Fréttablaðið - 05.05.2005, Qupperneq 70
Hljómsveitin Daysleeper er hætt eftir um það bil fimm ára
samstarf. Að sögn Sverris Bergmann, fyrrverandi söngv-
ara sveitarinnar, ákváðu menn að fara hver sína leið
og voru engin leiðindi þar á bak við.
Sverrir, sem sló í gegn árið 2000 með laginu „Án
þín,“ hefur þó síður en svo lagt tónlistina á hilluna.
„Ég er að leika mér að semja eitthvað og ætla að
gera plötu þegar að því kemur,“ segir Sverrir, sem
er annar af umsjónarmönnum þáttarins Fríða og dýrið á
Popptíví. Aðspurður segist hann ekki vera kominn með
plötusamning í útlöndum en það sé þó að sjálfsögðu
draumurinn eins og hjá flestum öðrum tónlistarmönn-
um.
Dayslepper gaf út tvær plötur á ferli sínum; fyrst EveAlice
sem seldist í 3.000 eintökum fyrir jólin 2002, og síðan
Daysleeper sem kom út fyrir ári. Þess má geta að Sverrir
var í mikið í sviðsljósinu síðasta sumar fyrir hlut-
verk sitt í söngleiknum Hárinu, sem
hann skilaði með miklum sóma.
> Plata vikunnar ...
SAGE FRANCIS:
A Healty Distrust
„Rapparinn, þjóð-
félagsgagnrýn-
andinn, tónlistar-
spekingurinn og
ljóðskáldið Sage Francis snýr
aftur með aðra stórkostlega
plötu. Þið megið ekki missa af
þessari.“ BÖS
38 5. maí 2005 FIMMTUDAGUR
DAVE GROHL Forsprakki Foo Fighters
er kominn í efsta sæti X-listans með
lagið Best Of You.
[ TOPP 10 ]
X-DOMINOSLISTINN - 4. MAÍ
Bandaríska hljómsveitin
Weezer gefur út sína
fimmtu plötu á mánudag.
Freyr Bjarnason kíkti á
feril sveitarinnar.
Fimmta plata bandarísku hljóm-
sveitarinnar Weezer, Make Be-
lieve, kemur út á mánudaginn.
Brúnin lyftist jafnan á tónlistar-
áhugamönnum er þeir heyra að ný
Weezer-plata sé á leiðinni enda
sveitin þekkt fyrir að semja létt
og grípandi popplög með pönk-
rokkuðu ívafi.
Weezer var stofnuð árið 1992.
Eftir að hafa vakið litla athygli til
að byrja með sló sveitin umsvifa-
laust í gegn þegar fyrsta plata
hennar kom út 1994. Platan var
samnefnd sveitinni en hefur jafn-
an verið nefnd Bláa albúmið. Á
henni er að finna hörkuslagara á
borð við Buddy Holly, Undone-
The Sweater Song og Say It Ain’t
So sem allir nutu mikilla vin-
sælda.
Eftir umfangsmikla tónleika-
ferð um heiminn tóku meðlimir
Weezer, með söngvarann og laga-
höfundinn sérvitra Rivers Cuomo
í farabroddi, sér pásu. Cuomo hélt
áfram námi sínu við Harvard-há-
skóla, trommarinn Pat Wilson og
bassaleikarinn Scott Shriner
stofnuðu hljómsveitina The
Rentals og gítarleikarinn Brian
Bell sneri sér aftur að gömlu
hljómsveitinni sinni, The Space
Twins.
Eftir að hafa hlaðið batteríin
gaf Weezer tveimur árum síðar út
plötuna Pinkerton og voru eftir-
væntingarnar að vonum miklar.
Platan var nokkuð hrárri og rokk-
aðari en frumburðurinn og seldist
ekki næstum því eins vel, þó svo
að hún hafi sótt í sig veðrið allar
götur síðan á sölulistum.
Lítið spurðist til Weezer eftir
útkomu Pinkerton. Dræmar við-
tökur bæði gagnrýnenda og al-
mennings við plötunni fóru illa í
Cuomo og hann dró sig algerlega í
hlé. Hann lokaði sig inni í íbúð
sinni í Los Angeles, sem var stað-
sett undir hraðbraut, setti ein-
angrunarefni fyrir gluggana og
hengdi svört lök þar yfir. Því næst
málaði hann veggina svarta, tók
símann úr sambandi og eyddi
tíma sínum með gæludýrinu
Gecko.
Þriðja plata Weezer kom ekki
út fyrr en 2001 og hafði yfir sér
mun léttara yfirbragð en Pin-
kerton. Kallaðist hún Weezer, eins
og fyrsta platan, en fékk viður-
nefnið Græna albúmið. Platan
fékk frábærar viðtökur og loksins
gat Cuomo tekið gleði sína á ný.
Weezer var snúin aftur og það
með stæl. Cuomo virtist eiga fullt
af lögum í pokahorninu því ári síð-
ar kom næsta plata út, Maladroit,
sem fékk einnig prýðilegar við-
tökur. Báðar þessar plötur höfðu
að geyma vinsæl lög á borð við Is-
land in the Sun, Hash Pipe og
Dope Nose sem endurvöktu vin-
sældir Weezer svo um munaði.
Nú, þremur árum síðar, er
fimmta plata Weezer komin út.
Fyrsta smáskífulagið, Beverly
Hills, hefur þegar hljómað í út-
varpi í nokkurn tíma við miklar
vinsældir og svo virðist sem
Weezer sé ekki að fara að missa
neina aðdáendur á næstunni, held-
ur þvert á móti. ■
Weezer-aðdáendur gleðjast á ný
Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Liðsmenn Weezer í góðurm félagsskap Larry Flynt og vinkvenna hans á Playboy-setrinu. Myndbandið við smá-
skífulagið Beverly Hills var tekið upp á setrinu.
tonlist@frettabladid.is
Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI
Fischerspooner: Odyssey
Garbage: Bleed Like Me
Hot Hot Heat: Elevator, Pan: Virgins
Coldplay: A Rush of Blood to the Head
Mariza: Transparente
>
G
ar
ba
ge
>
H
ot H
ot H
eat
Sverrir undirbýr sólóplötu
> Popptextinn ...
„I hear you all ask ‘bout the meaning of
scat. Well I’m the professor and all I can
tell you is while you’re still sleepin’ the
saints are still weepin’ ‘cause things you
call dead haven’t yet had the chance to
be born. I’m the Scatman.“
- Scatman John, sem tryllti heimsbyggðina
með sérstökum teknódjasssöng sínum á
tíunda áratugnum, er horfinn á vit feðra
sinna en arfleifð hans og boðskapur lifir.
Fyrrverandi hjólabrettasnillingur
Albert Hammond Jr., gítar-
leikari rokksveitarinnar The
Strokes, var afar fær hjóla-
brettastrákur á sínum yngri
árum. Þetta kemur fram í
nýrri ævisögu föður hans, Al-
bert Hammond, sem er
einnig að gefa út sína fyrstu
plötu í 23 ár, Revolution of
the Heart.
„Það er skrítið að þessar
fréttir litu ekki dagsins ljós
fyrr,“ sagði Hammond yngri.
„Það undarlega er að ég sýndi
oft listir mínar fyrir framan
5.000 manns og var aldrei
taugastrekktur en þegar ég
steig upp á svið í fyrsta sinn
voru fjórir að horfa á og ég
ældi,“ sagði hann. ■
ALBERT HAMMOND JR.
Gítarleikarinn snjalli sýndir listir sínar
á hjólabrettum á sínum yngri árum.
FOO FIGHTERS
Best Of You
WHITE STRIPES
Blue Orchid
SYSTEM OF A DOWN
B.Y.O.B
WEEZER
Beverly Hills
INTERPOL
C’mere
OASIS
Lyla
KASABIAN
L.S.F
GORILLAZ
Feel Good Inc.
COLDPLAY
Speed Of Sound
MY CHEMICAL ROMANCE
Helena
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
70-71 (38-39) Tónlist 4.5.2005 20:07 Page 2