Fréttablaðið - 30.06.2005, Page 40
Litfagrir púðar og lampar
Þær Ólöf Kjaran og Unnur
Knudsen eru listfengar mæðg-
ur. Móðirin málar og dóttirin
vinnur í textíl. Saman reka þær
vinnustofu á Sólvallagötu 1.
Kötturinn Grettir skýst inn um
kjallaragluggann þar sem dún-
mjúkir flauelspúðar og stólsetur
freista því Unnur notar bómull-
arflauel í sumt af sínum fram-
leiðsluvörum. Nú er hún að byrja
að undirbúa sýningu sem á að
heita Veður og verður sett upp í
Árbæjarsafni seinni partinn í júlí.
Þar má meðal annars sjá Ísland í
ýmsum veðrabrigðum og með
mismunandi skýjafari. Einnig
munu merkin sem við sjáum í
veðurfregnum sjónvarps koma
þar fyrir sjónir fólks í nýjum bún-
ingi. En hvernig er þetta gert?
„Þetta er silkirammaþrykk. Ég bý
til form í ramma og handþrykki
svo á efni. Nota litaþrykkaðferð
sem opnar þræðina og þá sitja lit-
irnir eftir en eru ekki utan á liggj-
andi,“ lýsir Unnur og labbar með
blaðamanni inn í vinnustofuna
sína þar sem nýlitaðir bolir hanga
á herðatrjám.
Ólöf teiknar og málar með
vatnslitum og er nýlega búin að
taka þátt í stórri norrænni vatns-
litasýningu Nordisk akvarel sem
flakkaði um Danmörku. Unnur er
líka með muni sína í handverks-
húsinu í Kirsuberjatrénu en hefur
rekið vinnustofuna með móður
sinni í fimm ár og þær gera ýms-
ar tilraunir saman sem skila sér í
fögrum munum fyrir heimilið.
10 30. júní 2005 FIMMTUDAGUR
Fötin á vegginn
Fataskápur fullur af fallegum og litríkum fötum er fáum
til ánægju ef fötin fá aldrei að koma út úr skápnum. Og
þeir eru sennilega ófáir fallegu kjólarnir sem sitja á
herðatrénu árum saman án þess að það sé hreyft við þeim.
Margar konur eiga sér eftirlætiskjóla sem þær eru samt
sem áður hættar að nota en vilja halda í af tilfinningaleg-
um ástæðum. Tilvalilð er þá að hengja kjólinn upp á vegg
og nota hann sem skraut.
Önnur góð hugmynd er að taka kjólinn og mynda hann
á herðatré, jafnvel á veggfóðruðum vegg, prenta myndina
svo út í réttri stærð og ramma hann inn. Hið sama er hægt
að gera með aðrar flíkur, skó og skartgripi sem eru unun
að horfa á og einfaldlega gera úr þeim listaverk sem lífga
upp á svefnherbergið eða stofuna. Auk þess getur verið
skemmtilegt að líma fallegar fatamyndir á vegginn í and-
dyrinu þar sem yfirhafnir og skór staldra oftast við.
Mæðgurnar Unnur Knudsen og Ólöf Kjaran búa til ýmsa hluti til að prýða heimili. Hér
eru púðar Unnar í forgrunni og myndir Ólafar í bakgrunni.
Hér hafa vatnslitamyndir eftir Ólöfu verið
settar á sérstakan pappír og plastaðar og
síðan verður til þetta fallega veggljós í
barnaherbergi.
Kötturinn Grettir kann vel að meta mýktina
í stólsetunni sem skreytt er Íslandi í alls
kyns veðrabrigðum.
Púðarnir hennar Unnar eru úr fínu bómull-
arflaueli með handþrykktu mynstri.
Loftljós með myndum eftir Ólöfu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
BLÓMÁLFURINN
Vesturgötu 4 sími 562 2707
Íslandsmeistari í blómaskreytingum
í i
Brúðargjafir
Litríkar og fallegar flíkur geta orðið að
fallegum listaverkum sem prýða heimilið.