Fréttablaðið - 27.01.2005, Síða 60

Fréttablaðið - 27.01.2005, Síða 60
27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR Mánudagurinn átti víst að vera versti dagur ársins. Ein- hver breskur pró- fessor var búinn að reikna það, út frá ýmsum breytum. Þar skipti veðrið máli, að það var mánudag- ur, fjöldi daga frá jólum, fjöldi daga þar til þarf að greiða jólavísareikn- inginn. Án þess að hafa nokkurt af þessu í huga ákvað ég sjálf, með eigin útreikningi, að fyrir mig var mánudagurinn versti dagur ársins. Þetta átti að vera svo indæll dag- ur. Ég var í fríi í vinnunni. Dóttir mín var í fríi í skólanum. Nota átti tækifærið og gera eitthvað skemmtilegt, því það gerist ekki oft að það sé frí hjá okkur báðum á virkum degi. Þess í stað lá ég undir sæng mestallan daginn, svaf, át verkjatöflur, drakk te og bölvaði ansvítans flensunni. Svona þegar ég hafði rænu til. Þrátt fyrir mikið C- vítamínát (sem sagan segir að eigi að bjarga öllu í kvefi, þrátt fyrir að læknar vilji ekki kannast við slíkt) fannst mér eins og himinn og jörð væru að farast og þóttist eiga mikið bágt. Að gera eitthvað skemmtilegt í marga daga getur verið í lagi. En það sem er leiðinlegt á aldrei að endast lengur en í einn sólarhring í mesta lagi. Því varð ég fyrir mikl- um vonbrigðum með að ég gæti ekki orðið stálslegin næsta dag. Spáin um versta dag ársins hlýtur bara að hafa átt að gilda fyrir einn dag. Annars hefði spáin verið köll- uð „Verstu dagar ársins“ eða „Versta vika ársins“. Sérfræðingur- inn í Bretlandi hafði því rangt fyrir sér. Það má kannski bara telja þetta óheppni fyrir mína parta að veikj- ast allt í einu þennan „versta dag ársins.“ Hefur líklega eitthvað að gera með það að ég hafi hitt ein- hvern sem var að fá flensuna fyrir viku eða svo. Mér þykir þó skemmtilegra að taka spána per- sónulega, eins og hún hafi verið sérhönnuð fyrir mig. En eins og með aðra góða spámenn sá maður- inn bara ekki fyrir að dagurinn myndi breytast í daga, þó vonandi yrði það ekki að viku eða vikum. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA SVANBORG SIGMARSDÓTTIR TEKUR ALÞJÓÐASPÁDÓMA TIL SÍN Versti dagur ársins M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Mamma mín! Elsku besta mamma mín! Ég hef þekkt þig alla ævi! Ég ætla að vera með þér alla ævi! Alla ævi! Það er eitt- hvað skrýtið við þetta! DAG- MAMMA ...og eina ráðið sem ég kann er að gefa honum næringu til að takast á við hana. Appelsínu, átti það ekki að vera jarðarberja? Elskan mín, stærðfræðin hans Palla er þung... Júbb! Bað Palli þig ekki um að hjálpa sér með lærdóminn? Hvers vegna ertu þá í eldhúsinu að smyrja marmelaðisamlokur? Kvik- mynda- stjörnu- koss Færri bíó- myndir, fleiri bækur! Samþykkt Úff – hafið þið heyrt það? Það er til listi yfir dýr í útrýmingarhættu! Eru litlar mjóar kisur með stórar nasir á þessum lista? Fílar, górillur, pöndur, svartir nashyrningar, snjóhlébarðar, ernir, tígrisdýr... Í alvöru S M Á R A L I N D Sími 517 7007 NÚ ENN MEIRI AFSLÁTTUR! 50-70%

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.