Fréttablaðið - 30.06.2005, Page 10

Fréttablaðið - 30.06.2005, Page 10
SUMAR VIÐ ANDAPOLLINN Sumarið er loks komið á Akureyri og notuðu þessir fuglavinir blíðuna til að gefa fuglunum á Andapollinum við sundlaugina brauð. 10 30. júní 2005 FIMMTUDAGUR Golfvöllur Kjalar í Mosfellsbæ: Stórskemmdur eftir hross UMHVERFISMÁL Töluverðar skemmd- ir urðu af völdum hrossa á golfvelli golfklúbbsins Kjalar í Mosfellsbæ fyrr í mánuðinum. Unnið hefur ver- ið að lagfæringum, en tíma tekur að græða upp traðkið eftir hrossin. „Það er talið að um hafi verið að ræða hrossarekstur úr bænum sem var á leiðinni upp í dal,“ segir Hauk- ur Hafsteinsson umsjónarmaður golfvallarins. „Við fengum allir sjokk þegar við sáum þetta. Þeir sem hlut áttu að máli létu hins veg- ar ekkert vita, sem hefði þó óneitan- lega verið skemmtilegra, heldur riðu bara áfram. Að minnsta kosti tveir hestar fóru inn á völlinn og jafnvel maður á hesti að elta þá. Hestarnir virðast hafa verið á stökkferð, því það voru spyrnuför eftir þá.“ Haukur segir, að strax hefði ver- ið farið í að græða skemmdirnar upp. Veðrið hefði hjálpað til með vætunni, þannig að völlurinn væri nú óðum að jafna sig. „Við höfum verið í fyrirtaks samvinnu við hestamenn í Mosfells- bæ,“ segir Haukur. „Við vitum að þeir áttu klárlega engan hlut að máli þarna.“ -jss HAUKUR HAFSTEINSSON Við eina flötina á golfvellinum sem hrossin hlupu yfir og skemmdu verulega. Ney›arástand á Ítalíu HITABYLGJA „Því er spáð að hitinn geti farið upp í 40 til 45 stig í heitustu borgunum. Það er neyð- arástand í landinu, tíu manns hafa þegar látist, en á sunnudag- inn lést sextugur Þjóðverji á ströndinni hér í bænum,“ segir Jóhanna Guðrún Gunnarsdóttir fararstjóri fyrir Úrval- Útsýn á Lido di Jesolo rétt hjá Feneyj- um. Á Ítalíu er heitast í Mílanó, Flórens, Róm, Bologna og Brescia þar sem hitastig hefur verið um 35 gráður. Ástandið er verst í stórborgum Norður-Ítal- íu vegna mengunar og gamalla húsa þar sem ekki er loftkæling en Jóhanna Guðrún segir að hit- inn angri ferðamenn við strönd- ina ekki eins mikið. „Við erum að horfast í augu við hitabylgju sem er jafnstór ef ekki stærri en sú sem skall á 2003 og um það bil ein milljón manna eru í hættu,“ sagði Francesco Storace heilbrigðis- málaráðherra Ítalíu við Reuters fréttastofuna. Árið 2003 létust 20.000 manns vegna hitans, flest eldra fólk. Yfirvöld á Ítalíu hafa beðið lækna um að fylgjast vel með öldruðum sjúklingum sín- um sem eru í mestri hættu. Á mánudag var nýtt met slegið í rafmagnsnotkun á Ítalíu vegna mikillar notkunar loftkælikerfa. Á Norður-Ítalíu valda miklir þurrkar vandræðum og óttast menn uppskerubrest. Sunnar- lega á Spáni hefur hitastig sums staðar farið upp í 40 gráður og verstu þurrkar í 60 ár hrjá land- ið. „Hér er vel heitt en það er ekki hægt að tala um hitabylgju enn þá,“ segir Kristinn R. Ólafs- son sem búsettur er í Madríd en hitinn þar er í 30 gráðum. „Vandinn er mikill á suðaustur Spáni, Alicante og þar um kring, þar sjá menn fram á vandræði vegna þurrka,“ segir hann. Heilbrigðisráðherra Frakk- lands, Xavier Bertrand, hefur komið af stað neyðaráætlun vegna hugsanlegrar hitabylgju í Frakklandi sem felst í því að fylgjast með um 100.000 manns sem taldir eru viðkvæmir fyrir hita. -rsg Hraðakstur: Tíu teknir í Skagafir›i LÖGREGLA Tíu voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur, tíu bílar voru óskoðaðir og fimm ökumenn voru án ökuskírteinis á fyrsta degi um- ferðareftirlitsátaks samgöngu- ráðuneytis og lögreglu í Skaga- firði á þriðjudag. Ríkislögreglustjóri heldur utan um eftirlitið, en lögregluumdæmi landsins skiptast á um að vakta vegkafla hér og hvar um landið. Að sögn lögreglu á Sauðárkróki eru 40 milljónir króna eyrnamerktar verkefninu og hafa myndavélar verið keyptar í gæslubíla þannig að einn lögreglumaður geti sinnt hraðamælingum. - óká KIRKJAN Ákveðið var á valnefndar- fundi í Reykhólaprestakalli að leggja til að Sjöfn Þór guðfræðingur yrði skipuð sóknarprestur. Val- nefndin hefur því lokið störfum en kirkjumálaráðherra skipar í emb- ættið samkvæmt niðurstöðu henn- ar. Sjö aðrir umsækjendur voru um embættið. Sjöfn Þór útskrifaðist sem guð- fræðingur árið 2003 og hefur síðan verið þjónustufulltrúi Kjalarnes- prófastsdæmis, ásamt því að vera formaður Æskulýðssambands kirkj- unnar og í stjórn samkirkjulegra samtaka ungs fólks í Evrópu. ■ Reykhólaprestakall: Mælt me› Sjöfn fiór REYKHÓLAR Valnefnd í Reykhólaprestakalli mælir með Sjöfn Þór. MALAVÍ BANVÆNAR UMRÆÐUR Rodwell Munyenyembe, þingforseti Malaví, lést í fyrradag en hann fékk hjarta- áfall í þinginu í umræðum um van- traust á Bingu wa Mutharika for- seta landsins. Þegar átök virtust í aðsigi barði Munyenyembe fundar- hamrinum hraustlega í pontuna en hneig að því búnu niður. Tíu manns hafa flegar látist vegna gífurlegra hita á Ítalíu. Rá›amenn í Su›ur-Evrópu búa sig undir hækk- andi hitastig og óttast hitabylgju í líkingu vi› flá sem var› fjölda fólks a› bana sumari› 2003. FRAKKLAND Gamall maður fluttur á sjúkrahús vegna hitans í suður Frakklandi en talið er að tveir hafi látist í landinu nú þegar. VATIKANIÐ Ferðamenn kæla sig fyrir framan Péturskirkjuna í Róm þar sem hitinn var í 35 gráðum. FASTEIGNIR Samhliða háu fast- eignaverði í Reykjavík hefur orðið mikil hækkun á verði jarða í nágrenni borgarinnar. Magnús Leópoldsson, fasteignasali, telur jafnvel að jarðaverð hafi hækkað meira en almennt fasteignaverð, en erfitt sé að draga heildstæðar ályktanir af verði á jörðum, þar spili margt inn í og þurfi að meta hvert tilfelli fyrir sig. „Ef við erum komin yfir Hellisheiði eða upp í Borgarfjörð munar um hvern kílómetra, þannig að þær verða ódýrari eftir því sem þær eru lengra frá höfuðborgarsvæð- inu. Þetta hefur þó verið að breytast. Nú eru víðar þéttbýlis- svæði á landinu og jarðirnar dýr- ari þar í kring.“ Magnús segir að almennt sé mikill áhugi á jörðum á landinu og sá áhugi hafi lengi verið til staðar, ekki endilega að fólk vilji byggja sumarbústaði eða stunda búskap heldur setjast að á jörðum í kring um þéttbýlin. „Fólk vill eiga heima í útjaðri þéttbýlis þar sem það getur haft nóg pláss í kring um sig.“ - at SVEITABÆR Í ÁRNESSÝSLU Verð á jörðum verður hærra eftir því sem lengra er farið frá höfuðborgarsvæðinu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E VA H R EI N SD Ó TT IR Verð á jörðum hefur hækkað: Vill r‡mi og rólegheit FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.