Fréttablaðið - 05.05.2005, Blaðsíða 32
8 FIMMTUDAGUR 5. maí 2005
• Fyrsti fasti hárliturinn sem
inniheldur Aloe Vera
• Þekur gráu hárin 100%
við fyrstu litun
• 1-2 litanir í pakkanum
• Inniheldur ekki ammoniak
Nærðu hárið
um leið og
þú litar það!
náttú
ruleg
ur
fastu
r
hárli
tur
Fallegt og glansandi hár
Aloe Vera
Lyfjaval,
Móðurást,
Lyfja Borgarnesi,
lyfsalan Hólmavík.
Svart og hvítt í aðalhlutverki
Tískuvikan í Ástralíu hófst á
frídegi verkalýðsins og lýkur
næsta sunnudag.
Tískuvikan í Ástralíu er talsvert
ólík tískuvikum í tískuhöfuðborg-
um heimsins eins og London, Par-
ís og Mílanó. Tískuvikan í Sidney
í Ástralíu snýst um að sýna fólk-
inu í landinu tískuna en ekki að
trekkja að sem flestar stjörnur á
tískupallana.
Tískuvikunni í Sidney fylgja
margir atburðir, kvikmyndasýn-
ingar, ljósmyndasýningar og
veislur um alla borg sem margar
hverjar eru opnar almenningi.
Tískuvikan í Sydney hefur ver-
ið haldin síðan árið 1996 og er
leiðandi atburður af sinni tegund í
landinu. Vor- og sumartískan er
ávallt sýnd á veturna í Sidney
þegar vorar hjá okkur á meðan
haust- og vetrartískan er sýnd í
Melbourne á sumrin þegar kaldir
vindar blása á klakanum.
Tískuvikan vekur meiri áhuga
heimsins með hverju árinu sem
líður og nú laðar hún að evrópska,
asíska og ameríska kaupmenn.
Vor- og sumartískan í Ástralíu
verður svolítið gamaldags en
samt töff og ögrandi. Svartur og
hvítur eru aðallitirnir og lögð er
áhersla á kvenleika og fágun með
einfaldri hárgreiðslu við oft
flókna hönnun.
lilja@frettabladid.is
Hér sýnir ástralski dansflokk-
urinn hönnun Akira Isogawa.
Tískan tekur á sig hinar ýmsu myndir og í takt við
hippatískuna, sem gengur út á vellíðan og þægindi,
hafa portúgölsku heilsuskórnir Eurocomforto náð at-
hygli almennings. Þessir skór eru ótrúlega þægilegir,
einskonar tátiljur sem maður finnur vart fyrir enda eru
þeir eru hannaðir fyrir fólk sem á í hverskyns fóta-
vandamálum.
Það er mikið gleðiefni þegar svona hlutir komast í
tísku og þegar útlit og vellíðan hanga saman.
Eurocomforto skórnir ganga við ýmsar ólíkar flíkur.
Þessir skór eru til dæmis tilvaldir hvunndagsskór við
gallabuxur eða síð mussupils, einnig við sportlegri föt
svo ekki sé talað um léttan sumarlegan hörfatnað.
Margir kannast við þessa skó í hvíta litnum en nú hef-
ur úrvalið aldeilis aukist, því fyrir utan hvítt og svart
eru tíl ýmsir glaðlegir litir að ógleymdum gull og silf-
urskónum sem verða algjörlega ómissandi í sólinni í
sumar.
Skórnir kosta 3.980 og fást í
Lavita Laugavegi og Topshop Smáralind.
Heilsusamlegir tískuskór
EUROCOMFORTO SKÓRNIR HAFA SLEGIÐ Í GEGN.
Gamaldags stíll frá
Jayson Brunsdon.
Dýrsleg baðföt
frá Lisu Ho.
Gyðjulegur kjóll þar sem and-
stæðum pólum er blandað
saman frá Alex Perry.
Dramatískur kjóll frá
Aurelio Costarella.
Oasis opnar aftur
TÍSKUVERSLUNIN HEFUR GENGIÐ Í
GEGNUM MIKLAR ENDURBÆTUR.
Tískuverslunin Oasis í Kringlunni hef-
ur verið lokuð í hartnær tvær vikur.
Hún opnar aftur eftir miklar endur-
bætur á morgun, föstudaginn 6. maí.
Búið er að taka verslunina algjörlega
í gegn og er hún nú orðin ein af
glæsilegustu Oasis verslunum í
heiminum og eitt af flaggskipum
Oasis verslunarkeðjunnar.
Samkvæmt heimildum er búið að
veggfóðra veggina í einstaklega fal-
legu veggfóðri og alsetja veggina
demöntum þannig að ekki vantar
glæsileikann.
Vor- og sumartískan í Oasis mun njóta
sín vel í nýrri og endurbættri verslun.
32-49 (08-09) Allt tíska 4.5.2005 17:29 Page 2