæti á þingi. - ás
Ólíkt fólk – líkar stefnur
Lítill stefnumunur er talinn á formannsefnum Samfylkingarinnar en þó er Össur Skarphéðinsson talinn
hægra megin við miðju en Ingibjörg Sólrún vinstra megin.
STJÓRNMÁL Fyrsta uppgjör á milli
formanns og varaformanns í ís-
lenskum stjórnmálum frá 1991
verður í lok maí þegar félagar í
Samfylkingunni kjósa á milli
sitjandi formanns, Össurar
Skarphéðinssonar, og svilkonu
hans, Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur. Sjálfum ber Össuri
og Ingibjörgu aðspurðum saman
um eitt: „Það er enginn sérstak-
ur málefnaágreiningur á milli
okkar.“
Almennt er þó Össur Skarp-
héðinsson talinn örlítið hægra
megin við miðju en Ingibjörg
Sólrún vinstra megin. Það á
meðal annars rætur að rekja til
þess að Össur kom inn í Sam-
fylkinguna úr Alþýðuflokknum
en Ingibjörg Sólrún úr Kvenna-
listanum, en bæði tilheyrðu þau
rótttækari öflum þar á undan.
Almennt séð er ekki talin til-
viljun að Ingibjörg Sólrún hafi
tekið að sér forystu í nefndinni
sem á að móta framtíðarstefnu
flokksins. Hún talar sjálf um
„hugmyndafræðilega endurnýj-
un“, en í raun nefnir hún fá önn-
ur dæmi en um breytt vinnu-
brögð.
Fylgismaður Össurar segir
hins vegar að vissulega hafi
Össur tilhneigingu til að bregð-
ast við málum fremar en að
leggja fram grjótharða stefnu.
„Það þykist enginn lengur – ekki
heldur Ingibjörg Sólrún – búa
yfir stóra sannleikanum og geta
vísað á fyrirmyndarríkið.“
Nokkur dæmi eru þó nefnd
um ólíkar áherslur:
*Varnarmál: Framtíðarnefnd
Ingibjargar Sólrúnar vill að Ís-
lendingar endurskoði veru hers-
ins – sem hvort sem er vilji fara.
*Einkavæðing: Framtíðar-
nefnd Ingibjargar Sólrúnar lagði
til einkavæðingu að hætti Ás-
landsskóla en Össur lagðist gegn
því. Þetta er talin undantekning-
in sem sannar regluna: Össur
vinstra megin við Ingibjörgu.
*Skattamál: Margþrepa
skattkerfi: Ingibjörg Sólrún
ljáði máls á því fyrir síðustu
kosningar en Össur var á móti.
Össur er talinn fúsari að sættast
á skattalækkanir en Ingibjörg
Sólrún.
*Evrópumál: Össur er talinn
Evrópusinnaðri en varaformað-
urinn.
Þá er talað um stíl: Þannig
myndi Össur seint tala um
stéttabaráttu eins og Ingibjörg
Sólrún gerði ekki alls fyrir
löngu opinberlega.
a.snaevarr@frettabladid.is
Aðild að ESB:
Enn tíu ár
til stefnu
SVISS, AP Tíu ár munu líða áður en
Tyrkland er í stakk búið að gerast
aðili að Evrópusambandinu,
sagði Ali Babacan, efnahags-
málaráðherra tyrknesku ríkis-
stjórnarinnar, á fundi um efna-
hagsmál sem haldinn er í Davos í
Sviss.
„Við erum á réttri leið en mjög
langt samningaferli er fram und-
an,“ sagði Babacan.
Verðbólga í Tyrklandi nam níu
prósentum í fyrra og átján pró-
sentum árið 2003. Babacan sagði
unnið að því að auka fjárfestingu
í fátækustu héruðum Tyrklands
og minnka verðbólgu. ■
GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON
Er fyrsti flutningsmaður frumvarps um
breytt áfengislög. Hann sagði vonbrigði að
framsóknarmenn vildu ekki taka þátt í að
styrkja íslenskan heimilisiðnað.
Litla bruggmálið:
Breyta þarf
áfengislögum
ALÞINGI Leyfa verður fólki að
framleiða léttvín og líkjöra, sagði
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, á
þingfundi Alþingis í gær.
Guðjón er flutningsmaður
frumvarps um breytt áfengislög,
ásamt þingmönnum úr öllum
flokkum Alþingis utan Framsókn-
arflokksins.
„Ég tel að þarna sé eftir þó
nokkru að slægjast,“ sagði Guð-
jón. Yrði heimilt að brugga kæmi
þekking og hæfileikar fólks til
framleiðslu íslenskra vína upp á
yfirborðið. Það gæti leitt til at-
vinnurekstrar á því sviði í fram-
tíðinni. - gag
Hefurðu dottið í hálkunni í
vetur?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefurðu staðið við áramóta-
heitin?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
81%
19%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
Aðeins 599 kr.
5 690691 2000
08
Lífsreynslusagan • Heilsa • • Matur • Krossgátur
4. tbl. 67. árg., 26. jan
úar 2005.
Aðeins 599 kr.
g•á~t
Persónuleikaprófið
Ólöf Dagný, fyrrver
andi
eiginkona Loga Be
rgmanns,
og Sigurður Tómas
Lítil nafna-
bók fylgir
frítt með
atyÇtu™
~
Yfir þús
und nö
fn
afna
bók0
4.tb
l. 0
5
Ástfangin
og alsæl
Rannveig biskupsd
óttir
er komin 7 mánuði
á leið
Fékk heilablæðingu
fyrir tæpu ári
Í heimsókn hjá
Moggaritstjóra
yÜ}™áxÅ| xç~áà
Lengið lífið
á 24 tímum
Gáfu Kínabarni
nýtt og betra líf
Átak Vikunnar og H
reyfingar
Matardagbók S
tínu
hjá framakonum
Sannkallaðkraftaverk!
llr ft r !
00 Vikan04.
tbl.'05-1
14.1.2005
14:28 Page
1
Náðu í eintak á næsta sölustað
ný og f rsk í hverri viku
atyÇtu™~
Yfir þúsund nöfn
INGIBJÖRG SÓLRÚN OG ÖSSUR
Tekist er á um persónur með ólíka styrkleika og veikleika í formannsslag Samfylkingarinnar.
SIGRÍÐUR ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR
Umhverfisráðherra segir losunarheim-
ildir vegna mengunar fyrirtækja óþarfar.
Hvorki yrði ávinningur né hagkvæmni
af þeim en umsýslan yrði mikil.
Tryggingastofnun ríkisins:
Vioxx fyrir hálfan milljarð
HEILBRIGÐISMÁL Íslendingar notuðu
mikið af svokölluðum coxhib-lyfj-
um á árunum 2000-2004, sam-
kvæmt tölum frá Tryggingastofn-
un ríkisins. Kostnaðurinn vegna
tveggja tegunda, Vioxx og
Celebra, nam á þessu árabili 786,8
milljónum króna. Þar af greiddi
Tryggingastofnun ríkisins 608,9
milljónir.
Stærstur hluti kostnaðar
Tryggingastofnunar kom til
vegna mikillar notkunar á gigtar-
lyfinu Vioxx, ríflega 460 milljónir
króna. Er gert ráð fyrir að yfir
1.000 íslenskir sjúklingar hafi not-
að það. Heildarkostnaðurinn við
þetta lyf nam hins vegar nær 600
milljónum króna.
- jss
KOSTNAÐUR VIÐ
VIOXX 2000 – 2004
Ár Greiðslur TR Kostnaður
2000 9.305. 939 12.761.916
2001 135.522.767 173.785.190
2002 138.871.687 176.610.171
2003 110.164.564 138.772.430
*2004 66.682.804 82.938.432
*Árið 2004 eru gögn fyrir janúar til nóv-
ember. Tölur fengnar úr gagnagrunni TR.