Fréttablaðið - 03.02.2005, Page 18
18 3. febrúar 2005 FIMMTUDAGUR
600 þúsund bollur
Árleg sælkerahátíð er í farvatn-
inu. Hún hefst með bolluhelginni
miklu sem jafnan stendur frá
laugardegi til mánudags og lýkur
á þriðjudag með saltkjöti og
baunum. Sumir laumast svo í
sælgætispoka barna sinna að
kveldi öskudags.
Reyndar hafa bollur fengist í
nokkrum bakaríum síðustu daga
því sumir bakarameistarar hófu
bollubakstur og sölu um síðustu
helgi, tíu dögum fyrir bolludag.
Heimildir Fréttablaðsins
herma að bollusalan um síð-
ustu helgi hafi verið góð enda
margir sem standast ekki
mátið þegar þeir sjá súkkulaði-
gljáðar, rjómafylltar bollurn-
ar blasa við í borðum bakarí-
anna.
„Við þessir gömlu byrjum
ekki fyrr en á föstudag [á morg-
un],“ segir Reynir Þorleifsson,
bakari í Bakaríinu Dalvegi og
formaður Landssambands bak-
arameistara. Hann hefur bakað
margar bollur um ævina, á enda
þrjátíu ár að baki í faginu. „Þetta
er mikil vertíð og sunnudagarnir
eru jafnvel stærri en sjálfur
bolludagurinn,“ segir Reynir.
Hann veit sem er að vinsældir
bollunnar eru gríðarlegar og
vaxa ár frá ári. „Það hefur verið
aukning hjá mér um hátt í þús-
und bollur á ári.“ Hann bakar
sumsé fimm þúsund bollum
meira í ár en fyrir fimm árum.
Sjálfur er hann hógvær í
neyslunni og borðar bara bollur
á bolludeginum. Snertir þær ekki
dagana á undan. Finnst þær samt
mjög góðar.
Og uppskriftin
er fyrir löngu orðin
klassísk.“Bollan hefur lítið
breyst en ef eitthvað er hafa
gæði aukist.“ Það telst þó frétt-
næmt að vatnsdeigsbollan er í
stöðugri sókn. „Þær eru komnar
uppundir helming af öllum
bollum og jafnvel yfir það,“
segir Reynir bakari og skýtur á
að meðalverð á bollum sé um 220
krónur.
Reynir játar að samkeppni
bakaría sé hörð en telur hana
eðlilega. „Ég held að menn séu
ekki að klóra augun hver úr
öðrum. Þetta er bara eins og það
á að vera.“ bjorn@frettabladid.is
„Mér finnst þetta skandall,“ segir
Gunnar Steinþórsson, stjórnarformað-
ur Sendibílastöðvarinnar, um lækkun
sektargreiðslna til olíufélaganna um
rúman milljarð:
„Samkeppnisstofnun átti að mínu mati
aldrei að lækka sektirnar. Þær enda
hvort sem er í ríkissjóði og stjórnvöld
hefðu átt að nota þær til að lækka
bensínverð eða til að halda spítulun-
um gangandi svo dæmi séu tekin,“
segir Gunnar. Tengsl olíufélaganna inn
í valdaklíkuna í samfélaginu hafi vald-
ið því að sektirnar hafi verið lækkaðar.
„Við erum einu skrefi frá því að vera
bananalýðveldi,“ segir Gunnar. Það
sýni sig best þegar fyrrum forstjóri sé
tíður gestur í opinberum veislum vald-
hafa.
Gunnar segir olíufélögin enn njóta
góðs af hagnaði sem þau náðu með
samráðinu: „Í flestum tilfellum eru
það nýir eigendur sem þurfa að borga
sektina.“
GUNNAR STEINÞÓRSSON
Skandall
SEKTARGREIÐSLUR
OLÍUFÉLAGANNA
SJÓNARHÓLL
1.705 SKIPTU UM TRÚFÉLAG
Á SÍÐASTA ÁRI
Heimild: Hagstofan
SVONA ERUM VIÐ
„Það er svo sem allt gott að frétta.
Það er alltaf gott að vera kominn
heim en ég hefði viljað koma á
aðeins öðrum forsendum,“ segir
Birkir Ívar Guðmundsson, lands-
liðsmarkvörður í handbolta. Hann
kom heim á dögunum eftir ófar-
irnar á heimsmeistaramótinu í
Túnis þar sem liðið hafnaði í 15.
sæti og var langt frá markmiði
sínu. „Það var engin móttökunefnd
á Keflavíkurflugvelli í þetta skipti.“
Birkir Ívar býst ekki við að það sitji
lengi í honum þótt árangurinn á
HM hafi ekki verið upp á marga
fiska, menn verði að horfa fram á
veginn og einblína á það jákvæða.
„Liðið er mjög ungt og þjálfarinn
hefur verið við stjórnvölinn í
skamman tíma þannig að það var
viðbúið að ekki myndi allt smella
saman í fyrstu tilraun.“
Birkir Ívar fær ekki frí frá hand-
boltanum þó HM sé að baki, við
tekur baráttan um Íslandsmeist-
aratitilinn með Haukunum. „Það
mætti vera svolítið frí eftir svona
en það stendur ekki til boða. Æf-
ingarnar halda áfram og svo er
leikur gegn ÍBV í Hafnarfirðinum
í næstu viku.“ Og þó að þátttöku
Íslands á HM sé lokið fylgist Birk-
ir Ívar áfram með gangi mála.
„Það er margt jákvætt að gerast,
ný lið að koma upp eins og
Grikkir, Norðmenn og Túnisar.“
Líf Birkis Ívars er ekki bara hand-
bolti, hann er markaðsfræðingur
að mennt og vinnur hjá Impru -
nýsköpunarmiðstöð.
Engin móttökunefnd í þetta skipti
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? BIRKIR ÍVAR GUÐMUNDSSON MARKVÖRÐUR
ÚTSÖLULOK
ALLAR VÖRUR
-60%
Til 13. febrúar
Jón Indíafari
Kringlan 8-12 - S. 588 5111
GUÐNÝ
SVEITARSTJÓRI
VALGERÐUR
RÁÐHERRA
REYNIR ÞORLEIFSSON
„Það hefur verið aukning hjá mér um hátt
í þúsund bollur á ári.“
Bolludagurinn er á mánudag. Algengt er að
bakarar bæti við sig mannskap til að anna
eftirspurn. Vatnsdeigsbollan er í stöðugri sókn.
Grýtubakkahreppur:
Tengill á
stóru systur
Grýtubakkahreppur stendur við
austanverðan Eyjafjörð og búa
flestir íbúanna í kauptúninu
Grenivík. Hreppurinn heldur úti
heimasíðu með upplýsingum um
sveitarfélagið og annað það sem
kemur að gagni. Á forsíðunni eru
tenglar á aðrar síður, svo sem fjöl-
miðla, Vegagerðarinnar og Veður-
stofunnar. Á forsíðunni er einnig
að finna tenglasafn og þar undir
eru tengingar við síður Grenvík-
urskóla, íþróttafélagsins Magna,
Sparisjóðs Höfðhverfinga og
fleiri. Alls eru tenglarnir tíu. Sér-
staka athygli vekur að þar er
tenging við heimasíðu Valgerðar
Sverrisdóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra. Valgerður er
systir Guðnýjar, sveitarstjóra
Höfðahrepps, sem greinilega
telur mikilvægt að gestir heima-
síðu hreppsins komist í fljótlegt
og öruggt samband við stóru
systur sína. - bþs
Hljóðið í bílasölum er gott enda renna nýir bílar út:
Bullandi bílasala í byrjun árs
Nýir bílar seldust afbragðsvel
fyrsta mánuð ársins og mun betur
en á sama tíma í fyrra. Alls seld-
ust 1.315 nýir bílar í nýliðnum
janúarmánuði á móti 730 bílum í
sama mánuði á síðasta ári.
Jónas Þór Steinarsson, fram-
kvæmdastjóri Bílgreinasam-
bandsins, segist ekki hafa skýr-
ingar á reiðum höndum en býst
við að tilboð umboðanna ráði þar
talsverðu. „Ég held nú að þetta
jafni sig þegar frá líður,“ segir
hann.
Toyota heldur upp-
teknum hætti og trón-
ir á toppi sölulistans
en 464 Toyotabílar
seldust í janúar.
Ford er í öðru
sæti; 117 slíkir
bílar seldust í síð-
asta mánuði og 87
Hyundai-bílar. Næst
á eftir koma Volks-
wagen, Skoda, Honda og
Subaru.
Síðasta ár var það besta í bíla-
sölu í langan tíma en alls seldust
næstum tólf þúsund nýir bílar. Þá
var því spáð að bílasalan á þessu
ári færi upp í 13.500 bíla. Jónas
Þór hefur ekki endurskoðað spána
en heyrist á sínum mönnum
að réttara sé
að miða við
fjórtán þúsund selda bíla á árinu.
Það eru tvö þúsund fleiri bílar en
seldust á síðasta ári.
Metsala varð á bílum 1987
þegar rúmlega átján þúsund bílar
seldust.
- bþs
TOYOTA YARIS
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA