Fréttablaðið - 27.01.2005, Side 32
Guðrún Gerður Guðrúnardóttir er sjálfmenntuð
listakona sem kallar sig Gaga Skordal. Fyrir
stuttu síðan opnaði hún skransölu í Skipholti
29a í Reykjavík þar sem hún selur allt milli him-
ins og jarðar.
„Ég sel hluti sem fólk hefur gefið mér og það eru al-
deilis margir sem hafa styrkt mig. Maðurinn minn,
hann Viggó Guðmundsson, vill til dæmis losa sig
við dót sem hann á svo börnin hans þurfi ekki að ríf-
ast um það eftir hans tíma,“ segir Guðrún og skelli-
hlær enda lífsglöð og hress.
„Verðið er afar sanngjarnt, allt frá tíu krónum
og upp úr. Síðan er alltaf hægt að prútta því ég veit
að ef ég fer á svona sölur þá reyni ég alltaf að
prútta. Maður á alls ekki að vera feiminn við það
svo lengi sem allir eru ánægðir. Ég er með lampa og
húsgögn og eiginlega allt sem hægt er að láta sér
detta í hug og það er alltaf eitthvað nýtt að detta
inn,“ segir Guðrún en stemmingin í skransölunni er
engu lík. Í öðrum hluta húsnæðisins er salan en í
hinum er Guðrún búin að koma sér upp vinnuað-
stöðu þar sem fólk getur litið inn og skoðað húfurn-
ar, peysurnar og pilsin sem hún hefur verið að
hanna.
Guðrún lenti í alvarlegu bílslysi í nóvember árið
2002 og hefur síðan verið öryrki. „Ég gat eiginlega
ekki ráðið mig í vinnu hjá öðrum því ég þarf alltaf
að hvíla mig eitthvað á hverjum degi. Þá voru nú
góð ráð dýr – eða ódýr og þá datt mér í hug að byrja
með þessa skransölu. Ég er algjör jarðýta og ég get
hreinlega ekki setið aðgerðalaus. Ég ætlaði að opna
gallerí í þessu húsnæði því ég er að hanna húfur og
skúlptúra en veit ekki hvenær verður úr því. Húf-
urnar mínar hafa til dæmis verið seldar til Kanada
og voru mjög vinsælar á Víkingahátíðinni í Hafnar-
firði. Mig langar líka að virkja listamenn sem eru
sjálflærðir eins og ég og eru að gera góða hluti úti
um allan bæ. Þangað til það gerist prófa ég skran-
söluna,“ segir Guðrún en hún opnaði söluna um
miðjan mánuðinn. „Ég finn að þetta er að rúlla af
stað. Fólk tekur vel í þessa hugmynd og það er mik-
ið hringt í mig og spurt um einstaka hluti. Ef þetta
verður mikið stuð þá held ég áfram í nokkrar helg-
ar þó ég sé ekkert búin að ákveða hvað ég ætli að
hafa söluna lengi opna. Það verður bara að koma í
ljós.“
lilja@frettabladid.is
Saumur og merking er verslun og
þjónustufyrirtæki sem opnaði í
Smáralind rétt fyrir jólin en var
áður til húsa í Hafnarfirði. Versl-
unin sem er í eigu Önnu Guð-
mundsdóttir sérhæfir sig í per-
sónulegri gjafavöru eins og brúð-
argjöfum, skírnargjöfum og
sængurgjöfum.
Mest áberandi eru handklæði
með ísaumuðum nöfnum eða
myndum og ísaumaður sængur-
fatnaður, en þessar vörur hafa
verið hvað vinsælastar af annars
ágætu úrvali af barnafatnaði,
flísteppum, bolum og húfum.
Fyrir utan ísauminn er boðið
upp á áprentaðar myndir á flíkur
svo ef mann vantar persónulegar
gjafir með litlum fyrirvara og
lágum tilkostnaði er tilvalið að
koma við í Saumi og merkingu og
kíkja á úrvalið. ■
Viskustykki
Tilvalin leið til að lífga upp á gamla eldhúskolla er að bólstra þá með fallegum
viskustykkjum. Til verksins þarftu heftibyssu, skæri, skrúfján og jafnvel nýjan
svamp á setuna. Losaðu gamla efnið af og festu nýtt á með heftibyssunni.[ ]
LISTASMIÐJAN
KERMIK OG GLERGALLERÝ
Kothúsum, Garði , s: 422-7935
Opið alla daga: Mánudaga- föstudaga 10-18
Laugardaga og sunnudaga 13-18
Námskeið að hefjast í glerbræðslu og
keramikmálun. Einnig fyrir hópa
BLÓMÁLFURINN
Vesturgötu 4 sími 562 2707
Íslandsmeistari
í blómaskreytingum
Mikið úrval
af viðarörnum og
eldstæðum
Arinbúðin
Stórhöfða 17 v/Gullinbrú (fyrir neðan húsið)
Sími 567 2133 · www.arinn.is
Iris
181.000 kr.
Dina
239.000 kr.
Með Fréttablaðinu
alla fimmtudaga
Vi› segjum fréttir
Kringlunni - sími : 533 1322
20% afsláttur
af listgleri
vandaðar heimilis
og gjafavörur
Skransala með sál
Guðrúnu Gerði datt það snjallræði í hug að opna skransölu eftir að hún
lenti í alvarlegu bílslysi en hér ber hún eina af húfunum sem hún hannar.
Persónulegar gjafir
Ísaumur og áprentun í Saumi og merkingu
Handklæðin kosta frá 1500-1990 kr. með merkingu.
Úrvalið á skransölunni er óneitanlega mikið og margar gersemar
sem leynast þar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Flísteppi 3.900 kr. með merkingu.
Barnasmekkur 750 kr. með merk-
ingu. Barnasængurföt 3.500 kr. með
merkingu.