Fréttablaðið - 30.06.2005, Blaðsíða 31
Góðan dag!
Í dag er fimmtudagur 30. júní,
181. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 3.03 13.31 23.58
AKUREYRI 1.54 13.16 24.35
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Guðrún Lísa Einarsdóttir, söngkona í
hljómsveitinni Ísafold, tengist fötun-
um sínum og skóm sterkum persónu-
legum böndum og getur ómögulegt
hent hlutum úr fataskápnum sínum.
„Ég á eitt skópar sem ég held mikið upp á.
Það eru svört lág leðurstígvél í anda Hróa
Hattar. Ég keypti þau fyrir einu og hálfu ári
í Spútnik og ég gæti ekki lifað án þeirra,“
segir Guðrún Lísa.
„Hællinn er dottinn af þeim og það er
gat á tánni þannig að þegar rignir verð ég
blaut í fæturna um leið,“ segir Guðrún Lísa
og hlær dátt en hún notar stígvélin aðallega
þegar hún spilar með hljómsveitinni sinni.
„Ég nota þá alltaf þegar ég spila. Ég held
þeir gefi mér einhverja góða strauma. Svo
eru þeir líka voðalega þægilegir. Ég fékk þá
á tilboði á fimm þúsund krónur og ég held
að þeir hafi ekki verið notaðir. Þeir voru að
minnsta kosti mjög vel með farnir – en þeir
eru það ekki núna,“ segir Guðrún Lísa og
flissar.
Guðrún Lísa hefur ekki komið sér í það
að gera við uppáhaldsskóna og finnst ekki
líklegt að hún gerir það úr þessu. Það er nóg
að gera hjá henni í sumar að spila og syngja
þannig að spurning er hvort hún leggi ekki
skónum í byrjun hausts. „Við vorum að
spila á Gauki á Stöng síðustu helgi og verð-
um í Sjallanum 9. júlí. Svo erum við á stans-
lausum þeytingi í allt sumar þannig að það
er nóg að gera. Ætli við skórnir verðum
ekki bæði steindauð eftir ösina í sumar.“
„Ég á helling af fötum og eins og með
skóna þá tími ég alls ekki að henda þeim. Ég
tengist þeim einhvern veginn og fer á al-
geran bömmer þegar ég tek til í fataskápn-
um mínum,“ segir Guðrún Lísa.
lilja@frettabladid.is
Skór með góða strauma
tiska@frettabladid.is
Lee Ryan, fyrrum meðlimur
strákasveitarinnar Blue, er orðinn
sendiherra fyrir tískumerkið
Dolce & Gabbana. Starfið felst í
því að hann getur valið sér hvaða
föt sem er í tískuhúsinu en hann
þarf að vera í að minnsta kosti
einni af flík D&G þegar hann
kemur fram opinberlega. Stjörnur
eins og David og Victoria Beck-
ham og Kylie Minogue eru
líka sendiherrar fyrir fyrir-
tækið.
Poppgyðjurnar Jenni-
fer Lopez og Britney
Spears setja báðar ilm-
vatn á markaðinn næsta
haust. Jennifer setur
ilminn Live á markað-
inn en Britney ilminn Fantasy.
Jennifer hefur nú þegar sett þrjá
ilmi á markað og hefur notið
mikillar velgengni en Britney að-
eins einn.
Tískuhús Louis Vuitton mun
opna risastóra tískuverslun í
vetur. Lúxusmerkið opnar versl-
unina í París þegar tískuvikan á
sér stað í október. Hönnunar-
teymi Vuitton er um þessar
mundir að hanna vörur sem ein-
göngu verða seldar í versluninni.
Þessar vörur eru til dæmis krókó-
dílaskór fyrir bæði kynin og ný
gerð af Speedy-úrum sem munu
kosta 20.000 dollara og verða
skreytt demöntum og safírum í
lögun Eiffel-turnsins.
Guðrún Lísa notar stígvélin aðallega þegar hún spilar með hljómsveit sinni, Ísafold.
LIGGUR Í LOFTINU
í tísku
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Til hamingju pabbi!
vinur minn hefur
ákveðið að þú sért
hæfur til að ala
upp einn af
kettlingunum hans!
Litskrúðugar skálar
BLS. 7
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 9
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar