Fréttablaðið - 03.02.2005, Blaðsíða 56
Sjávarútvegs- og menntamálaráðu-
neyti standa fyrir samkeppni meðal
grunnskóla landsins á þessu skóla-
ári um verkefni sem ber yfirskrift-
ina Sjávarútvegur í fortíð, nútíð og
framtíð. Þetta er gert í tilefni af því
að 6. mars næstkomandi verða liðin
100 ár frá því fyrsti íslenski togar-
inn, Coot, kom til heimahafnar í
Hafnarfirði.
Verkefni skólanna verður að út-
búa sjávarútvegsvef um efnið en
afraksturinn á svo að kynna í
tengslum við sjómannadaginn.
„Verðlaun verða svo veitt á sjávar-
útvegssýningunni í Kópavogi í
september,“ sagði Árni Mathiesen
sjávarútvegsráðherra á blaða-
mannafundi sem ráðuneytin tvö
boðuðu til í gær í Kænunni við
höfnina í Hafnarfirði. En í vikunni
verða send út bréf til allra grunn-
skóla landsins þar sem verkefnið
verður kynnt skólastjórnendum.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra sagði verk-
efnið falla að aðalnámskrá grunn-
skóla og í raun hægt að tengja það
mörgum námsgreinum. „Mjög mik-
ilvægt er að við tengjum börnin
undirstöðugreininni sem fleytt
hefur okkur til þess nútímasamfé-
lags sem við þekkjum í dag,“ sagði
hún og taldi einnig lykilatriði að
tengja verkefnið upplýsingatækni
sem lögð hafi verið mikil áhersla á
í menntakerfinu. Verkefnið verður
ekki afmarkað frekar utan yfir-
skriftarinnar og hafa grunnskól-
arnir sjálfdæmi um útfærsluna.
Þannig má ákveða umfang verkefn-
isins í hverjum skóla og ákveða
hvort það verði unnið af ákveðnum
bekkjum, árgöngum eða verði sam-
vinnuverkefni fleiri aldurshópa.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú
bestu verkefnin og munu þau koma
í hlut viðkomandi skóla, en sér-
stakri dómnefnd verður falið að
meta verkefnin. Tekið verður mið
af framsetningu, hugmyndavinnu,
fræðslugildi, efnistökum, heildar-
svip og fleiri þáttum. Fulltrúum
skólanna í þrem efstu sætunum
verður síðan boðið á sjávarútvegs-
sýninguna í september 2005 þar
sem verðlaunin verða afhent.
Þá eru í burðarliðnum fleiri við-
burðir í tengslum við afmælisárið.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið að efna til sérstakrar ráð-
stefnu um framtíð sjávarútvegsins
4. mars og verður hún haldin á
Hótel Nordica í Reykjavík. „Þar
verður fjallað um þróun sjávarút-
vegs á Íslandi og einnig gerð til-
raun til að skyggnast fram í tímann
um þróun smásöluverslunar í heim-
inum,“ sagði Árni Mathiesen, en
meðal fyrirlesara verða Johann
Lindenberg, stjórnarformaður Uni-
lever í Þýskalandi, Quentin Clark,
yfirmaður innkaupa á sjávarfangi
hjá Waitrose í Bretlandi og Magnús
Gústafsson, forstjóri Icelandic í
Bandaríkjunum. „Svo verða þarna
einnig meðal fyrirlesara Þorsteinn
Már Baldvinsson og Elvar Aðal-
steinsson útvegsmenn.“
Í tilefni af 100 ára afmælinu
hefur bókafélagið Ugla einnig
ákveðið að gefa út á ný bók Ásgeirs
Jakobssonar um upphaf togveiða
við Ísland, Kastað í flóanum, sem út
kom árið 1966. Inn í nýju útgáfuna
eru fléttaðir kaflar um útgerð
Coots úr bók höfundar Hafnar-
fjarðarjarlinum, Einars sögu Þor-
gilssonar sem út kom 1987, en Sjáv-
arútvegsráðuneytið og Landssam-
band íslenskra útvegsmanna
styrkja útgáfu bókarinnar. ■
28 3. febrúar 2005 FIMMTUDAGUR
BUDDY HOLLY (1936-1959)
lést þennan dag í flugslysi.
Efnt til samkeppni
TÍMAMÓT: TOGARAÚTGERÐ Í LANDINU 100 ÁRA
„Svona tónlist kunnum við að meta.
Djass er bara fyrir heimakæra.“
- Orðin hér að ofan hafði Buddy Holly um „vagg og veltu“ en
hann var einn af frumkvöðlum rokktónlistar á sjötta ára-
tugnum. Meðal laga hans eru „That’ll Be the Day“, „Not Fade
Away“ og „Peggy Sue“. Hann viðhafði hikstakenndan söngstíl
og einkennismerki hans voru gleraugu með þykkri umgjörð.
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Sigrún Júlíusdóttir, pró-
fessor í félagsráðgjöf, er
61 árs í dag.
Jón Karl Helgason kvik-
myndagerðarmaður er
fimmtugur í dag.
Bjarni Felix Bjarnason myndatökumað-
ur er 37 ára í dag.
Andrea Róbertsdóttir
dagskrárgerðarmaður er
þrítug í dag.
Ragnar „Rassi prump“
Kjartansson listamaður
er 29 ára í dag.
ANDLÁT
Þuríður Sigurðardóttir, Snorrabraut 56,
Reykjavík, lést miðvikudaginn 19. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Svava Skúladóttir, áður í Hátúni 10a,
Reykjavík, lést sunnudaginn 23. janúar.
Ólafur Guðmundsson, Framnesi,
Hvammstanga, lést miðvikudaginn 26.
janúar.
Sigþór Lárusson lést á hjúkrunarheimil-
inu Droplaugarstöðum fimmtudaginn
27. janúar.
Halldór Steinsen læknir, Tjarnarflöt 11,
Garðabæ, lést sunnudaginn 30. janúar.
Ingibjörg Örnólfsdóttir, Sunnubraut 26,
Akranesi, lést sunnudaginn 30. janúar.
Hildur B. Kærnested lést á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni 2 mánudaginn 31.
janúar.
Svanborg Tryggvadóttir, Aðalstræti 8,
Reykjavík, lést mánudaginn 31. janúar.
JARÐARFARIR
13.00 Jóhannes Oddsson glerskurðar-
meistari, Vesturgötu 57A, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju.
13.30 Ari Ásmundur Þorleifsson, frá
Naustahvammi, Norðfirði,
Lóurima 6, Selfossi, verður jarð-
sunginn frá Selfosskirkju.
14.00 Lilja Kolbrún Steindórsdóttir,
Varmalandi, Laugarbakka, verður
jarðsungin frá Melstaðarkirkju.
15.00 Henný Dagný Sigurjónsdóttir,
áður á Laugarnesvegi 42, Reykja-
vík, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju.
BLAÐAMANNAFUNDUR Í KÆNUNNI Bjarni Þór Jónsson, umboðsmaður Nexus Media
sem sér um Sjávarútvegssýninguna þriðja hvert ár, Guðrún Lárusdóttir stjórnarmaður í
Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra, Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Guðmundur Hallvarðsson, formaður sam-
göngunefndar Alþingis og Jakob F. Ásgeirsson, rithöfundur og sagnfræðingur.
Þennan dag árið 1966 heppn-
aðist Sovétríkjunum farsællega
að stýra ómönnuðu geimfari að
nafni Lunik 9 inn til lendingar á
svæði sem nefnist „Vindahafið“ á
tunglinu.
Eftir lendinguna opnaðist á far-
inu hringlaga hylki, líkt og þegar
blóm opna krúnu sína, þannig
að úr varð loftnet og farið hóf að
senda ljósmyndir og sjónvarps-
efni til jarðarinnar. Var þetta í
fyrsta sinn sem sjá mátti tunglið
frá yfirborði þess. Svæðið sem
hægt var að skoða var vestan við
gígana Reiner og Marius.
Farinu, sem vó um 100 kíló, var
skotið frá jörðu 31. janúar, en
Lunik 9 var þriðja stóra tungl-
ferðin í geimáætlun Sovétríkj-
anna. 14. september árið 1959
var Lunik 2 fyrsti manngerði
hluturinn til að ná til tunglsins
þegar hann skall á yfirborði þess
og 7. október sama ár flaug
Lunik 3 umhverfis tunglið og
sendi aftur til jarðar fyrstu mynd-
irnar af myrku hlið tunglsins.
Á síðari hluta sjötta og fyrri hluta
sjöunda áratugar síðustu aldar
voru Bandaríkin ávallt skrefi á
eftir Sovétríkjunum í að verða
fyrri til að ná áföngum í geim-
ferðum. Júrí Gagarín var til að
mynda fyrsti geimfarinn. Með
Apollo-tungláætluninni tókst
Bandaríkjunum þó að snúa við
spilinu og urðu fyrri til að koma
mönnum á tunglið á síðari hluta
sjöunda áratugarins.
3. FEBRÚAR 1966
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1937 Norðurljósahjálmur sást í
Eyjafirði þar sem ljósunum
stafaði í allar áttir út frá
einum dimmum depli.
1944 Hótel Ísland, stærsta timbur-
hús Reykjavíkur, brann. Einn
fórst en yfir 40 var bjargað.
1981 Litla-Brekka við Suðurgötu,
síðasti torfbærinn í Reykja-
vík, var rifin.
1991 Eitt mesta fárviðri í manna
minnum gekk yfir Ísland.
Eignatjón var á annan millj-
arð en engin alvarleg slys.
1996 Jarðskjálfti gengur yfir Lijiang
í Kína og verður að minnsta
kosti 210 manns að bana
og um 3.700 slasast.
1998 Bandarísk herflugvél slítur í
sundur dráttarvír fólksflutn-
ingavagns á skíðastað í norð-
urhluta Ítalíu með þeim af-
leiðingum að tuttugu manns
hrapa til bana. Flugmaðurinn
var sýknaður í herrétti.
Tunglfarslending heppnaðist
Okkar kæra
Sigurbjörg Guðjónsdóttir
lést að Sólvangi, Hafnarfirði,
laugardaginn 29. jan. sl.
Hún verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju,
föstudaginn 4. feb. kl. 13.00.
Guðrún Bjarnadóttir, Geir Þórólfsson,
Bjarni Þór Sigurðsson,
Helga Guðjónsdóttir.
Eldri borgarar
Eldri borgarar
Ferðaklúbbur eldri borgara
auglýsir 11. daga ferð til Færeyja með
Norrænu þann 24.maí til 3. júní.
Farið verður í skoðunarferðir m.a. til
Suðureyjar, um Vestmannabjörgin,
Klakksvíkur og fleira.
Innifalið í verði er: rúta, gisting,
kvöldverðir, siglingar og leiðsögn
um Færeyjar. Gist er eina nótt á Akur-
eyri, ein nótt á Hótel Vagar og 5 nætur
á Hótel Færeyjar og eina nótt á Hótel
Skaftafelli á heimleið.
Verð pr. mann er kr. 109.000
Allir eldri borgarar velkomnir.
Nánari uppl. og skráning er hjá
Hannesi í síma 892-3011
Sumarferðirnar verða auglýstar síðar.
Ferðaklúbbur Eldri borgara.
Sýning á
servíettum
Í anddyri Bókasafns Akraness
stendur nú yfir safnarasýning þar
sem Margrét Gunnardóttir,
starfsstúlka á Sjúkrahúsi Akra-
ness, sýnir servíettur sem hún
hefur safnað frá 6 ára aldri, eða í
yfir fjörutíu ár. Þá sýnir Margrét
einnig hluta af pennasafni sínu.
Á vef Akranesbæjar kemur
fram að Margrét eigi í fórum
sínum um 7.000 servíettur af
ýmsum gerðum, en meðal annars
eru sýndar í anddyri bókasafnsins
elstu servíetturnar úr safninu.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma
safnsins og lýkur í lok febrúar. ■
FORMAÐUR BÍ Róbert Marshall, formað-
ur Blaðamannafélagsins, sagði nýlega upp
sem fréttamaður á Stöð 2 eftir mistök í
starfi.
Ræða ábyrgð
fréttamanna
Í kvöld efnir Blaðamannafélag Ís-
lands til svokallaðs pressukvölds,
en slík kvöld hafa verið haldin
nokkrum sinnum á ári þar sem
blaða- og fréttafólk ræðir fagleg
málefni innan stéttarinnar, oft í
tengslum við nýliðna atburði eða
hluti sem ofarlega eru á baugi. Yfir-
skrift pressukvöldsins í kvöld er:
Orð og ábyrgð – Ábyrgð frétta-
manna og vinnubrögð á fjölmiðlum!
Framsögumenn á pressukvöldi
Blaðamannafélagsins verða Páll
Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2,
Pétur Gunnarsson, ritstjóri vefrits-
ins Tímans og skrifstofustjóri
Framsóknarflokksins, og Björg Eva
Erlendsdóttir, fréttamaður á Ríkis-
útvarpinu. Samkoman hefst
klukkan átta og fer fram í hliðarher-
bergi Thorvaldsens-bars við Aust-
urvöll í Reykjavík. ■
TOGARINN COOT Teikningin er fengin úr
bókinni Aldan 100 ára: Saga Skipstjóra- og
stýrimannafélagsins Öldunnar 1893-1993,
eftir Lýð Björnsson.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
TE
IK
N
IN
G
/B
JA
R
N
I S
Æ
M
U
N
D
SS
O
N
F
IS
KI
FR
Æ
Ð
IN
G
U
R
1368 Karl VI Frakklandskonungur
1809 Felix Mendelssohn tónskáld
1874 Gertrude Stein
rithöfundur
1894 Norman
Rockwell listamaður
1898 Alvar Aalto arkitekt og hönnuður
1907 James Michener rithöfundur
1947 Dave Davies
gítarleikari Kinks
1950 Morgan
Fairchild
leikkona
1965 Maura Tiern-
ey leikkona
FÆDDUST ÞENNAN DAG