Fréttablaðið - 05.05.2005, Qupperneq 26
[
Kaffiboðsdagar í maí
Allt að 40% afsláttur af
bollastellum og tilheyrandi.
Opið virka daga 14-18.
Skipasund 82, 104 Reykjavík – S. 552 – 6255
www.ammaruth.is
Arinbú›in
Stórhöf›a 17 v/Gullinbrú (fyrir ne›an húsi›) · Sími 567 2133 · www.arinn.is
Kristalsljósakrónur
6 ljósa 46.900 kr. 8 ljósa 47.900 kr. 12 ljósa 73.900 kr.
Tax free dagur
laugardaginn
7. maí
Listasmiðjan Keramik og glergallerý • Kothúsum, Garði, s. 422 79 35.
Vorvörur í úrvali fyrir
sumarbústaðinn og garðinn.
Óvissuferðir fyrir hópa
Viltu koma í keramik eða
glerbræðslu?
Erum með umboðsmenn á landsbyggðinni.
Opið alla daga!
Smíðað úr rekaviði og geymdi
bæði meðul og kindabyssu
Halla Valdimarsdóttir hefur mikið dálæti á þessu gamla merkisskrifborði.
Gamla skrifborðið í stofu
Höllu Valdimarsdóttur kenn-
ara býr yfir ýmsum leyndar-
dómum.
„Skrifborðið er sennilega smíðað
um aldamótin 1900 og var búið til
fyrir afa minn, Jón Einarsson,
sem var hreppstjóri austur í
Skaftártungu. Borðið mun hafa
smíðað hagleikssmiður að nafni
Sveinn Ólafsson en hann var afi
Sveins Einarssonar, fyrrum Þjóð-
leikhússtjóra. Það er að öllum lík-
indum smíðað úr mahoníviði sem
rekið hefur á Meðallandsfjörur en
engin leið er að vita hvaðan slíkur
viður hefur borist í hafi,“ segir
Halla Valdimarsdóttir kennari um
fágætan smíðisgrip sem er til
mikillar prýði í stofu hennar.
Halla segir borðið alltaf hafa
fylgt fjölskyldu sinni. „Á tímabili
þótti það ekkert flott og var bara
komið í geymslu og við það að
falla í gleymsku. Þá sá ég mér leik
á borði og falaðist eftir því og æ
síðan, eða í rúm þrjátíu ár, hefur
það skipað heiðurssess á mínu
heimili.“ Í skrifborðinu geymir
hún sínar helstu uppáhaldsbækur
en annars er það bara til prýði í
stofunni. Það geymir þó sína
leyndardóma. „Á borðinu eru
tveir læstir skápar og mér sögðu
fróðir menn að í öðrum hefðu ver-
ið geymd meðul enda er ennþá
meðalalykt úr honum en kinda-
byssan var geymd hinum megin.
Sá skápur er ennþá læstur því lyk-
illinn týndist svo enginn veit hvað
leynist þar inni. Og ágætt að halda
því bara þannig.“
Borðið er sérstaklega fallegt
og þótti tíðindum sæta á sínum
tíma. „Einu sinni spurði gamall
sveitungi mig um afdrif borðsins
svo það hefur greinilega þótt
merkisgripur.“
brynhildurb@frettabladid.is
Fólki þykja heimilisstörfin
misskemmtileg þótt allir séu
jafnánægðir þegar búið
er að þrífa og heimilið er
hreint. Þeir sem falla
undir þennan hóp ættu
kannski að huga að því að
lífga upp á heimilisstörf-
in – verkin verða léttari
með litríkum og
skemmtilegum kústum
eins og þessum sem fást í
versluninni Sipa við
Laugaveginn.
Kústarnir eru ný-
komnir í verslunina
frá Spáni og er ekki
hægt að segja annað en
þeir séu mjög sumar-
legir. Jafnframt eru þeir
tilvaldir sem innflutnings-
gjafir eða geta virkað hvetj-
andi fyrir börn og unglinga
sem eru löt við að hjálpa til
við heimilisstörfin.
Kústar geta verið gleðigjafar
Gólfin sópuð með litríkum kústum og blómlegum fægiskóflum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Appelsínugulur
og bleikur fyrir
pæjurnar á 2.700 kr.
Með mynstri maríuhænunnar fyrir
náttúrufræðinginn á 3.500 kr.
Skær og fjólublár
fyrir gamla hippa
á 2.700 kr.
Hver myndi ekki vilja vaska
upp með þessum uppþvotta-
bursta á 950 kr.?
Sópur og fægi-
skófla í stíl við
stóra sópinn á
3.500 kr.
Blómlegt og
stelpulegt á
1.590 kr.
Frúin í Hamborg er við Ráðhústorg
á Akureyri.
Frúin í Ham-
borg flytur
VERSLUNIN SPÚTNIK BOÐIN
VELKOMIN Í FRÚNA.
Verslunin Frúin í Hamborg á Akureyri
kvaddi veturinn með því að flytja
milli húsa í Brekkugötunni á Akureyri.
Verslunin er nú á Brekkugötu 3 við
Ráðhústorgið. Í tilefni flutningsins var
boðið til samkvæmis enda ástæða til,
því fyrir utan flutninginn verður versl-
unin Spútnik framvegis hluti verslun-
arinnar.
Í Frúnni í Hamborg er verslað með
gamla muni, húsgögn, húsbúnað og
einnig fatnað. Frekari hátíðarhöld eru
svo framundan í versluninni því þar
verður fagnað tveggja ára afmæli 2.
júní næstkomandi.
Klakabox sem skartgripaskrín
Tilvalið er að flokka skartgripina sína ofan í klakabox sem svo er stungið ofan í skúffu.
Fyrir vikið losnar maður við að greiða úr flækjum af hálsmenum, eyrnalokkum og hring-
um og auðvelt er að finna hvern hlut. ]
26-27 (02-03) Allt heimili 4.5.2005 16:44 Page 2