Fréttablaðið - 30.06.2005, Page 39
Framleiðendur hafa hin síðustu
ár aukið notkun silikons og
má sérstaklega greina þessa
þróun þegar eldhúsáhöld eru
annars vegar.
Silikonið er orðið allsráð-
andi í sleikjum og spöðum en
nú er það áberandi í bökunar-
vörum. Silikonið er sérstak-
lega skemmtilegt og meðfæri-
legt þar sem það þolir upp
undir 400 gráðu hita og það má
frysta það. Því er auðvelt að
hræra í eina köku, hella í sili-
konmótið, skella í frystinn
og taka hana svo út þegar hún á
að fara í ofninn. Auk þess er
hægt að setja silikonið í ör-
bylgju og það þolir vel að
fara í uppþvottavél – hlutir
úr silikoni endast von úr
viti og haldast alltaf
eins.
Þegar kakan er tilbú-
in er hún klædd úr mótinu
og ekkert situr eftir eða
festist við. Silikonið er hægt
að nota við eldamennsku og hægt
að elda mat í mótunum eða nota
ofnplötu úr silikoni. Silikon-
vörurnar á þessum myndum fást
hjá Búsáhöldum í Kringlunni. ■
Kökuform úr silikoni
af öllum stærðum
og gerðum.
9FIMMTUDAGUR 30. júní 2005
Alvöru
gasgrill
Ryðfrítt alvöru gasgrill - engar málamiðlanir!
Perfectglo gasgrillið fæst hjá
ECC Skúlagötu 63 - Sími 511 1001 - Opið 10-18
Golfáhugamenn athugið
Nú er rétti tímin til að setja niður púttholu í garðinn
Upplagt í sumarbústaðinn eða garðinn heima
Tilboð 1
1 stk stöng með áföstu númeri og bolla kr 4.900
Tilboð 2
1 stk stöng með flaggi og bolla kr 7.900
Leigjum út holuskera
ÚTSALAN
ER
HAFIN!
Steikt eða fryst silikon
Efnið þolir mikinn hita og maturinn loðir ekki við.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Ofnplata úr silikoni.
Nauðsynlegt er að koma sér upp eldvarnarbúnaði á
heimilum, reykskynjurum, slökkvitækjum og eld-
teppum. Enda er lífið sjálft í veði. Best er ef reyk-
skynjari er í hverju herbergi og að í íbúðinni sé
einnig einnig slökkvitæki og eldvarnateppi.
Reykskynjarar eru með rafhlöðu sem dugar í eitt
ár. Slíkt tæki getur eitt og sér bjargað manns-
lífum og síðan takmarkað mjög skemmdir af völdum
elds. Auk stakra reykskynjara má fá samtengda
reykskynjara þannig að allir væla ef einn fer í gang.
Slökkvitæki fyrir heimili eru tvenns konar, það
eru dufttæki eða léttvatnstæki. Báðar tegundir duga
á alla elda. Hins vegar hefur þótt ókostur við duft-
tækin hvað þau svína mikið út, jafnvel þó aðeins sé
um smáeld að ræða en þau eru örugg í notkun.
Slökkvitæki eru fljót að tæmast og þvíer mikilvægt að
beina úðanum strax að rótum eldsins.
Lífið er að veði
Reykskynjarar og slökkvitæki eru ein ódýrasta og einfaldasta
líftrygging sem völ er á.