Fréttablaðið - 03.02.2005, Side 22
Atburðirnir á fundi Freyju, fé-
lags framsóknarkvenna í Kópa-
vogi, á fimmtudaginn í síðustu
viku þar sem nýir félagar hlutu
kosningu til stjórnar eiga ekki
að koma neinum á óvart sem
þekkja til mála Framsóknar-
flokksins í Kópavogi. Sem fyrr-
verandi formaður Framsóknar-
félags Kópavogs er ég mest
undrandi á því að til þessa hafi
ekki komið fyrr.
Siv Friðleifsdóttir, ritari
Framsóknarflokksins, hefur
brugðist við þessum atburði með
því að kalla eftir áliti laganefnd-
ar flokksins og þar með reynt að
gera samflokksmenn sína tor-
tryggilega. Þó svo að viðbrögð
Sivjar við þessum tíðindum séu í
sjálfu sér ekki óvænt, verður
samt að segjast eins og er að þau
koma úr hörðustu átt. Alltént
kvað við annan tón úr hennar
herbúðum sl. haust þegar kosið
var á aðalfundi Framsóknarfé-
lags Hafnarfjarðar. Mágur Sivj-
ar lagði þar til atlögu við sitjandi
stjórn, sennilega vegna þess að
hún var ekki nægjanlega hlið-
holl málstaðnum. Þá liggur það
fyrir að umræðan um dauðalist-
ann og húskarlana er að koma í
bakið á henni sjálfri. Hvort
tveggja hertæki sem smíðuð
voru í herbúðum Sivjar og hafa
gjarnan verið notuð gegn flokks-
mönnum sem ekki ganga í takti
við áætlanir hennar, eða töldu
það eðli málsins samkvæmt rétt
að hún léti af störfum ráðherra í
vetur.
Staðreyndin er sú að á undan-
förnum árum hafa áform Sivjar
um frama innan flokksins valdið
ítrekuðum árekstrum í kjör-
dæminu og æ meira hefur borið
á því að þeim sem ekki „trúa“ sé
refsað grimmilega. Nægir í því
sambandi að nefna djöfulskap-
inn úr hennar herbúðum á und-
angengnum kjördæmisþingum,
þó svo að á síðasta þingi hafi
e.t.v. steininn tekið úr í þeirri at-
lögu sem þar var gerð í nafni
jafnréttismála. Þá hefur Siv
nefnt það sem sérstakan missi
að Una María Óskarsdóttir hafi
tapað varaformannsstöðu sinni í
stjórn Freyju. Það á auðvitað að
vera verkefni allra formanna
landssambanda, þar er Una
María ekki undanskilin, að auka
breidd þeirra fylkinga sem þeir
fara fyrir. Þeim árangri ná þeir
vart með því að þaulsitja sjálfir
stjórnir undirfélaganna. Farið
hefur fé betra hafa margir sagt
við mig en ég held einfaldlega að
þau vinnubrögð sem Una María
hefur tamið sér, t.d. gagnvart
Framsóknarfélagi Kópavogs,
séu nú einfaldlega að hitta hana
fyrir sjálfa.
Það hefur einfaldlega við-
gengist, til alltof langs tíma, í
þessum flokki að konur hafi
getað kallað eftir völdum og
áhrifum á þeirri forsendu einni
að þær séu konur, að íslenskur
raunveruleiki sé svo snautlegur
að til skammar sé fyrir húskarla
flokksins og hæfileikar, þekking
og innsæi í íslenskt samfélag
skipti þar engu máli, einungis
tölfræðin.
Auðvitað er slíkur málflutn-
ingur byggður á sandi og konur
sem teknar eru alvarlega gefa
minna en ekkert fyrir slíkan
málflutning. Þetta vita auðvitað
allir. Dapurlegra er að margar
hæfileikaríkar konur sjá í þess-
um málflutningi farartálma inn í
flokkinn og fjölmörgum konum í
flokknum er mikill ami af
þessum málflutningi. Það er
hins vegar döpur staðreynd að
alltof margar konur láta
glepjast af þessum málflutningi
og svo eru það þær sem blygð-
unarlaust nota hann sér til fram-
dráttar. Hvernig víkur því ann-
ars við að félagsmenn Freyju
ráðast að Sigurbjörgu Vilmund-
ardóttur með þeim hætti sem
þeir hafa gert, eða þá að nýjum
félagsmönnum. Freyja var orðin
eins og sjúkur líkami hvers
hvítu blóðkorn réðust gegn nýju
blóði.
Raunalegast er að lesa heima-
síðu Sivjar á laugardaginn. Þar
greinir hún frá því að Lands-
samband framsóknarkvenna
ætli á súpufundi að ræða þetta
mál sem árás á stöðu kvenna og
jafnréttismál flokksins. „Þvílík
krísa“. Ég spyr: Í hvaða ljósi er
þetta krísa? Er þetta krísa vegna
þess að fjölgaði í Freyju? Er
þetta krísa vegna þess að þessar
nýju konur eru kjarkmiklar,
vilja breytingar og vilja vinna
innan vébanda Framsóknar-
flokksins? Ég held varla. Þetta
er auðvitað krísa vegna þess að
þetta eru ekki réttar konur.
Þetta eru ekki konurnar sem
fóru hringinn á Toyotunni með
formanni Landsambandsins.
Fátt er svo með öllu illt að ei
boði gott. Nú líður að aukaaðal-
fundi í Framsóknarfélagi Kópa-
vogs. Ég ætla að leyfa mér að
túlka orð Sivjar þannig að ólíkt
því sem áður hefur tíðkast láti
Nesjamenn félagið í friði af því
tilefni. Líkt og Siv gerði í
Hafnarfirðinum í haust, lýsi ég
yfir ánægju yfir því að fjölgi í
flokknum. Segi það blygðunar-
laust að ég á mér þá ósk heitasta
að fjölgi meira. Hlakka til að
vinna með nýjum og gömlum fé-
lögum að málefnum til framfara
í Kópavogi.
Höfundur er fyrrverandi for-
maður Framsóknarfélags Kópa-
vogs og varabæjarfulltrúi. ■
Vel getur farið svo að Skaftá verði
tamin, ýmist til að hefta landeyð-
ingu af hennar völdum eða með því
að virkja ána. Meðal annars er rætt
um þá lausn að veita ánni í Langa-
sjó. Vatnið varð ekki þekkt að fullu
fyrr en á 19. öld og hefur síðan
breyst úr aflöngu jökullituðu fjalla-
vatni í blátt og tært stöðuvatn. Enn
má reikna með að aðeins lítið brot
Íslendinga þekki vatnið og um-
hverfi þess af eigin raun og líklega
enn færri útlendingar.
Langisjór hefur eftirtektarverða
stöðu meðal stærstu stöðuvatna
landsins, á borð við Þingvallavatn,
Mývatn, Hvítárvatn og Löginn.
Hann er afar lítt snortinn af mönn-
um. Að honum liggur jeppaleið og í
hann hefur verið sleppt silungi.
Vatnið er meðal fegurstu staða há-
lendisins vegna lita, gróðurs (vikra-
vistkerfis) og jarðmyndana. Beggja
vegna vatnsins eru öflugustu
gossprungur landsins, þ.e. Veiði-
vötn-Vatnaöldur í norðri og Laka-
gígar-Eldgjá í suðri . Vistkerfið er
ungt, allfjölbreytt og merkilegt að
fylgjast með framvindu þess. Og
síðast en ekki síst er eyjum prýtt
vatnið í kvos milli tveggja mó-
bergshryggja en þeir eru ummerki
öflugra sprungugosa undir ísaldar-
jökli. Utan í Fögrufjöllum er röð
stórfenglegra gíga. Þar sem þetta
svæði í heild er í raun einn virkast
hluti plötuskila á þurru landi í
heimnum, og bæði með gosmenjar
af íslausu og jökulþöktu landi, er
það vísast til einstætt í heiminum.
Langisjór er að mestu ónumið
land í þeim skilningi að þar er unnt
að stunda umhverfisvænar og
léttar landnytjar. Á ég þá við að
nýta umrætt svæði, að meðtöldum
stóru gossprungunum, sem auðlind
til fræðslu og ferðaþjónustu. Þarna
eru fjölbreyttir gígar, alls konar
hraun, gervigígar og laus gosefni
og móberg í öllum myndum í
mergjuðu landslagi. Auðvelt er að
stika gönguleiðir, setja niður lítil
hús og hóflega þjónustumiðstöð,
skipuleggja gönguferðir (nú þegar
að nokkru fyrir hendi) og bátsferð-
ir. Svæðið hentar líka til vetrar-
ferða. Það ber auðveldlega tugþús-
undir gesta á ári ef vel er að staðið
og alls ekki eingöngu þjálfaðasta
hluta þeirra.
Ef eitthvert svæði á skilið að
verða þjóðgarður (hæfilega stór og
með óunnum þróunarmöguleikum)
er það gosreinin á umræddum slóð-
um. Ef eitthvert svæði má merkja
sem heppilegt svæði á Heims-
minjaskrá SÞ er það þessi hluti
gossprungukerfisins (ásamt með
Öskju, dyngjunum og gossvæðum á
NA-landi sem sjálfstæðu minja-
svæði). Gleymum því ekki að mörg
svæðanna sem hafa verið nefnd
sem minjaefni á Íslandi hafa
þýðingu í augum Íslendinga en
miklu síður gagnvart heimsbyggð-
inni því sambærilegar eða mun
merkilegri náttúruminjar af sama
tagi eru til á fleiri stöðum, jafnvel
mörgum.
Hagsmunir ólíkra aðila togast á
um Langasjó. Þá er að velja þann
kost sem hæfir hagsmunum sem
flestra og helst allra. Hann er sá að
leyfa Langasjó að mæta náttúruleg-
um örlögum sínum en athuga hvort
og hvernig megi halda tjóni af völd-
um árinnar í lágmarki, virkja aðrar
orkulindir, jafnvel með því að ýta
allri aurahagkvæmni til hliðar. ■
3. febrúar 2005 FIMMTUDAGUR22
Langisjór: Ónumið land mikilla tækifæra
Staðreyndin er sú að
á undanförnum
árum hafa áform Sivjar um
frama innan flokksins vald-
ið ítrekuðum árekstrum í
kjördæminu og æ meira
hefur borið á því að þeim
sem ekki „trúa“ sé refsað
grimmilega.
Um atburðina í Freyju
ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON
JARÐEÐLISFRÆÐINGUR
UMRÆÐAN
NÁTTÚRUVERND
GESTUR VALGARÐSSON
UMRÆÐAN
FRAMSÓKNAR-
FLOKKURINN
,,
Á 180 km hraða niður Laugaveginn
Hvurslags forræðishyggja er það
að ég skuli ekki geta keyrt niður
Laugaveginn á 180 km hraða á
mínum EINKAbíl? Hvers vegna eru
stjórnvöld að skipta sér af því? Þeir
sem vilja ekki eiga á hættu að verða
fyrir bílnum á ofsahraða geta bara
keyrt Hverfisgötuna, eða Skúla-
götuna. EIGNArétturinn er alltaf
fótum troðinn í þessu landi. Er það
ekki brot á mannréttindum að
njörva mig niður með lögum og
reglum? Og að skipa mér að nota
bílbelti og banna mér að tala í far-
síma í mínum EINKAbíl? Hvað varð
um mitt frelsi? Og sjálfsákvörðun-
arréttinn? Hvers virði eru mann-
réttindi ef ég get ekki gert allt sem
mig langar til, hvar sem er og
hvenær sem er, burtséð frá því
hvort ég skaða aðra?
Annað slagið má lesa skondnar
greinar um yfirvofandi en löngu
tímabæra reykhreinsun á veitinga-
og kaffihúsum, í húsum sem veit-
ingamenn eiga sjálfir í sumum til-
fellum. Af hverju mega þeir ekki
stjórna því sem gerist í þeirra eigin
eignum, sbr. í þeirra eigin bílum?
Geta þeir ekki skellt upp nautaati
innanhúss á laugardögum, frjálsum
skylmingum á sunnudögum, að-
gangur öllum frjáls. Þeir sem vilja
ekki eiga á hættu að meiðast geta
sótt aðra staði.
Það segir sig sjálft að allir opin-
berir staðir, sem bjóða upp á þjón-
ustu við almenning, þurfa vitanlega
að lúta ákveðnum lögum og reglum,
líka veitinga- og kaffihús, þótt þau
hafa verið stikkfrí undanfarna ára-
tugi. Annað slagið hafa virtir ein-
staklingar tjáð sig um þetta mál,
m.a. með því að segja: ,,Þeir sem
vilja ekki vera í reyk geta bara
valið annað kaffihús?“ Ef þetta við-
horf væri við lýði hjá öllum aðilum
sem bjóða upp á þjónustu við al-
menning gæti t.d. annað hvert flug
til Akureyrar verið reyklaust, í
þriðju hverri sætaferð til Hvolsvall-
ar mætti reykja og jafnvel í öllu
flugi til Köben en þeir sem vildu
reyklaust flug þangað gætu bara
valið aðra leið, t.d. í gegnum Osló.
Og svo mætti reykja í verslunum
10-11 en ekki Bónus. Þeir sem vilja
ekki reyk geta bara verslað á öðrum
stað. Verslunareigendur hljóta að
ráða yfir sínum húsum.
Öllum viti bornum mönnum ætti
að vera ljóst að frelsi einstaklings-
ins, í siðmenntuðum þjóðfélögum,
takmarkast þegar frelsið er farið að
skaða aðra. Okkur er frjálst að
neyta áfengis en samt megum við
ekki aka undir áhrifum áfengis.
Hvers vegna? Getur það verið
vegna þess að ölvaður ökumaður er
hættulegur sjálfum sér og um-
hverfinu? Kemur yfirvöldum það
við? Í umræðunni um reyk- eða
reyklaust umhverfi ber dauðsföll
sjaldnast á góma, jafnvel þótt á bil-
inu 30-40 manns deyi árlega af völd-
um óbeinna reykinga. Er kannski
óþægilegt að fá vitneskju um þess-
ar staðreyndir. Svo ekki sé minnst á
hina 400 sem deyja árlega af völd-
um reykinga. Á slíkt má helst ekki
minnast þótt fólk á besta aldrei
kveðji reglulega þennan heim eftir
áratugi í fjötrum fíknar. Opinber-
lega fá menn illvígan sjúkdóm eða
krabbamein en reykingarnar eru
stikkfrí, eins og veitingahúsin.
ENGINN hefur nokkurn tímann
fært rök fyrir því hvers vegna ætti
að leyfa reykingar á veitinga- og
kaffihúsum sem og skemmtistöðum
og krám umfram aðra opinbera
staði. Slíkt kemur ekki á óvart því
engin rök eru fyrir því. Reykingar
tíðkast þar enn af gömlum vana og
sökum þess að menn hefur skort
hugrekki til að takast á við vanda-
málið og eftirlitsaðilinn hefur horft
á staðina með blinda auganu. Engu
að síður vilja rúmlega 8 af hverjum
10 Íslendingum engan reyk á veit-
inga- og kaffihúsum. Að lokum má
geta þess að Ísland hefur nú þegar
fullgilti rammasamning Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar um
tóbaksvarnir sem kveður m.a. á um
það að yfirvöld verða að hreinsa
reyk úr öllum opinberum stöðum,
þar með talið veitinga- og kaffihús-
um. Kannski eru hinir háttsettu líka
blindir. ■
ÞORGRÍMUR ÞRÁINSSON
RITHÖFUNDUR
UMRÆÐAN
FORRÆÐISHYGGJA
Föstudaginn 4. febrúar
• Eggert Skúla nýr ritstjóri Veiðimannsins segir frá
útgáfuáætluninni.
• Veiði- og hrakfallasögur.
• Össur Skarphéðinsson segir frá ísaldarurriðanum í
Þingvallavatni.
• Veiðistaðalýsingin verður um Krossá á Skarðsströnd.
• Happahylurinn er í boði Arkó.
• Þórólfur Antonsson frá veiðimálastofnun fjallar um
laxveiðihorfurnar 2005.
• Árshátíðin kynnt.
Nýju „stelpurnar“ í skemmtinefndinni
Brennivín og hákarl fyrir þá sem það vilja
auk venjulegra veitinga
Húsið opnar klukkan 20.00.
Opið hús
hjá SVFR
Krókhálsi 5, 110 Reykjavík
Sími: 587 5800 • www.arko.is
Síðast var fullt hús og gríðarleg stemmning
Flóðbylgja og Framsókn
Ég heyrði í fréttum um daginn að rýma ætti
hús í Þorlákshöfn ef Kötlugos yrði a.m.k. við
sérstakar aðstæður. Nú bíð ég eftir því að fá
eitthvað inn um lúguna frá almannavarnar-
nefnd Árnessýslu eða bæjarstjórn um
málið. Við hljótum að fá ítarleg fyrirmæli.
Einhvers konar rýmingaráætlun hlýtur að
liggja fyrir eða hvað? Þá rýmingaráætlun
ætti að kynna sérstaklega í leik- og grunn-
skóla. Þá hljóta niðurstöður einhverra rann-
sókna að liggja fyrir. Hvað myndi t.d. gerast
ef flóðbylgja yrði fimm metra há? Tíu metra
há? Hve há flóðbylgja yrði til þess að skapa
neyðarástand? Um þetta þyrftu almennir
fjölmiðlar að fjalla og bæjarstjórn þyrfti að
sjálfsögðu að vita allt um málið. Eitt af því
sem taka þyrfti tillit til í þessari vinnu er að
allar neyðaráætlanir og tilkynningar þyrftu
að vera til á íslensku, pólsku, eistnesku og
taílensku. Næstum því tíundi hver íbúi Þor-
lákshafnar er tiltölulega nýkominn frá öðr-
um hlutum heimsins og þeir þurfa að
bjarga sér ekki síður en aðrir. Látum vera þó
við séum skammt á veg komin með að taka
tillit til þess fólks sem vinnur fyrir okkur í
grunnframleiðslunni fyrir lágmarkskaup en
þegar um neyðaráætlanir er að ræða þarf
allt að vera á hreinu.
Ég ætla ekki að tala um Framsóknarflokkinn
en lítill flokkur án grundvallarviðhorfa hlýtur
alltaf að vera í hættu fyrir valdabröltsmönn-
um. Og satt að segja er efitt að koma auga
á fyrir hvað Framsóknarflokkurinn stendur
nú um stundir. Annars vegar er hópur
manna sem hefur undanfarin ár litið til
Venstre í Danmörku sem var lítill vinstri
flokkur en þróaði sig til hægri og er nú stór
hægri flokkur. Hins vegar eru sveitamenn-
irnir í flokknum sem eru aldir upp á hlaðinu
heima, hafa aldrei hleypt heimdraganum og
eru jafnvel á móti EES. Raunar er ég svolítið
utangátta í þessum flokki, tel mig í hvorug-
um hópnum eða báðum. En þó að ein-
staklingur geti lifað klofinn þá er erfitt fyrir
heilan stjórnmálaflokk að gera það án þess
að einhvers staðar sjái á.
Baldur Kristjánsson á baldur.is
AF NETINU