Fréttablaðið - 30.06.2005, Side 28
Meira síðar: þessu lofaði ég les-
endum mínum að leiðarlokum
fyrir hálfum mánuði. Málsefnið
var örbirgð Afríku og færar
leiðir til að sigrast á henni.
Kannski virkjun? – spurði ég. Ég
átti ekki við Kárahnjúka, hafi
einhver haldið það, heldur
Kongó.
Kongó? Já, Kongó.
Málið er þetta. Afríka á við
mikil og margslungin vandamál
að stríða, og sum þeirra vekja
athygli umheimsins langt um-
fram önnur. Allir vita um heil-
brigðisvandann (eyðni, malaríu
o.fl.), ónóga menntun, hindur-
vitni, útbreidda spillingu o.s.frv.
Hitt vita færri, að orkumál álf-
unnar eru í ólestri – þess konar
ólestri, sem leggur lamandi
hönd á líf fólksins þarna suður
frá. Ég hef lýst því áður í þessu
plássi, að raforkan í Afríku er
svo dýr, að venjulegt fólk hefur
ekki ráð á því að kæla húsin sín
þrátt fyrir þrúgandi hita víðast
hvar, endar slagar rafmagns-
kostnaðurinn við loftkælingu
hátt upp í húsaleiguna. Menn
eiga flestir fullt í fangi með að
standa í skilum með leiguna,
þótt þeir þurfi ekki líka að
punga út allt að því öðru eins
fyrir lúxus á borð við loftkæl-
ingu. Nærri má geta, hversu
dýrt mönnum reynist það þá að
raflýsa húsin sín og borgir og
bæi þarna niður frá. Heiðrík
næturmynd af Afríku segir í
reyndinni allt, sem segja þarf
um þetta mál: rafvæðingu álf-
unnar miklu er ábótavant. Myrk-
ur og svækja draga mátt úr fólk-
inu.
En loftkæling er ekki lúxus í
hitabeltinu, ef að er gáð, heldur
beinlínis lífsnauðsyn. Lee Kwan
Yew, landsfaðir og fyrrv. forsæt-
isráðherra Singapúr, lýsir því í
sjálfsævisögu sinni, hversu al-
menn loftkæling skipti sköpum
fyrir framþróunina þar í landi:
fólkið gekk bókstaflega í gegnum
endurnýjun lífdaganna, þegar
svækjan innan dyra vék fyrir
svölu lofti. Hví skyldi hið sama
þá ekki eiga við annars staðar í
hitabeltinu? Ef það tækist að út-
vega Afríku ódýrt rafmagn,
myndu vellíðan og lífskjör fólks-
ins þar klárlega taka kipp.
Ástandið í orkumálum Afríku
er aðkallandi m.a. vegna þess, að
Kongófljót býr yfir sjöttungi
alls virkjanlegs vatnsafls í heim-
inum. Þessi mikla móða liggur
miðsvæðis um álfuna og er mik-
ilvæg samgönguæð og er þó enn
að mestu leyti óvirkjuð. En nú er
að vísu breyting í vændum.
Suðurafrískt orkufyrirtæki,
Eskom að nafni, býst nú til að
byggja stærstu vatnsvirkjun
heimsins í ármynninu í vestan-
verðri Kongó, ekki langt fyrir
sunnan miðbaug. Áin sprettur
upp í hálöndum Sambíu 1.800
metra yfir sjávarmáli og rennur
rangsælis í risavöxnum niður-
hallandi boga út í Atlantshafið á
vesturströnd Kongó. Ráðgert er,
að virkjunin verði 40 þúsund
megavött að stærð á móti 690
megavöttum í Kárahnjúkavirkj-
un til viðmiðunar. Virkjunin í
Kongó verður því sextíu sinnum
aflmeiri en Kárahnjúkavirkjun
og tvisvar til þrisvar sinnum afl-
meiri en stærsta virkjun heims-
ins nú, en hún er í Gulafljóti í
Kína. Vatnsorkan í Kongófljóti
mun trúlega duga allri Afríku og
vel það. Þarna verða engin uppi-
stöðulón, heldur verða lykkjur
lagðar á fljótið og vatninu veitt í
gegnum túrbínur utan megin-
straumsins og síðan aftur út í
ána til að halda umhverfisrask-
inu í lágmarki, svo sem gert
hefur verið í Kanada, Noregi og
Sviss. Orka verður afgangs
handa Suður-Evrópu, enda þótt
Afríka rafvæðist til fulls – eða
svo segja þeir hjá Eskom. Ætlan-
in er að samtengja orkunet álf-
unnar, svo að rafmagnið flæði
hindrunarlaust yfir landamærin
um alla álfu.
Áætlaður virkjunarkostnaður
í Kongó er 50 milljarðar Banda-
ríkjadollara og jafngildir
tveggja mánaða landsfram-
leiðslu allra Afríkulanda sunnan
Saharaeyðimerkurinnar. Það er
mikið fé. Vonir standa til, að Al-
þjóðabankinn og einkafjárfestar
leggi fé í púkkið. Aðeins fimm til
tíu prósent Afríkubúa hafa nú
aðgang að rafmagni. Einmitt
þannig var ástatt fyrir Íslandi,
þegar Einar Benediktsson skáld
og aðrir reyndu að opna augu
þjóðarinnar fyrir nauðsyn raf-
væðingar og virkjunar fallvatn-
anna hér heima í byrjun 20. ald-
ar. Virkjun vatnsorkunnar dróst
von úr viti fyrir þrjózku og
þröngsýni heimamanna og er
fyrst nú að ná máli – nú, þegar
rafvæðingu Íslands er löngu
lokið og menn greinir á um það,
hvort stórvirkjanir á borð við
Kárahnjúkavirkjun fullnægi
kröfum nútímans til umhverfis-
verndar, menntunar og atvinnu-
lífs í okkar heimshluta. Afríka
gerir aðrar kröfur. Þar er af
nógu að taka: Níl er tvö þúsund
kílómetrum lengri en Kongó og
er einnig að mestu leyti óbeizluð
enn. ■
Tímamót eru í dag í sölu eldsneytis á Íslandi, þegar loksverður farið að selja litaða olíu og hætt verður að inn-heimta sérstakan þungaskatt af litlum dísilbílum. Það
er með ólíkindum að þetta skuli ekki hafa gerst fyrr, líkt og
í flestum ef ekki öllum nágrannalöndum okkar. Þeir sem
hafa átt mikilla hagsmuna að gæta varðandi þessa breytingu
eins og fyrirtæki og einstaklingar sem stunda þunga-
flutninga hafa gert athugasemdir við þessa breytingu. Þeir
munu eftir sem áður greiða kílómetragjald og nota þá litaða
olíu.
Víðast hvar í nágrannalöndunum er dísilolían ódýrari en
bensín, en hér verður þessu öfugt farið. Upphaflega var við
það miðað að olían yrði ódýrari en bensínið og það var ein af
röksemdunum fyrir því að þessi breyting var samþykkt. Af
einhverjum orsökum stefnir allt í að bensínið verði ódýrara,
hvaða rök sem kunna að liggja þar að baki.
Þróunin hefur verið sú í nágrannalöndunum að fleiri og
fleiri fólksbílar nota dísilolíu, og er nú svo komið að um
helmingur nýrra fólksbíla í Evrópu er með dísilvél og í
sumum löndum er hlutfallið jafnvel enn hærra. Stjórnvöld
hafa víða með ákveðnum hætti stuðlað að því að fólk kaupi
sér frekar fólksbíla með dísilvél en bensínvél. Haldið hefur
verið uppi áróðri um að slíkir bílar séu sparneytnari og
betri fyrir umhverfið, því mun minni útblástursmegin er
frá dísilbílunum. Í samræmi við þetta hafa stjórnvöld stuðl-
að að því að dísilolían sé ódýrari en bensínið. Það er því nær
óskiljanlegt hvers vegna stjórnvöld hér hafa ekki farið
sömu leið og skuldar fjármálaráðuneytið bíleigendum skýr-
ingar á því.
Stóru og þungu langflutningabílarnir munu eftir sem áður
aka eftir kílómetramæli og greiða þungaskatt samkvæmt
eknum kílómetrum, en ekki olíueyðslu. Það verða því litlu
fólksbílarnir sem áfram munu aðallega standa undir vega-
framkvæmdum í landinu, svo öfugsnúið sem það nú er. Jafn-
framt því sem nær allir þungaflutningar fara nú fram á
landi og umferð langflutningabíla hefur þar af leiðandi stór-
aukist hefur verið sýnt fram á að þessir stóru og þungu bílar
slíta vegunum þúsundfalt á við fólksbíla. Reiknað hefur
verið út að einn fullhlaðinn langflutningabíll slíti vegunum á
við meira en 30 þúsund venjulega fólksbíla. Það nær því
ekki nokkurri átt að slíkir bílar greiði hlutfallslega mun
minni þungaskatt en léttari bílar. Með vaxandi landflutning-
um er ljóst að vegakerfið þarf mun meira viðhald og endur-
bætur, ef vel á vera, og þess vegna eiga þeir sem slíta
vegunum mest að greiða það sem þeim ber. Það er svo
spurning hvort stjórnvöld gæti gert eitthvað til að stuðla að
auknum sjóflutningum milli landshluta. Víða um land hafa á
undanförnum árum verið lagðir miklir fjármunir í hafnar-
gerð og nú er svo komið að margar hafnir eru sáralítið eða
ekkert notaðar til sjóflutninga. Þær koma að vísu að góðu
gagni fyrir smábáta og bryggjuhátíðir, en það er ekki nóg. ■
30. júní 2005 FIMMTUDAGUR
SJÓNARMIÐ
KÁRI JÓNASSON
Þungaskattur af litlum dísilbílum verður
framvegis innifalinn í olíuverðinu.
Olían d‡rari
en bensíni›
FRÁ DEGI TIL DAGS
Ódýrari töskur
Afgreiðslutím
ar
versla
na!
Office 1 Smára
lind
Virka daga frá
11-19,
laugardaga 11
-18,
sunnudaga 13
-18
Office 1 Skeifu
nni 17
Virka daga frá
9-18,
laugardaga frá
11-16
Office 1 Akure
yri
Office 1 Egilss
töðum
Virka daga frá
11-18,
laugardaga frá
11-14
13.995,-
FERÐATÖSKUSETT
4023008-EGI
Fjórar
SAMAN!
Loftkæling hitabeltisins
Endurhvarf til eitís
Búast má við mikilli örtröð við Egilshöll
í kvöld þar sem margir þeir sem voru
upp á sitt besta á níunda áratug síð-
ustu aldar koma saman til að hlýða á
Duran Duran. Mikið hefur farið fyrir
umræðu um tónleikana að undanförnu
og reyna menn að endurvekja deilur
aðdáenda hljómsveitanna sem ku hafa
tröllriðið íslensku þjóðfélagi
fyrir tveimur áratugum eða
svo. Og þó Duran Duran-
aðdáendur telji sig væntan-
lega sigurvegara í kvöld
geta Whammarar
huggað sig við að
sleppa við umferðar-
teppu eftir tónleika.
Eftir Iron Maiden-
tónleikana 7. júní
voru enn langar bílarunur á leið frá
tónleikastað tveimur tímum eftir tón-
leikana.
...viljann fyrir verkið
Meðal þeirra sem hafa reynt að endur-
vekja deilurnar eru Orri Hauksson
(Duran Duran) og Svavar Örn (Wham)
sem voru kallaðir í Kvöldþáttinn á Sirk-
us í fyrrakvöld til að ræða um
hljómsveitirnar. Hvor reyndi
að tala hinn í kútinn, lof-
syngja sína sveit og níða skó-
inn af hinni. Eitthvað virtist
tónninn þó innantóm-
ur, helst að menn
reyndu að rifja upp
gamla tíma án þess
þó að missa ekki fram
af sér beislið sem
þroskuðum og fullorðnum einstakling-
um sem væru vaxnir upp úr þessu.
Nýr banabiti
Héðan heldur hljómsveitin til Rómar
þar sem hún tekur þátt í Live 8-tónleik-
um, ein fárra hljómsveita sem tróðu
upp á Live Aid fyrir tveimur áratugum
og aftur á Live 8 núna. Margir telja
reyndar að frammistaða hljómsveitar-
innar á Live Aid hafi verið banabiti
hljómsveitarinnar. Þá var Simon Le
Bon, söngvari hljómsveitarinnar, svo
rammfalskur að jafnvel hörðustu aðdá-
endur hljómsveitarinnar áttu í vand-
ræðum með að afsaka sveitina. Svo er
spurning hvort Duran Duran standi sig
betur í þetta skiptið eða hvort hnignun
hljómsveitarinnar hefjist á ný.
brynjolfur@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL-
SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA:
Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
LESTU GREININA Á VISIR.IS
OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA
Í DAG
ORKUMÁL Í AFRÍKU
ÞORVALDUR
GYLFASON
Hei›rík næturmynd af Afríku
segir í reyndinni allt, sem segja
flarf um fletta mál: rafvæ›ingu
álfunnar miklu er ábótavant.
Myrkur og svækja draga mátt
úr fólkinu.