Fréttablaðið - 27.01.2005, Side 22
F2 2 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Morgunmatur: Njóttu þess að sofa
út, það gefur hraustlegt útlit og aukna
krafta. Þegar þú vaknar skaltu leggja
leið þína á Gráa köttinn og fá þér
beyglu með túnfisksalati og sterkan
kaffi latte. Það er himneskt.
Íþróttir: Dragðu vin eða maka með
þér á dansnámskeið og njóttu þess að
svífa í örmum hans um gólfið. Þegar
heim er komið getið þið haldið áfram
að æfa ykkur. Við fótamenntina
brennið þið fullt af kaloríum og hafið
gaman af.
Kvikmyndin: Nýja myndin
með Nicole Kidman, Birth,
lofar góðu og væri ekki úr vegi
að skella sér á hana. Sérstak-
lega ef þú hrífst af yfirnáttúru-
legum hlutum.
Sjónvarp ið :
Komdu þér vel
fyrir fyrir fram-
an sjónvarpið á
s u n n u d a g s -
kvöldið. Byrj-
aðu á því að
poppa upp á
gamla mátann og fáðu þér sódavatn
með. Byrjaðu á að horfa á Sjálfstætt
fólk með Jóni Ársæli. Þar á eft-
ir skaltu kíkja á Cold Case og
svo er gott að enda sjónvarps-
glápið á Twenty Four.
Drykkur: Losaðu lík-
amann við öll aukaefni og
hreinsaðu líkamann að
innan með Suttunga-
mjöður frá Jurta-
apótekinu. Duftinu
er blandað í heitt
vatn og drukkið eins
og te. Eftir tvær vik-
ur áttu að finna
verulegan mun á
þér og líða miklu
betur.
Afþreying: Að
spila á spil er
alltaf jafn góð
afþreying. Sláðu
upp kleppara-
keppni í góðra
vina hópi
meðan þið gæðið ykkur á
krembrauði og appelsíni í
flösku.
Matreiðslan: Hugsaðu
um heilsuna og eldaðu
hollan skyndibita heima
fyrir. Settu rauða spagetti-
sósu út á speltpasta og
hafðu nóg af klettasalati til
hliðar. Þetta er alveg herra-
mannsmatur og tekur ekki
meira en tíu mínútur að út-
búa.
velurF2
150.000 kr.
AUKAHLUTAPAKKI
Dráttarbeisli og vetrardekk fylgja
öllum Nissan X-Trail jeppum sem
keyptir eru í janúar 2005.
NISSAN X-TRAIL
34.653 kr. á mán.*TILBO‹SVER‹ 2.990.000 kr.
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is
SKIPT_um væntingar
SKIPT_um gír
JANÚARTILBO‹ Á NISSAN
Velgengni sakamálahöfundarins Arn-
alds Indriðasonar virðist engan endi
ætla að taka. Ekki er nóg með að nýjas-
ta bók hans, Kleifarvatn, hafi slegið Ís-
landsmet í sölu, heldur eru Napóleons-
skjölin búin að koma sér fyrir í öðru sæti
þýska kiljulistans. Bókin sem kom út
fyrir tveimur vikum síðan, og skaust þá
beint í 25. sætið, er nú hástökkvari vik-
unnar.
Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskur
höfundur eða bók kemst svo hátt á
þýska listanum, en bókin segir frá flug-
vélabraki sem finnst á Vatnajökli og at-
burðarrás í kringum það, og kemur
meðal annars bandaríski herinn mikið
fyrir í bókinni.
F y r s t a
upplagið var
gefið út í 120
þúsund ein-
tökum, og
selst hún það
vel, að önnur
prentun er nú
komin í gang,
en þá verður
hún gefin út í
35 þúsund
e i n t ö k u m .
Þess má til
gamans geta,
að þegar Napóleonsskjölin komu fyrst
út hér á landi, þá seldist hún einungis í
900 eintökum, þannig að margt vatn
hefur runnið til sjávar síðan. Bókin hef-
ur einnig verið að fá frábæra dóma í
Þýskalandi, og mörgum gagnrýnendum
finnst hún vera jafnoki hinnar marg-
verðlaunuðu bókar Peters Høeg, Lesið í
snjóinn.
Þjóðverjar virðast kunna vel að meta
bækur Arnalds, því hann á einnig fyrra
metið, en bókin Grafarþögn komst í
sjöunda sæti listans í fyrra. Síðar á þessu
ári munu koma út fjórar bækur eftir
Arnald, þar á meðal Kleifarvatn sem
Þjóðverjar gleypa örugglega við, enda
gerist bókin að nokkru leyti í gamla
Austur-Þýskalandi.
En það er ekki nóg með að Arnald-
ur sé að leggja undir sig glæpasögu-
markað Þýskalands, því Grafarþögn
hefur verið að fá frábæra dóma í dönsk-
um blöðum og situr hún í sjötta sæti á
danska listanum. Þá er og einnig búið
að selja kvikmyndaréttinn að bæði
Napóleonsskjölunum og Mýrinni.
Ísland er ekki á listanum, það er að segja
yfir þau lönd sem eitt stærsta rokkband
heimsins, U2, ætlar að heimsækja og
spila fyrir. Hljómsveitin gaf í fyrra út
diskinn How to Dismantle an Atomic
Bomb og var sveitin nýverið tilnefnd til
þriggja Grammy-verðlauna fyrir lagið
Vertigo.
Samkvæmt tónleikaskipulagi hljóm-
sveitarinnar sem birtist á heimasíðu
hennar, er ekki áætlað að hún komi
hingað til landsins eins og vonir stóðu
til. Hvorki Ingvar Sverrisson né Kári
Sturluson sem heyrst hefur að hafi reynt
að fá sveitina hingað til lands vildu láta
neitt eftir sér hafa.
U2 verður í Skandinavíu í endaðan
júlí og spilar meðal annars í Ósló 27. júlí
og Parken í Kaupmannahöfn 31. júlí
sem hefði verið tilvalinn tími til þess að
koma hingað en tónleikaplanið er nokk-
uð þétt hjá hljómsveitinni, og erfitt
verður að troða eins og einni Íslandsför,
þar inn. Reyndar myndast smá hola,
þegar hljómsveitin lýkur tónleikaferð
sinni í Bandaríkjunum og í ljósi þess að
margir tónlistarmenn hafi áður millilend
hér, skyldi ekki útiloka alla möguleika á
komu írsku risana þótt þeir fari óneitan-
lega dvínandi.
F2 alltaf í
Fréttablaðinu
á fimmtudög-
um.
Útgefandi
Frétt hf.
Ritstjórn
Jón Kaldal
Höfundar efnis í þessu hefti
Borghildur Gunnarsdóttir, Freyr
Bjarnason, Freyr Gígja Gunnarsson,
Guðmundur Hörður Guðmundsson,
Kristján Hjálmarsson, Marta María Jónas-
dóttir og Sigríður D. Auðunsdóttir.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Aðalsími: 550 5000
Netfang: f2@frettabladid.is
Auglýsingar Auglýsingadeild Frétta-
blaðsins, Jón Laufdal, Einar Logi Vignis-
son, Ólafur Brynjólfsson.
Forsíðan
Ingibjörg Sólrún, sjá viðtal bls. 8.
Ljósmynd: Hari
Þetta og
margt fleira
02 Arnaldur leggur Þýskaland
að fótum sér
04 Rafmögnuð Hvalfjarðargöng
06 Göturnar í lífi Eddu Sverrisdóttur
08 VIÐTAL
Er tilbúin
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ræðir
við Sigríði D. Auðunsdóttur
10 ÚTTEKT
Þingmenn gerast
yfirstétt
Guðmundur Hörður Guðmunds-
son skoðar nýleg eftirlaunalög
Alþingis
12 Hnakkarnir hnupla hráa stílnum:
Allir vilja vera rokkarar
14 Jón Reykdal myndlistarmaður gef-
ur uppskrift að frönskum klassíker
16 3 dagar: Það sem ber hæst um
helgina
18 Pönkarar og diskóliðið í sömu
bókinni og Loftvog frægðarinnar
Stephan Stephensen og Jóhann Jóhannsson ■ Göturnar í lífi Eddu Sverrisdóttur í Flex ■ Skíðað niður Kaldbak
Pönk/diskó á bók ■ Matgæðingurinn Nanna Rögnvaldardóttir ■ Franskur klassíker
F24. TBL. 2. ÁRG. 27. 1. 2005
Eftirlaunafrumvarpið
Stríðshanskanum var kastað
Hnakkarnir
hertaka
rokklúkkið
Ætlar ekki að sitja á
varamannabekknum
Ingibjörg
Sólrún
Arnaldur malar gull
Napóleonsskjölin í annað sætið
Verður ekkert af komu U2 til Íslands?
Landið ekki á listanum
Arnaldur Indriðason
Gerir það gott bæði í Þýskalandi og Danmörku
Gletcher Grab
Betur þekkt sem Napó-
leonsskjölin selst gífur-
lega vel í Þýskalandi.
Bono og félagar í U2
„Samkvæmt heimasíðu hljómsveitarinnar gerir hún
ekki ráð fyrir að stoppa hér á landi“