Fréttablaðið - 27.01.2005, Qupperneq 62
30 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Í spilaranum hjá ritstjórninni
Tony the Pony: Ípí, Can: Future Days, Trabant:
Ónefnd ný plata, The Vines: Winning Days og
The Mars Volta: Francis the Mute.
Benedikt Reynisson
í Smekkleysubúðinni
„Ég fékk nýlega í hendurnar frábæra
plötu með 22 ára náunga sem heit-
ir Micah P. Hinson og heitir hún
Micah P. Hinson & The Gospel of
Progress. Þetta er fyrsta plata hans
og er hún framúrskarandi góð,
skemmtileg og tregafull blanda af
þjóðlagatónlist og indípoppi í anda
Lambchop, Will Oldham og jafnvel
Modest Mouse. Nýjasta sólóskífa
Lou Barlow úr Sebadoh og Folk
Implosion, EMOH, er einnig frábær
og að mínu mati hans besta í mörg
ár. Ég var að uppgötva frábæra
plötu með bandi sem heitir Hymie’s
Basement og er hún skemmtileg
blanda af hreinræktuðu indípoppi
og hip-hop. Einnig hef ég verið að
hlusta á safnplötu með reggae-
pródúsentnum Joe Gibbs sem er
frábær og aðra safnplötu sem heitir
New York Noise sem inniheldur frá-
bær leftfield-diskó-lög með Glenn
Branca, ESG, Bush Tetras o.fl. Síðast
en ekki síst hefur plata sem heitir „A
Rainbow in Curved Air“ með tón-
skáldi að nafni Terry Riley verið spil-
uð mikið heima.“
Ólafur Páll Gunnarsson,
forseti Popplands á Rás 2
„Ég hef nú aðallega verið að hlusta
á það sem ég hef verið með í
Rokklandi undanfarið, t.d. nýju U2
plötuna, Nancy Sinatra, Smile með
Brian Wilson og Razorlight. En
mestur tíminn undanfarið hefur far-
ið í að hlusta á alls kyns tónleika-
upptökur sem Rás 2 gerði á síðasta
ári með fólki eins og Tenderfoot,
Maus, Keane, Muse, Starsailor,
Eivöru Pálsdóttur, Placebo og Herði
Torfa til að nefna eitthvað.“
| Á HVAÐ ERU GRÚSKARARNIR AÐ HLUSTA? |
Ágúst Einarsson, prófessor við við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla
Íslands, trúir því að íslensk tónlist-
armenning geri meira fyrir þjóð-
félagið en margir vilji viðurkenna.
Hann skrifaði bók fyrir síðustu jól,
Hagræn áhrif tónlistar, sem við-
skipta- og hagfræðideild gaf út, og
eru niðurstöður hans nokkuð
magnaðar.
„Niðurstöðurnar komu mér á
óvart,“ segir Ágúst. „Ég hafði nú
samt alltaf haft á tilfinningunni að
menningin væri stór þáttur. Fram-
lag menningar til landsframleiðsl-
unnar er þrefalt meira en fram-
leiðni landbúnaðar.“
Sterkur tónlistarmarkaður
Um fimm þúsund manns hafa at-
vinnu af menningu á Íslandi. Þar af
starfa 1.200 manns við tónlistariðn-
aðinn, þar með taldir allir dag-
skrárgerðarmenn útvarpsstöðva,
útgefendur og þeir fáu tónlistar-
menn sem lifa af tónlist sinni. Það
eru álíka margir og starfa við land-
búnað. Hins vegar veltir tónlistar-
iðnaðurinn um 6,5 milljörðum á ári,
sem Ágúst segir mjög mikið.
Þótt aðeins 1.200 manns starfi
við tónlistariðnaðinn á Íslandi er
hann mun stærri. Í þeirri tölu eru
ekki taldir með áhugamenn, þó að
þeir og hljómsveitir þeirra hafi
gefið út fjölda platna í gegnum
árin. Áhugamenn teljast þeir sem
verða að vinna annars konar vinnu
með tónlistarsköpun sinni, sem
sagt þorri íslenskra tónlistar-
manna.
Ágúst bendir einnig á að hér á
landi eru um tólf þúsund manns í
tónlistarnámi og þúsundir sem
starfa í kórum. „Ég held að það
komi öllum á óvart hvað tónlistar-
iðnaðurinn er sterkur og öflugur,“
segir Ágúst. „Hann hefur ekki not-
ið sammælis hjá almenningi eða
stjórnvöldum. Það þyrfti að efla
þetta enn meira. Það gæti komið
fram í auknum stuðningi við tón-
listariðnaðinn. Byggja tónlistar-
hús, efla listmenntun í skólakerf-
inu og auka stuðning til útflutn-
ings. Menning er hluti af skapandi
atvinnugreinum, þær eru að verða
tæpur fjórðungur af vinnumarkaði
hér á landi.“
Útflutningsskrifstofa
tónlistar í Bretlandi
Ágúst segir að fæstir geri sér grein
fyrir því hvað tónlistariðnaðurinn
hér sé sterkur miðað við annars
staðar. Aðrar Norðurlandaþjóðir
hafa þó verið duglegri en við að
gera tónlist að söluvöru erlendis,
til dæmis Svíar.
Ein hugmynd um að efla útflutn-
ing tónlistar er að stofna ríkis-
rekna skrifstofu í Bretlandi sem
vinnur eingöngu að því að aðstoða
íslenska tónlistarmenn við að koma
sér á framfæri þar.
„Þetta hafa aðrar þjóðir fram-
kvæmt með góðum árangri. Við
erum með mjög mikla grósku hjá
ungu tónlistarfólki. Við sjáum það
á Airwaves-hátíðinni og Músíktil-
raunum. Það er mjög mikilvægt að
fólk átti sig á því að þarna eru
mörg tækifæri. Tónlist hefur líka
mikil áhrif á ferðaþjónustu. Ísland
er markaðssett sem góður staður
til skemmtanahalds og þar skiptir
tónlist miklu máli. Og ekki má
gleyma því sem Björk hefur gert
til að auka athygli á landinu,“ segir
Ágúst.
Einkafyrirtæki með á nótunum
Ágúst tekur undir það að einka-
fyrirtæki hér á landi séu betur með
puttann á púlsinum þegar kemur
að tónlist. Besta dæmið er auðvitað
stuðningur Landsbankans við lista-
starfsemina í KlinK og BanK, þar
sem verið er að framleiða tugi
nýrra breiðskífna þessa dagana,
sem annars hefðu átt erfiðara með
að brjótast yfir í efnisheiminn.
„Það er nokkur aukning á fram-
lögum fyrirtækja til menningar-
starfsemi. Það er mjög jákvætt og
mætti gera meira af því. Það væri
gott ef það væru sérstakar skatta-
ívilnanir fyrir þau fyrirtæki sem
halda uppi menningarstarfsemi á
þennan hátt. Slíkt þekkist vel á
Norðurlöndunum. Auðvitað geta
bankarnir aukið ímynd sína svona
en ég held að þetta sé að mestu
leyti hugsjónastarfsemi hjá þeim.
Yngri stjórnarmenn innan bank-
anna eru meðvitaðri um mátt
menningar en þeir eldri. Þetta er
fyrst og fremst spurning um hugs-
unarhátt. Þjóðfélagið er að breyt-
ast mjög hratt og við þurfum að
laga okkur að þessu.“
Ágúst segir rannsóknir á menn-
ingarmálum mjög skynsamlegar.
„Við þurfum að vita meira um
þennan geira, það skiptir miklu
máli í okkar hagkerfi. Menn hafa
horft á þetta með þeim augum að
tónlist sé góð og falleg en hún skili
litlu. En það er ekki svo. Svo er eitt
varðandi tónlistarmenn sem er slá-
andi. Þeir gefa oft vinnu sína til
stuðnings góðum málefnum. Þetta
er mjög lofsverð gjöf sem sjaldan
er minnst á.“
biggi@frettabladid.is
Prófessor Popp
ENGINN SYKUR
ALVÖRU BRAGÐ
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
14
8
8
6
EKKI ÉG!
HVER ER
SÆTUR?
„And now I can’t be sure of anything,
Black is white, and cold is heat.
For what I worshipped stole my love away
It was the ground beneath her feet,
It was the ground beneath her feet.“
- Salman Rushdie samdi textann Ground
Beneath Her Feet fyrir U2. Lagið er ekki að
finna á neinni breiðskífu sveitarinnar og var
ekki heldur á Best Of safnplötunni 1990-2000.
BJÖRK Ágúst segir að tónlist skipti miklu
máli fyrir ímynd Íslands og að Björk Guð-
mundsdóttir hafi átt stóran þátt í því.
ÁGÚST EINARSSON Prófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands sendi fyrir skömmu frá sér bókina Hagræn áhrif tónlistar.
Prófessor Ágúst Einarsson við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands gaf út
bók fyrir jól þar sem hann greindi frá þeirri niðurstöðu að menning skilar þrefalt
meiru til landsframleiðslunnar en landbúnaður.