Fréttablaðið - 27.01.2005, Side 61
Leikir gerðir eftir kvikmyndum
eru ansi misjafnir að gæðum og oft
bara einn liður í gróðaöflun fyrir-
tækis á vörumerki. Fight Club
kemur á markað fimm árum á eft-
ir myndinni, sem er í sjálfu sér
sérstakt og því var ég spenntur að
sjá hvað kapparnir hjá Genuine
games væru með í höndunum.
Leikurinn er að sjálfsögðu
slagsmálaleikur með karakterum
úr myndinni og kunnuglegum
staðsetningum eins og bílastæða-
planinu, barkjallaranum og hjá
húsi Tylers við Paper Street.
Fight Club býður upp á nokkra
spilunarmöguleika eins og
„arcade“, „survival“, „Story
Mode“ og „Practice“. Spilarinn
getur hannað sinn eigin karakter
og þjálfað hann upp með nýjum
brögðum og styrkleikapunktum
sem fást með stigum úr sigrum.
Það fyrsta sem ég tók eftir var
að aðal karakterarnir úr myndinni
þeir Tyler og Jack eru alls ekkert
líkir leikurunum Brad Pitt og Ed-
ward Norton, hvorki andlitin, lík-
amsburðir eða talmálið. Það rýrir
leikinn raunveruleikagildi sínu,
sem er miður.
Í „story mode“ leiksins þarf
spilarinn að klára verkefni sem
snúast um barsmíðar og er
sögufléttan keyrð áfram með
stillimyndum og tali. Spilarinn
kemst inn í Fight Club og þarf að
klífa upp metorðastigann innan
klúbbsins. Nokkrir góðir punktar
á ferðinni þar en heildin er
óspennandi.
Grafíkin í leiknum er alveg
ágæt með skemmtilegri útfærslu
þar sem andstæðingurinn breytist
í beinagrind þegar spilarinn nær
að beinbrjóta hann þannig að brot-
ið sést greinilega. Einnig verða
karakterarnir blóðugir eftir mikl-
ar barsmíðar og blóðgusurnar
slettast á sjónvarpsskjáinn og
mynda hrottalega framsetningu.
Umhverfið er frekar einhæft og
líka karakterarnir í hreyfingum
sínum.
Tónlistin úr myndinni passar
vel inn í leikinn og skapar nauð-
synlegt andrúmsloft frá Dust
Brothers og rokksveitunum
QOTSA, Korn og Limp Bizkit.
Í heildina litið er leikurinn und-
ir pari og slagsmálahundar ættu
að leita á önnur mið ef þeir vilja
alvöru slagsmálaleik. franzgunnarsson@hotmail.com
29FIMMTUDAGUR 27. janúar 2005
Subaru Impreza Sedan 1.990.000
2.160.000
Subaru Impreza Station
Ver› frá: 2.340.000 kr.
Ver› á mán: 27.776 kr.*
Ver› á›ur frá
Ver› nú frá
23.052,-*
170.000
Hagstætt gengi og gó›ar a›stæ›ur gera okkur kleift a›
bjó›a Subaru á stórlækku›u ver›i. N‡ttu flér einstakt
tækifæri á›ur en gengi› hækkar á n‡. Subaru Impreza er
búinn mörgum kostum jeppa: hann er fjórhjóladrifinn,
sterkbygg›ur og geysilega öflugur. A› auki er hann eini
fjórhjóladrifni bíllinn í flessum flokki sem b‡›st sjálfskiptur.
Komdu og kynntu flér Subaru – og njóttu betra gengis!
Brad Pitt og Jennifer Anistonætla að halda áfram með fram-
leiðslufyrirtæki sitt Plan B Entertain-
ment þrátt fyrir að hafa hætt saman
á dögunum. Fjölmargar kvikmyndir
voru í burðarliðnum hjá fyrirtækinu
áður en þau slitu samskiptum, þar á
meðal Charlie and the Chocolate
Factory með Johnny
Depp í aðalhlut-
verki, og verður
þeim haldið til
streitu. Ekkert
verður hins vegar
úr því að þau
leiki saman í
myndunum A
Time Traveller’s
Wife og A
Mighty Heart
eins og til stóð.
Leikarinn Christian Slater hefurvísað á bug fregnum um að
brjálaður maður hafi ætlað að
stinga hann til bana í London fyrir
skömmu. Hann segist aldrei hafa
verið í hættu.
Bresk blöð
héldu því
fram að líf-
vörður Slaters
hefði bjargað
lífi hans með
því að stökkva í
veg fyrir mann-
inn, en svo virðist
sem um upp-
spuna hafi
verið að
ræða.
Faðir leikkonunnarNicole Kidman
hefur grátbeðið ljós-
myndara og frétta-
menn um að láta
hana í friði. Föðurn-
um ofbauð þegar
hann frétti af hlerun-
arbúnaði sem var
komið fyrir við heim-
ili Kidman í Ástralíu.
„Hún hefur nánast
verið eins og fangi í
eigin húsi vegna
þess að fólk vill sí-
fellt taka af henni
myndir og hitta
hana. Ég yrði mjög
ánægður ef hún fengi
að vera í friði.“
Enn ein kvikmyndin gerð eftir tölvu-leik er væntanleg á hvíta tjaldið. Í
þetta sinn er það hryllingsleikurinn
Alone in the Dark sem er viðfangsefni
Hollywood og er það fyrirtækið Lions-
gate sem gerir myndina. Christian
Slater leikur yfirnáttúrulega rannsókn-
armanninn Edward Carnby sem með
hjálp mannfræðingsins Aline Cedrac
(Tara Reid) flækist inn í undarlegt mál
á Shadow Island. Stephen Dorff leikur
einnig í myndinni sem er gerð af Uwe
Boll (House of the Dead) og Elan
Mastai, Michael Roesch og Peter
Scheerer. Frumsýning myndarinnar í
Bandaríkjunum er 28. janúar.
FRÉTTIR AF FÓLKI
TÖLVULEIKJA FRÉTTIR
TÖLVULEIKJA FRÉTTIR
Sony Computer Entertainment í Evr-ópu kynnir væntanlega útgáfu á
EyeToy: AntiGrav, einstökum og
skemmtilegum
leik sem nýtir
áður óþekkta
EyeToy-tækni.
Leikurinn er
gerður sérstak-
lega fyrir
PlayStation2 af
fyrirtækinu Harmonix. Leikurinn er þrí-
víddarhasarleikur þar sem EyeToy-tækn-
in læsir sig á ákveðna líkamsparta, fylgir
hreyfingum þeirra og nýtir þær til að
stýra leiknum. Einfaldar líkamshreyfingar
gera leikmönnum kleift að að stýra per-
sónu leiksins í þessum skemmtilega
„extreme“ íþróttaleik með dúndrandi
undirspili frá sveitinni Apollo 440. Í
leiknum EyeToy: AntiGrav eru tveir spil-
unarmöguleikar, annar sem snýst um
hraða, en þar keppa leikmenn við aðra
keppendur og er markmiðið að koma
sem fyrst í mark, hinn möguleikinn
snýst um stíl, og þar er markmiðið að
gera sem flottastar brellur og ná sem
flestum stigum. Fyrsti stóri EyeToy-leik-
urinn er væntanlegur á PlayStation 2 í
mars.
Slagsmálaklúbburinn ógurlegi
LEIKJABÚNAÐUR: XBOX
FRAMLEIÐANDI: GENUINE GAMES
ÚTGEFANDI: VIVENDI UNIVERSAL
NIÐURSTAÐA: Slagsmálaleikur gerður eftir
þessari vinsælu kvikmynd. Ansi blóðugur með
nokkrum góðum punktum. Gallarnir skína í
gegn og hann nær ekki að hasla sér völl sem
forsprakki slagsmálaleikja. Aðeins fyrir allra
hörðustu aðdáendurna.
[ TÖLVULEIKUR ]
UMFJÖLLUN