Fréttablaðið - 27.01.2005, Qupperneq 31
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 7
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 126 stk.
Keypt & selt 25 stk.
Þjónusta 34 stk.
Heilsa 7 stk.
Skólar & námskeið 2 stk.
Heimilið 8 stk.
Tómstundir & ferðir 6 stk.
Húsnæði 12 stk.
Atvinna 29 stk.
Tilkynningar 2 stk.
Góðan dag!
Í dag er fimmtudagur 27. janúar,
27. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 10.22 13.41 17.00
AKUREYRI 10.22 13.25 16.30
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
„Það sem mér finnst ómissandi í fataskápn-
um mínum eru gullskórnir mínir. Þetta eru
balletskór sem ég fékk í afmælisgjöf frá
foreldrum mínum en þau keyptu þá í Kron
á Laugaveginum. Mig var búið að langa í
þessa skó mjög lengi og ég fékk þá rétt áður
en ég ferðaðist til Belgíu. Síðan er svo
skemmtileg að ég hef notað þessa skó í fullt
af listaverkum sem ég hef unnið. Þetta eru
því meira en skór, en ég geng líka mikið í
þeim. Þeir búa yfir fjöldamörgum góðum
minningum,“ segir Ásdís.
Ásdís opnaði sýningu sína í Gallerí
Humar og Frægð föstudaginn 21. janúar
en sýningin stendur til 18. febrúar. Þar
koma skórnir góðu við sögu. „Ég er aðal-
lega með vídeóverk en á sýningunni eru
fimm vídeó sem ég hef verið að gera síð-
astliðið ár. Það eru nokkur þemu í verkun-
um og þetta eru eins og fimm kaflar af
sama verkinu. Gullskórnir eru einmitt í
einu verkinu,“ segir Ásdís og greinilegt að
þessi afmælisgjöf er henni afskaplega
kær. ■
Meira en skór
ferdir@frettabladid.is
Ferðafiðringurinn eykst í réttu
hlutfalli við sólina sem hækkar
á lofti. Hjá
Ferðaskrif-
stofu stúdenta
hafa Interrail-
lestarkort
aldrei verið
vinsælli en
þau gilda fyrir
alla sem hafa
búið á Íslandi
síðustu sex mánuði. Evrópu er
skipt í átta ferðasvæði og hægt
er að velja um kort sem gildir
fyrir eitt svæði, tvö eða öll
svæðin. Kortið gildir í 22 daga.
Útivist stendur fyrir jeppaferð í
Kerlingarfjöll um helgina. Hald-
ið er af stað á föstudagskvöldi
og ekið í Hrauneyjar. Á laugar-
daginn er ekið um Sóleyjar-
höfðavað, inn í Setur og áfram
í Kerlingarfjöll. Ferðatilhögun á
heimleiðinni fer eftir færð og
veðri. Þetta er ferð fyrir mikið
breytta jeppa og þátttaka háð
samþykki fararstjóra. Í jeppa-
ferðum Útivistar þurfa þátttak-
endur að vera með VHF tal-
stöð, en hægt er að leigja þær
á skrifstofu Útivistar um helgina
fyrir 3.700 krónur.
Kúba er spennandi áfangastað-
ur og nú er hægt að komast
þangað í beinu flugi með
Heimsferðum 6. mars. Gamla
Havana er fögur borg og lífs-
gleði eyjaskeggja er einstök.
Þrír valkostir í gistingu eru í
boði.
Octopustravel býður nú í sam-
starfi við Úrval Útsýn upp á að
bóka gististaði og skoðunar-
ferðir um allan heim, en þjón-
ustan er greidd í íslenskum
krónum. Octopustravel er
ferðaþjónustufyrirtæki með
skrifstofur í London, New York,
Sydney, Osaka og Hong Kong.
Fyrirtækið hefur látið skrifa
ferðahandbækur um 260 vin-
sælustu áfangastaðina og vef-
svæðið
þeirra, sem
er allt á
ensku, hef-
ur verið
hannað
með það
fyrir augum að vera einfalt og
þægilegt fyrir hvern sem er og
auðvelt er að finna og bóka
gistingu við hæfi. Greinargóðar
lýsingar eru á öllum gististöð-
um, auk þess sem flestir eru
myndskreyttir. Jafnframt er
staðsetning gististaða á vinsæl-
ustu áfangastöðunum sýnd á
korti.
Golfpakkarnir frá GB Ferðum
og Iceland Express eru komnir í
sölu. Boðið er
upp á þriggja
og fimm daga
golfferðir til
London en
verð er frá
41.700 krónum. Innifalið er
flug til Stansted, helgargisting,
golf og aðgengi að heilsulind
hótelsins. Nánar á vef GB
Ferða, www.gbferdir.is
Ásdís heldur mikið upp á
skóna sem hún fékk frá for-
eldrum sínum.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í ferðum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA TÍSKA TILBOÐ o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Þegar systir mín
situr hinum
megin við borðið
er hún þá af
gagnstæðu kyni?
Flott föt í skíðaferðina
BLS. 5
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Ásdís Sif Gunnarsdóttir er 28 ára listakona sem flutti heim til Íslands í vor og
er ekki í vafa um hvað hún heldur mest upp á í fataskápnum.
Lituð tæki lífga upp
Víða leynast litskrúðug heimilistæki.
Heimilistæki geta verið hin
mesta prýði. Þótt sumir vilji
einungis hafa hvít, svört eða
krómuð tæki í eldhúsinu þá
eru þeir líka til sem aðhyllast
litskrúðugri hluti og finnst
þeir lífga upp á heimilið. Við
litum inn í nokkrar raftækja-
verslanir og könnuðum
lauslega úrval litaðra
tækja og þótt þau hvítu og
krómuðu séu í miklum meiri-
hluta á markaðinum þá fyrir-
finnast líka heimilistæki
bæði í sterkum, glaðlegum
litum og daufum pastellitum.
Myndir af fleiri tækjum er
að finna á blaðsíðu 3.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA