Fréttablaðið - 05.05.2005, Page 69
Þessa dagana eru tónlistarnemend-
ur við Listaháskóla Íslands að halda
útskriftartónleika sína hver á fætur
öðrum. Í kvöld er röðin komin að
Ólafíu Línberg Jónsdóttur sópran-
söngkonu, sem ætlar að bjóða upp á
fjölbreytta söngdagskrá í Íslensku
óperunni.
Hún ætlar að syngja aríur eftir
Mozart, Puccini, Dvorak og Don-
izetti ásamt ljóðasöngvum eftir
Schubert, Liszt og Haydn, svo nokk-
uð sé nefnt.
„Eftir Liszt ætla ég að syngja
ljóð sem hafa ekki heyrst mikið
hérna, en eru mjög falleg. Síðan eft-
ir hlé verð ég með nútímalegri tón-
list, bæði lög eftir Richard Hundley,
sem er bandarískt tónskáld, og
einnig eftir þýskt tónskáld sem heit-
ir Wolfgang Rihm.“
Ólafía byrjaði í söngnámi sextán
ára hjá Elísabetu Erlingsdóttur,
sem hefur verið aðalkennari hennar
allar götur síðan.
„Ég tók mér reyndar hlé í eitt ár
og fór til Bandaríkjanna þar sem ég
var í einkatímum. Ég var líka hálft
ár skiptinemi í Þýskalandi.“
Hún stefnir á framhaldsnám í
Hollandi og langar til að leggja fyrir
sig óperusöng.
„Það er draumurinn. Ég ætla að
stefna á óperuheiminn.“
Ólafía hefur komið fram í
nokkrum óperuhlutverkum. Hún
söng Drusillu í óperunni Krýning
Poppeu eftir Monteverdi með
Sumaróperunni í Reykjavík haustið
2003 og Arsenu í uppfærslu Óperu-
stúdíós Listaháskólans og Íslensku
Óperunnar á Sígaunabaróninum
eftir Johann Strauss.
Um þessar mundir syngur hún
hlutverk Grillettu í uppfærslunni
Óperustúdíósins á Apótekaranum
eftir Joseph Haydn. ■
FIMMTUDAGUR 5. maí 2005 37
Tenórinn
ALLRA SÍÐASTA
SÝNING
Laugardaginn
7. maí kl. 20.00
Sumar gjafir skipta
öll börn máli!
Gefum börnum góða sumargjöf
Stefnir á óperuna
List án landamæra
Listahátíðin List án landamæra verður formlega sett í Iðnó klukkan
14 í dag. Þorvaldur Þorsteinsson, forseti Bandalags íslenskra lista-
manna, setur hátíðina.
Dagskrá hátíðarinnar er fjölbreytt að vanda og er sérstök áhersla
lögð á samvinnu fatlaðra og ófatlaðra listamanna.
Hún stendur til 13. maí og verður eitthvað nýtt og spennandi að
gerast á hverjum degi. Meðal viðburða má nefna Listdans á skaut-
um, tónleika í Salnum, stuttmyndasýningu í Háskólabíói, leiksýningu
í Iðnó og myndlistarsýningu í Hinu húsinu.
■ ■ MESSUR
11.00 Dómkirkjukór Gautaborgar
syngur við hátíðarmessu í Hallgríms-
kirkju.
■ ■ SÝNINGAR
14.00 Handverksýning eldri bæjar-
búa á Seltjarnarnesi veður haldin á
degi aldraðra, uppstigningardag, í fé-
lagsmiðstöðinni að Skólabraut 3-5.
Gengið er inn á jarðhæð.
hvar@frettabladid.is
ÓLAFÍA LÍNBERG JÓNSDÓTTIR Syngur
á útskriftartónleikum sínum í Íslensku
óperunni í kvöld.
68-69 (36-37) Menning/slanga 4.5.2005 20:19 Page 3