Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.06.2005, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 30.06.2005, Qupperneq 1
Me› gæsahú› í litlum kassa VIÐTAL VIÐ TÓNLISTARMANNINN ANTONY: ▲ SJÁ SÍÐU 52 TÓNLIST: MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 EINKAVÆÐING Efasemdir um hæfi Halldórs Ásgrímssonar forsæt- isráðherra við sölu á hlut ríkis- ins í Búnaðarbankanum hlutu að vakna um leið og S-hópurinn svokallaði skilaði inn tilkynn- ingu um áhuga á kaupum á hlut í bankanum. Þetta kemur fram í álitsgerð sem tveir hæstaréttar- lögmenn hafa unnið að beiðni stjórnarandstöðunnar vegna hæfis forsætisráðherra við söl- una á Búnaðarbankanum árið 2003. Í álitsgerðinni er minnisblað Ríkisendurskoðunar, sem afhent var formanni fjárlaganefndar 13. júní síðastliðinn, gagnrýnt mjög. Í álitsgerðinni kemur fram að vegna tengsla forsætis- ráðherra við þá einstaklinga sem voru í forsvari fyrir S-hóp- inn hafi verið ljóst að efasemdir um hæfi hans hljóti að hafa vaknað strax í upphafi þegar S- hópurinn ásældist bankann. Forsætisráðherra hefur með- al annars bent á að hann var í veikindaleyfi þegar ákvörðun var tekin um sölu Búnaðarbank- ans og því hafi hann ekki verið vanhæfur. Í álitsgerðinni segir hins vegar að veikindaleyfi Halldórs hafi enga afgerandi þýðingu haft við meðferð máls- ins. -hb / Sjá nánar bls. 22. Efasemdir um hæfi Halldórs Ásgrímssonar í álitsgerð fyrir stjórnarandstöðu: S-hópurinn tengdist forsætisrá›herra HANGIR VÆNTANLEGA ÞURR norðaustan til á landinu. Annars rigning. Mikil rigning á Suðausturlandi. Hiti 10-17 stig, hlýjast á norðausturhorninu. VEÐUR 4 FIMMTUDAGUR 30. júní 2005 - 174. tölublað – 5. árgangur Klámvæðingin heldur áfram Félagsmálaráðherra skal taka orð ís- lenskra kvennasamtaka alvarlega og gera allt sem í hans valdi stendur til þess að koma í veg fyrir að ríkisfyrir- tæki dreifi klámi, segir Kristín Tómasdóttir. Henni ofbýður líka að nektarstaðir aug- lýsa í fótboltablöðum sem höfða meðal annars til barna. UMRÆÐAN 31 Miklu munar á bílalánum Munað getur hundruðum þúsunda króna á endurgreiðslum bílalána eftir því hjá hverjum lánið er tekið. Þannig getur lántökukostnaður í gefnu dæmi verið frá 385 þúsund krónum upp í 600 þúsund krónur. Í fótspor Rios Ferdinands Ólafur Gottskálksson varð í gær fyrsti knattspyrnumaðurinn á Englandi sem fær leikbann fyrir að skrópa í lyfjapróf frá því að stórstjarna Man. Utd, Rio Ferdinand, skrópaði á sínum tíma. Enska knattspyrnu- sambandið vill útiloka Ólaf frá keppni í öllum löndum alþjóða knattspyrnu- sambandsins, FIFA. ÍÞRÓTTIR 36 Me› brotinn hæl og gat á tánni GUÐRÚN LÍSA EINARSDÓTTIR: Í MIÐJU BLAÐSINS ● tíska ● heimili ▲ SKÁLDIÐ OG ATHAFNASKÁLDIÐ Þeir létu fara vel um sig á 101 hóteli á Hverfisgötunni í gær, rithöfundurinn Einar Kárason og athafna- skáldið Jón Ólafsson, þar sem þeir unnu að ritun ævisögu þess síðarnefnda, Einar með hönd undir kinn og Jón með símann í hendinni. „Þetta er mjög skemmtilegt verkefni og ótrúlega fjölbreytt,“ segir Einar, sem búinn er að tala við milli 50 og 100 manns vegna bókarinn- ar. Bækur hans hafa margar hverjar verið mjög litríkar og jafnvel lygilegar. „Ég hef grun um að þessi verði það líka,“ segir Einar enda líf Jóns á tíðum lygilegt. Lífeyrissjó›ur bankamanna stefnir ríki og Landsbanka Þrjúhundruð og fimmtíu þúsund króna afsláttur af sérvöldum bílum BETRI NOTAÐIR BÍLAR FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA VEÐRIÐ Í DAG HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Tengdist Finni Ingólfssyni mjög sterkt segir í álitsgerð. Springsteen á Keflavíkurvelli: Spila›i fyrir næturvaktina FLUGSTÖÐ Starfsmenn á Keflavík- urflugvelli duttu í lukkupottinn þegar sjálfur Bruce Spring- steen millilenti hér á landi í fyrrinótt. Ekki var nóg með að Spring- steen hefði við- komu heldur dró hann fram gítarinn sinn og spilaði sex lög fyrir starfs- m e n n i n a . Starfsfólkið lét vel af Spring- steen og sagði hann hafa verið mjög alþýðleg- an. Springsteen er um þessar mundir á tónleikaferð að fylgja eftir nýrri plötu sinni sem nefnist Devils & Dust. LÍFEYRISMÁL Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna hefur ákveðið að stefna Landsbanka Íslands, fjár- málaráðherra og viðskiptaráð- herra vegna vaxandi skuldbind- inga sjóðsins, en þær má að um- talsverðu leyti rekja til launa- skriðs meðal bankamanna í kjölfar einkavæðingar ríkisbankanna. Stefna sjóðsins var afhent for- svarsmönnum Landsbankans á þriðjudag. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er aðalkrafa Lífeyrissjóðs bankamanna sú að Landsbankinn ábyrgist auknar lífeyrisskuldbind- ingar samfara verulegum launa- hækkunum í bankanum með svo- kallaðri bakábyrgð. Slík ábyrgð var fyrir hendi til ársins 1997 þeg- ar stjórnvöld breyttu bankanum í hlutafélag og telur lífeyrissjóður- inn að sú ábyrgð sé enn í gildi. Til vara krefst Lífeyrissjóður bankamanna 2,6 milljarða króna skaðabótagreiðslu til þess að mæta auknum þunga lífeyris- greiðslna. Vandi Lífeyrissjóðs banka- manna var ræddur á aðalfundi hans í apríl síðastliðnum, en þá stóðu vonir til þess að viðræður við forsvarsmenn Landsbankans skiluðu árangri. Af því hefur ekki orðið og af þeim sökum stefnir sjóðurinn bankanum nú. Vandi lífeyrissjóðsins felst einkum í því að laun bankamanna hafa hækkað verulega eftir að rík- isbankarnir voru einkavæddir. Lífeyrisskuldbindingar í hlutfalls- deild Lífeyrissjóðs bankamanna miðast við þau laun sem banka- maður hefur við starfslok. Ið- gjaldagreiðslur Landsbankans og starfsmanna frá fyrri tíð hrökkva því hvergi nærri fyrir lífeyris- greiðslum sem taka mið af mun hærri launum en ráð var fyrir gert í útreikningum 1997 og 1998. Landsbankanum er stefnt þar sem um 75 prósent umræddra skuldbindinga snerta bankann og starfsmenn hans fyrr og nú. Fullyrt er að tapi Lífeyrissjóð- ur bankamanna málinu fyrir dóm- stólum eigi sjóðurinn ekki annan kost en að skerða lífeyrisgreiðslur til sjóðsfélaga. Tapi Landsbankinn málinu má hins vegar búast við því að Samson og aðrir eigendur bankans telji sig hafa greitt of hátt verð fyrir bankann og krefjist milljarða króna endurgreiðslu. -jh / Sjá síðu 2 Launaskri› í Landsbankanum eftir einkavæ›ingu eykur skuldbindingar Lífeyrissjó›s bankamanna langt umfram getu sjó›sins. Stjórn sjó›sins krefur bankann um bakábyrg› ellegar 2,6 milljar›a króna grei›slu. LANDSBANKINN Krafinn um bakábyrgð vegna lífeyrisskuldbindinga. SPRINGSTEEN Tók fram gítarinn. sjá síðu 43 NEYTENDUR 26
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.