Fréttablaðið - 30.06.2005, Qupperneq 35
Stelpurnar sem reka Verksmiðjuna eru greini-
lega á sumarsandölunum því litirnir eru eins
sumarlegir og sætir og frekast má vera. Það
má eiginlega glitta í allt litrófið en það sem
stendur upp úr er sennilega heitasti litur
sumarsins, appelsínugulur, en svo er gult
og grænt líka áberandi.
Rósa Helgadóttir, ein af Verksmiðju-
konunum, hefur tekið ástfóstri við
skæru sumarlitina og teflir þeim
saman við blúndur í sinni sumarlínu.
Blúndurnar notar Rósa til þess að
þrykkja skærlitu munstri á bómull-
arboli, bæði stutterma og síðerma
og svo hefur hún þróað aðferð við
að gúmmíþrykkja blúndu sem
stífir hana upp svo úr henni
verður armband. Þó stutt sé
liðið á sumarið eru bolirnir og
armböndin að seljast upp en
von er á nýju upplagi í byrjun
næsta mánaðar. Bolirnir
kosta 4.700 kr og armböndin
kr. 2.500.
Saumagallerí JBJ, í eigu Jónu Bjargar Jóns-
dóttir, flutti nýlega af Laugaveginum í lítið
snoturt húsnæði í Kópavoginum. Sauma-
galleríið sem hefur síðastliðin átján ár sér-
hæft sig í framleiðslu á barnafatnaði, hefur
nú víkkað sjóndeildarhringinn. Komin er í
framleiðslu ný dömulína sem í grunninn
samanstendur af kjólum, toppum og sjölum
úr silki og ástralskri merinóull. Nýja dömu-
línan hefur fengið nafnið jbj design og þær
Jóna Björg og dóttir hennar Guðrún Ragna
sjá um hönnina á flíkunum. Flíkurn-
ar eru mjög léttar, til dæmis
eru topparnir einungis um 90-
100 grömm og þar af leið-
andi eru þeir afar
þægilegir, engar tvær
flíkur eru eins, hönn-
unin er mjög skemmti-
leg og möguleikarnir
óteljandi.
Jbj design er að byrja að
fóta sig og ýmislegt er í far-
vatninu, nýjar vörur bætast við
daglega og einnig er á stefnu-
skránni hjá þeim mæðgum að
hefja fljótlega hönnun og fram-
leiðslu á brúðar- og skírnarkjólum.
5FIMMTUDAGUR 30. júní 2005
Léttir toppar
og sjöl úr silki
Jóna Björg Jónsdóttir, sem rekur
Saumagallerí JBJ, hefur hannað nýja
dömulínu ásamt dóttur sinni.
Litríkar blúndur
Í Verksmiðjunni á Skólavörðustígnum er ótrúlega litríkt vöru-
úrval þessa dagana.
Toppar kr. 17.900 Kjóll kr. 29.000
Bleikur toppur kr. 15.900 Sjal kr. 7.900
Jóna Björg hefur flutt starfsemina
í Kópavoginn.