Fréttablaðið - 30.06.2005, Síða 4

Fréttablaðið - 30.06.2005, Síða 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 64,96 65,28 117,53 118,11 78,34 78,78 10,52 10,58 9,91 9,97 8,30 8,35 0,59 0,59 95,23 95,79 GENGI GJALDMIÐLA 30.06.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 110,36 -0,10% 4 30. júní 2005 FIMMTUDAGUR Skýrslur Rannsóknarnefndar umferðarslysa: Fækka má banaslysum um fimmtung UMFERÐARÖRYGGI Fækka má banaslysum í umferðinni um fimmtung ef landsmenn nota bíl- beltin alltaf. Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar um- ferðarslysa um banaslys í umferð- inni á síðasta ári. 23 létu lífið í 20 umferðarslys- um í fyrra, jafnmargir og árið áður. Flest banaslysin voru á suður- og suðvesturhorninu og á Norður- landi. Helsta orsök banaslysa var sú að bílbeltin voru ekki notuð. Slysum hefur fækkað hlutfalls- lega ef miðað er við hversu mikið landsmenn keyra og þá aukningu sem hefur orðið á því. Í saman- burði við önnur lönd er Ísland rétt yfir meðallagi hvað varðar fjölda banaslysa, en mest er um banaslys á Íslandi og í Danmörku af Norður- löndunum. Í skýrslu um umferðarslys er- lendra ferðamanna kemur fram að slysum erlendra ferðamanna á bílaleigubílum hefur fjölgað veru- lega undanfarin ár, þrátt fyrir for- varnarátak á bílaleigum. Orsakir slysanna eru mistök ökumanna sem má rekja til vanþekkingar á aðstæðum, svo sem akstri í lausa- möl, fremur en hraðaaksturs eða ölvunaraksturs. -rsg Stefnir biskupi og samstarfsfólki sínu Sveinn Andri Sveinsson hefur fyrir hönd Hans Markúsar Hafsteinssonar stefnt málsa›ilum sem vilja hann úr starfi sóknarprests í Gar›asókn. Áfr‡junarnefnd fijó›kirkjunnar sta›festir úrskur› um a› flytja eigi Hans Markús til í starfi. DEILUMÁL „Strax í kjölfar niður- stöðu áfrýjunarnefndar stefndi ég biskupi, fyrir hönd Þjóðkirkjunn- ar, og öðrum málsaðilum fyrir Héraðsdóm Reykjaness til að krefjast ógildingar þess að Hans Markúsi skuli gert að færa sig til í starfi,“ segir Sveinn Andri Sveinsson lögmaður Hans Mark- úsar Hafsteinssonar sóknarprests í Garðasókn. „Vald nefnd- arinnar náði ekki til þess að færa hann til í starfi. Sem sóknar- prestur er hann embættismaður og um hann gilda lög um réttindi og skyldur ríkis- s t a r f s m a n n a . Áfrýjunarnefndin vildi meina að lög um Þjóð- kirkjuna vikju til hliðar lögum um réttindi og skyld- ur ríkisstarfs- manna. Það er í raun verið að segja að þessar nefndir geti vik- ið embættis- mönnum úr starfi þótt þeir séu ráðnir af ráðherra. Í raun er þetta mikið hagsmunamál fyrir alla prestastéttina,“ segir Sveinn Andri. Í úrskurði áfrýjunarnefndar Þjóðkirkjunnar er ákvörðun úr- skurðarnefndar Þjóðkirkjunnar um að færa Hans Markús til í starfi ekki breytt en það var krafa hans. Hins vegar er orðið við þeirri kröfu Hans að mælast til þess að veita Nönnu Guðrúnu Zoëga djákna, Friðrik J. Hjartar sóknarpresti, Matthíasi G. Péturs- syni sóknarnefndarformanni og Arthuri K. Farestveit varafor- manni sóknarnefndar áminningu. Deilurnar í Garðasókn hafa staðið að sögn Nönnu Guðrúnar síðan árið 1997 og hafa alla tíð snúist um samstarfserfiðleika. Samstarfsmenn Hans Markús- ar halda því fram að hann hafi hrakið fólk úr starfi og þar á með- al fyrrum sóknarprest, Bjarna Þór Bjarnason. Þessu hefur Hans Markús vísað á bug. Biskup hefur reynt að sætta málsaðila og ýmis- legt annað hefur verið reynt, til dæmis að fá sálfræðing til að reyna að sætta málsaðila. Þegar haft var samband við málsaðila við vinnslu þessarar fréttar vildu hvorki Nanna Guð- rún, Friðrik né Arthur segja mik- ið um málið á þessu stigi. Hvorki náðist í Matthías né Hans Markús þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Ljóst er að úrskurður dómstóla í málinu er fordæmisgefandi um vald úrskurðar- og áfrýjunar- nefndar Þjóðkirkjunnar. oddur@frettabladid.is Styrkja hjartakaup: Fyrsta íslenska gervihjarta› HEILBRIGÐISMÁL KB banki afhenti í gær minningarsjóði Þorbjörns Árnasonar, Í hjartastað, eina milljón króna til kaupa á fyrsta gervihjart- anu á Íslandi og nauðsynlegum tækjabúnaði sem því fylgir. Gervihjörtu, eða aðstoðarhjörtu, hafa valdið byltingu í hjartaskurð- lækningum. Þau dæla blóði úr biluð- um vinstri slegli hjartans yfir í ósæð og þannig um allan líkamann. Fyrsta gervihjartað verður grætt í sjúkling hér á landi í haust á Land- spítala-Háskólasjúkrahúsi. Í hjarta- stað var stofnaður til minningar um Þorbjörn Árnason lögfræðing sem lést fyrir aldur fram árið 2003 úr hjartasjúkdómi. - rsg DEILURNAR Í GARÐAPRESTAKALLI: Atburðirnir í tímaröð Janúar 2004: Nanna Guðrún Zoëga djákni kvartar undan störfum Hans Markúsar á fundi sóknarnefndar. Sóknar- formaðurinn, Matthías G. Pét- ursson, blandar sér í málið. Júlí 2004: Biskup boðar sættir í málinu en enginn málsaðila fellst á þær. Apríl 2005: Úrskurðunarnefnd Þjóðkirkjunnar færir Hans Markús til í starfi vegna aga- og siðferðisbrota. Hans Mark- ús hins vegar situr sem fastast. Hans Markús segir í Frétta- blaðinu að hann hafi fengið hótanir með sms-skilaboðum úr síma eiginmanns Nönnu Guðrúnar. Hans Markús hafði kært það sem hann kallar ein- elti til úrskurðunarnefndarinn- ar sem taldi sannanir ónógar. Maí 2005: Hans Markús kærir úrskurði úrskurðunarnefndar- innar til áfrýjunarnefndar Þjóðkirkjunnar. Júní 2005: Sóknarbörn í Garðasókn segjast vera leið á deilunum og þeim töfum sem orðið hafa á málsmeðferð og hugleiða að stofna nýja kirkju. Áfrýjunarnefnd Þjóðkirkjunnar staðfestir úrskurð úrskurðun- arnefndar um að víkja Hans Markúsi úr starfi. Sveinn Andri Sveinsson lög- maður Hans Markúsar stefnir öðrum málsaðilum. UMHVERFISMÁL Fyrsti metanknúni sorpbíll landsins var tekinn í notkun í gær. Hann er mun hljóðlátari en hefðbundnir díselbílar og veldur 80 prósent minni sótmengun, auk þess sem útblástur köfnunarefnisoxíðs er 60 prósent minni en í venjulegum sorpbílum. Reykjavíkurborg stefnir að því að allir tíu sorpbílar borgar- innar verði knúnir metani á næstu árum. Metangasið sem sorpbíllinn gengur fyrir er unnið úr sorpi borg- arbúa í Álfsnesi.Umhverfissvið Reykjavíkurborgar leigir bílinn, sem er Mercedes-Benz Econic, af Vélamiðstöðinni ehf. - rsg VEÐRIÐ Í DAG HANS MARKÚS HAFSTEINSSON Sóknarprestur í Garðasókn hefur stefnt samstarfsmönnum sínum og biskupi fyrir hönd Þjóðkirkjunnar fyrir að reyna að hrekja sig ólöglega úr starfi. SVEINN ANDRI SVEINSSON MATTHÍAS G. PÉT- URSSON FUNDUR RANNSÓKNARNEFNDAR UM- FERÐARSLYSA Í skýrslunni kemur nefndin á framfæri fjölda ábendinga um hvað gera megi til að draga úr banaslysum. METANKNÚNI SORPBÍLLINN AFHENTUR Borgarstjóri tók við lyklunum að bílnum. Umhverfisvernd: Metanknúinn sorpbíll Kaupmenn í miðbænum: Vilja sama opnunartíma VERSLUN Kaupmenn við Laugaveg í Reykjavík vilja langflestir sam- ræma opnunartíma verslana í miðbænum samkvæmt könnun sem Þróunarfélag miðborgarinn- ar gerði nýlega. Var meirihluti þeirra, alls 119 af þeim 177 sem þátt tóku, sam- mála um að hafa verslanir opnar á sama tíma virka daga frá klukkan tíu til sex á daginn. Öllu færri voru sammála um hentugan opn- unartíma á laugardögum en flest- ir á því að hafa opið frá tíu til fjög- ur. Mikill meirihluti vildi hafa lok- að á sunnudögum. -aöe

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.