Fréttablaðið - 30.06.2005, Qupperneq 36
Listaverk
Ótrúlegustu myndir og munir verða að listaverkum þegar búið er að ramma þá inn.
Myndir sem börnin hafa málað, gamlir kóktappar, vasaklútar, veggfóður og miðar utan
af niðursuðudósum eru dæmi um skemmtilega hluti sem sniðugt er að ramma inn. [ ]
GULLBRÁ, Nóatún 17 s. 562-4217
Gerið góð kaup!
Allar vörur
án virðisaukaskatts
fimmtudag til laugardags!
Þingholtsstræti 30
101 Reykjavík
sími 562 2116 PR
E
N
T
S
N
IÐ
HVERNIG
LOPAPEYSU
VILT ÞÚ?
þrönga, stutta eða eins og amma prjónaði?
Gott úrval og verð!
kr. 11.40
0
Kringlunni - sími : 533 1322
Vandaðar heimilis-
og gjafavörur
Útsala í Duka
Skólavörðustíg 21, 101 Reykjavík, sími 551 4050
Sængurverasett
í sumarlegum litum
Íslensk list allerie r g ó ð g j ö f
Appelsínubörkur og maurar
Agnar lætur fara vel um sig í þægilegum appelsínuberkinum.
Agnar Már Magnússon og
Helga Sigurþórsdóttir hafa
gaman af skemmtilega hönn-
uðum stólum.
Gestir á heimili Agnars Más Magn-
ússonar píanóleikara og Helgu
Sigurþórsdóttur kennara veita því
fljótt athygli að heimilið prýða
fallegir hönnunargripir í stólalíki.
Meðal þeirra er Appelsínubörkur-
inn. „Þennan stól fundum við hjónin
á útsölu í Epal fyrir nokkru og
fannst við mjög heppin þar sem
svona stólar eru sjaldan lækkaðir í
verði. Appelsínubörkurinn er hann-
aður af Olav Eldöy og er rosalega
þægilegur, eins og besti hæginda-
stóll. Svo er hann svo flottur,“ segir
Agnar og bætir því við að þótt stóll-
inn sé til í ýmsum litum hafi ekki
komið til greina að kaupa öðruvísi
en appelsínugulan. Enn fleiri flotta
stóla má finna innanstokks. „Glæra
stóllinn hannaði Philip Stark. Hann
heitir Louis’s Ghost í höfuðið á Lúð-
vík fjórtánda og er í þessum gamla
rokókóstíl nema hann er glær. Við
stillum upp blómum á bak við og þá
er eins og hann sé með blóma-
mynstri. Svo vorum við að eignast
tvo „maura“, borðstofustóla eftir
Arne Jakobsen, og ætlum að ná
okkur í fleiri svoleiðis“.
Agnar og Helga eru hrifin af
hönnun almennt og finnst það
skipta máli að á heimilinu sé að
minnsta kosti einn hlutur sem er vel
hannaður og lítur vel út frá öllum
hliðum. „Við lítum ekki á þetta sem
snobb heldur bara sem skemmtilegt
áhugamál. Við höfum helst einbeitt
okkur að því að kaupa stóla en svo
er aldrei að vita hvaða húsgögn
fylgja í kjölfarið,“ segir Agnar.
„Stólarnir eru með húmor,“ bætir
Helga við. „Húmorinn ræður svolít-
ið ferðinni og gaman þegar hug-
myndin og heitið tengjast hlutnum
skemmtilega þó auðvitað sé nota-
gildið aðalatriðið.“
Agnar og Helga eru á leiðinni í
frí en þegar þau koma heim tekur
kennslan við hjá Helgu og ýmsar
annir hjá Agnari. „Ég er að gefa út
plötu með Kristjönu Stefánsdóttur
söngkonu, svona haustdjassplötu
sem við tókum upp í New York. Svo
kem ég til með að vera á fullu í leik-
húsinu en það er leyndarmál enn-
þá.“ Það verður því nóg að gera og
lítill tími til að sitja og gera ekki
neitt. Þó það sé auðvitað einstök
nautn í fallegum og þægilegum stól.
brynhildurb@frettabladid.is
Tveir maurar og von á fleirum.
Glæri draugastóllinn eftir Philip Stark. Appelsínubörkurinn ber nafn með rentu.