Fréttablaðið - 27.01.2005, Side 58
26 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Við hrósum...
... Gunnari Þór Gíslasyni og félögum hans í stjórn enska 1. deildarliðsins Stoke City, en félagið er það eina
sem falast hefur formlega eftir starfskröftum vandræðagemlingsins Craig Bellamy hjá Newcastle. Fjárhagur
Stoke hefur verið bágur undanfarin ár en ekki ber á öðru en að rofa sé til í þeim efnum, enda Bellamy með
fimm milljónir króna í vikulaun hjá Newcastle og er verðlagður á tæpan milljarð króna. Ekki er búist við
að Bellamy sé áhugasamur en Gunnar Þór fær engu að síður toppeinkunn fyrir viðleitni.
„Ég er konungur útlaganna hjá
Liverpool og hvað félagið varðar
er ég ekki til.“
Stephane Henchoz er á leið til Celtic og vandar
forráðamönnum Liverpool ekki kveðjurnar.sport@frettabladid.is
Það liggur við að manni finnist það
vera hálfgerður ósigur að vinna ekki
Kúvæt stærra en þetta. Stemningin í
liðinu olli mér vonbrigðum upp á fram-
haldið að gera. Ég hefði viljað sjá mun
meira koma út úr þessum leik svo
þetta yrði eins og góð æfing fyrir þessa
tvo erfiðu leiki sem við eigum fyrir
höndum, Alsír og Rússland, sem
skipta okkur gríðarlegu máli.
Leikurinn nýttist engan veginn
sem slíkur og mér fannst þeir
le ikmenn
sem ekki
hafa spilað
mikið ekki
koma nógu vel
stemmdir í leikinn.
Svo var ýmislegt í uppstilling-
unni sem kom mér töluvert á
óvart. Mér þótti hálfeinkenni-
legt að Birkir Ívar fengi ekki að
byrja leikinn, búinn að sitja tvo
leiki á bekk. Í staðinn kemur
Hreiðar beint af pöllunum í byrjunar-
liðið. Það hefði verið eðlilegra að Birk-
ir hefði byrjað leikinn. Þriðja leikinn í
röð kemur hann inn á þegar eru 15-20
mínútur eru eftir.
Ég hefði viljað sjá leikinn nýtast sér-
staklega hvað varnarleikinn snertir því
hann er búinn að vera viss höfuðverkur
í þessari keppni. Útkoman úr þessum
leik sýndi ekki mikil batamerki á hon-
um, því miður. Það getur verið erfitt að
bjarga því á einni nóttu en það sem
vantar fyrst og fremst í varnarleikinn er
skipulag og vinnureglur. Þetta er ekki til
staðar, sem gerir það að verkum að
menn eru bara ekki nægilega klárir á
því hvernig eigi að bregðast við því
þegar ákveðnar stöður koma upp.
M e n n
tóku þessum
leik full
kæruleysi-
lega og
mér finnst
við ekki
hafa efni
á því. Oft var
spilamennskan eins og
menn hefðu engan
áhuga á handbolta og
það skil ég ekki sérstak-
lega þar sem mikið er
um ferska og unga leik-
menn.
Hálfgerður ósigur
HM Í HANDBOLTA Það var eflaust
ekki auðvelt að mæta í El Menzah
„frystihúsið“ í leik gegn arfaslöku
liði Kúvæt eftir slæmt tap gegn
Slóvenum. Það voru fleiri örygg-
isverðir en áhorfendur að horfa á
leikinn og hitinn þar að auki undir
fjórum gráðum. Með öðrum orð-
um var skítkalt í húsinu. Það
gengur því hér með undir nafninu
Frystihúsið.
Eftir að hafa lullað í gegnum
leikinn í fyrsta gír stigu strákarn-
ir á bensínið undir lokin og klár-
uðu leikinn með níu marka sigri,
31-22. Skylduverkefni lokið á
sómasamlegan hátt en það var
engu að síður lítill glæsibragur á
leik íslenska liðsins.
Sömu sögu má reyndar segja
af slökum pólskum dómurum sem
leyfðu Kúvætum að spila ansi
langar sóknir oft á tíðum og það
hafði sín áhrif á leikinn. Engu að
síður er algjör óþarfi að láta þetta
lið skora 22 mörk hjá sér.
Það er erfitt að gagnrýna leik-
menn eftir svona leik. Hann skipt-
ir í raun litlu máli, andstæðingur-
inn er mjög slakur og leikmenn
vita að það er nánast ekki hægt að
tapa honum. Þeir eru of góðir til
þess og svo eru það einfaldlega
stigin sem skipta máli á endanum.
Þrátt fyrir það hefði maður
gjarnan viljað sjá meiri áhuga,
grimmd og vilja hjá strákunum til
þess að klára þennan leik al-
mennilega. Það veitti ekki af ein-
hverju skemmtilegu til þess að
ylja fólkinu sem var að krókna úr
kulda í stúkunni.
Einar Hólmgeirsson leit aug-
ljóslega á þennan leik sem góða
æfingu fyrir sjálfan sig og tók
hraustlega á því. Skoraði fín mörk
en yfirgaf völlinn skaddaður á
auga eftir að hafa fengið veglegt
olnbogaskot frá leikmanni Kúvæt,
sem var hent í sturtu fyrir vikið.
„Þetta var mjög gott fyrir mig
persónulega og ég fann mig
ágætlega. Það er pínu ryk í mér
og ég hefði viljað skora fjögur
mörk í viðbót enda klúðraði ég
dauðafærum sem ég er vanur að
klára. Olnboginn sem ég fékk var
ansi vænn en ég er úr Skagafirði
þar sem einn olnbogi þykur
ekkert stórmál,“ sagði Einar eftir
leikinn og hló.
Hreiðar Guðmundsson varði
vel í fyrri hálfleik og Birkir Ívar
hrökk í gírinn undir lokin. Aðrir
voru á pari eða undir pari. Liðið
fékk þó góða æfingu til þess að
hrista af sér vonbrigðin gegn
Slóvenum. Þeir fá svo frí í dag til
þess að búa sig undir leikinn mik-
ilvæga gegn Rússum, sem getur
skorið úr um það hvort Íslend-
ingar fara heim eftir helgi eða
komast í milliriðil.
henry@frettabladid.is
EINAR HÓLMGEIRSSON Örvhenta stórskyttan fór mikinn gegn Kúvæt í gærkvöld og
skoraði 8 mörk áður en hann þurfti að fara af leikvelli vegna meiðsla.
Fréttablaðið/Andreas Waltz
Skylduverkefni lokið
Íslenska landsliðið í handknattleik kláraði skyldusigur gegn Kúvæt á hálfum hraða í gærkvöld. Nú getur
liðið einbeitt sér að Rússaleiknum sem fram fer annað kvöld.
GEIR SVEINSSON
SÉRFRÆÐINGUR FRÉTTABLAÐSINS
SPÁÐ Í SPILIN
ÍSLAND MÆTTI KÚVÆT Á
HM Í HANDBOLTA Í
TÚNIS Í GÆR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
24 25 26 27 28 29 30
Fimmtudagur
JANÚAR
■ ■ LEIKIR
19.15 Skallagrímur og
Hamar/Selfoss mætast í
Intersportdeildinni í körfubolta.
19.15 Fjölnir og KR mætast í í
Intersportdeildinni í körfubolta.
19.15 Haukar og Snæfell mætast í
Intersportdeildinni í körfubolta.
19.15 Keflavík og KFÍ mætast í
Intersportdeildinni í körfubolta.
19.15 Tindastóll og ÍR mætast í
Intersportdeildinni í körfubolta.
19.15 Fram og Grótta/KR mætast í
1. deild karla í handbolta.
19.15 Selfoss og FH mætast á
Selfossi í 1. deild karla í handbolta.
20.00 Afturelding og Stjarnan í 1.
deild karla í handbolta.
■ ■ SJÓNVARP
15.15 HM í handbolta á RÚV.
Útsending frá leik Íslands og Kúvæt
á HM í handbolta.
17.30 Þrumuskot á Skjá einum.
19.45 Bandaríska mótaröðin í
golfi á Sýn.
20.15 Þú ert í beinni! á Sýn.
21.00 NFL-tilþrif á Sýn.
21.30 Sterkasti maður heims
2004 á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.