Fréttablaðið - 30.06.2005, Side 33
Hinn suðræni og seiðandi Carlos
Santana er best þekktur fyrir fimi
sína á gítarinn góða. Karlinum er
margt til lista lagt og fyrir stuttu
frumsýndi hann nýjar týpur í
kvenskólínu sinni, Carlos by
Carlos Santana, í New York. Car-
los hefur unnið með Brownshoe
skókeðjunni síðan árið 2001 við
gerð skónna og rennur hluti ágóð-
ans til Milagro-sjóðsins sem
styrkir börn og unglinga sem eiga
um sárt að binda.
Skórnir hans Carlosar eru svo
sannarlega sumarlegir og kven-
legir og
greinilegt að
gítarsnilling-
urinn er í góð-
um tengslum
við sitt kven-
lega eðli.
Nýja línan
sem Carlos
kynnti fyrir
skemmstu er
aðeins brot af
því sem koma skal því fjölmargar
nýjar týpur bætast í línuna í júlí
og ágúst.
3FIMMTUDAGUR 30. júní 2005
Margir ferðamenn þekkja stóru verslunarhúsin í París eða galleríin
eins og þau eru stundum kölluð. Printemps, Bon Marche og BHV,
svo nokkur séu nefnd. Eitt vinsælasta verslunarhúsið er líklega
Galerie Lafayette á Haussmann búlvarðinum sem getið er í mörgum
ferðahandbókum. Þangað fara heilu rúturnar af Japönum eftir að
hafa farið hringferð um París.
Eitt elsta verslunarhús Parísarborgar, La Samaritaine, lokaði nú
fyrir tveimur vikum. Að sögn eigenda var það vegna lagfæringa á
húsnæðinu en starfsfólkið er ekki visst um framhaldið. La
Samaritaine er rúmlega hundrað og tuttugu ára fyrirtæki en bygg-
ingin við Rivoligötu sem þessi stórverslun er til húsa í, er um hund-
rað ára gömul og friðuð. Þess vegna þarf nú að fara út í kostnaðar-
samar viðgerðir sem munu taka nokkur ár, meðal annars vegna eld-
varna. Því hefur eigandinn, Louis Vuitton Moet Hennessey ákveðið
að loka meðan á þeim stendur. Starfsfólkið heldur því hins vegar
fram að eigandinn ætli að nota tækifærið og loka til frambúðar.
Efnahagsástand er erfitt í Frakklandi og hafa stóru verslunar-
húsin ekki farið varhluta af því. Printemps er önnur stórverslun
sem ekki gengur sem skyldi og hefur verið sögð til sölu þó François
Henri Pinault, aðaleigandi Gucci group sem aftur á Printemps, hafi
ekki staðfest það. Pinault er reyndar kenndur við Printemps en
verslunarhúsið við Haussmann búlvarð þar sem kventískan er seld
er eitt það fallegasta í París. Nú um helgina lokaði Galerie Lafayette
fyrstu stórversluninni af fimm á landsbyggðinni sem eiga að hverfa
vegna rekstrarerfiðleika.
Þessar stórverslanir reyna nú að endurskapa sér stöðu í verslun-
ar- og tískuheiminum hér í erfiðu efnahagsumhverfi. Printemps
opnaði til dæmis fyrir nokkrum árum lúxushæð þar sem eingöngu
er að finna fínustu tískuhúsin, Dior, Gucci, YSL, Bottega Veneta og
svo mætti lengi telja. Í verslunarheiminum er þetta kallað búð í búð,
„shop in shop“ (fundið upp í Bandaríkjunum). Þar hefur hvert tísku-
hús sitt svæði vel aðskilið frá hinum og meira hægt að tala um versl-
un en sölubás en allir endurgreiðslupappírar á virðisaukaskatti eru
afgreiddir á einum stað. Þessi aðferð virkar mjög vel, sérstaklega
fyrir útlendinga sem kunna vel að meta það að finna allt undir sama
þaki, í loftkældu umhverfi í stað þess að þræða götur borgarinnar í
sumarhitanum. Þetta á til dæmis við um konur frá Sádi-Arabíu eða
Sameinuðu furstadæmunum, sveipaðar kuflum og slæðum frá toppi
til táar. Þær eru ánægðar með að fá að rölta um í svalanum.
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Samaritaine, Galerie Lafayette,
Printemps
Demi Moore
andlit Versace
LEIKKONAN VERÐUR SÍFELLT FALLEGRI
MEÐ ALDRINUM OG VERÐUR ANDLIT
VERSACE NÆSTA HAUST OG VETUR.
Hin 43 ára gamla
leikkona Demi
Moore er nýtt
andlit tískurisans
Versace. Leikkon-
an mun sitja fyrir
á sex auglýsinga-
myndum sem
teknar verða af
hinum vinsæla
ljósmyndara Mario Testino. Auglýsing-
arnar prýða helstu glanstímarit heims í
ágúst á þessu ári en með þessu tekur
Moore við af Madonnu sem var andlit
vor- og sumartískunnar hjá Versace.
Sögur segja að Madonna hafi fengið
10,3 milljónir dollara í sinn hlut en ekki
er ljóst hvað Moore fær.
„Ég hef þekkt Demi Moore í mörg ár
og hún hefur aldrei verið jafn falleg og
hún er núna,“ segir Donatella Versace í
samtali við Women’s Wear Daily.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
ET
TY
Cruz og Combs
vinna saman
SEAN „P. DIDDY“ COMBS VILL
AÐ PENELOPE CRUZ KYNNI
KVENFATALÍNU SÍNA.
Hiphop-stjarnan og fatahönnuðurinn
Sean „P. Diddy“ Combs stendur nú í
samningaviðræðunum við spænsku
leikkonuna Penelope Cruz. Combs vill
ólmur að Cruz verði andlit hinnar nýju
tískulínu sinnar sem mun einfaldlega
heita Sean by Sean Combs. Karlfatalína
rapparans, Sean John, hefur gengið
mjög vel en nú vill Combs auka sölu
nýju kvenfatalínunnar með hjálp suð-
rænu þokkagyðj-
unnar. Combs
ákvað að tala við
Cruz eftir að hann
sá hana í auglýs-
ingu hjá átrúnað-
argoði sínu í
tískuheiminum,
Ralph Lauren.
LAUGAVEGI 62 • SÍMI: 551-5444 KRINGLUNNI SÍMI: 533-4555
ÚTSALAN
BYRJAR
Í DAG
KL. 10
ALLT AÐ
70%
AFSLÁTTUR
Sendum í póstkröfu í t r f
Flottar, brúnar espadrillur.
Carlos var að sjálfsögðu á staðnum enda
stoltur af skónum sínum.
Góðir sandalar á ströndina.
Hvítir sandalar
sem smellpassa í
sumarbrúðkaupin.
Appelsínugulir, sumarlegir og kvenlegir skór.
Nýir skór frá Santana
Fjölmargar nýjar týpur hafa bæst í skólínu gítarleikarans.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
ET
TY
Hagkaupum Smáralind • Hagkaupum Kringlunni
TRYGGÐARBÖND
Margir
litir
Laugavegi 100, S. 561 9444
Brúðarkjólaleiga Dóru /Anna Design Suðurlandsbraut 50 – Bláu húsin við Faxafen
- Sími: 568 2560 Opið mán-fös 10-18 lau 10-14
Brúðarkjólaleiga Dóru