Fréttablaðið - 30.06.2005, Qupperneq 58
30. júní 2005 FIMMTUDAGUR38
Pulis gefur líti› fyrir gefnar
ástæ›ur uppsagnarinnar
Guðjón Þórðarson :
Vill vinna
grannaslaginn
FÓTBOLTI Guðjón Þórðarson hefur
lofað áhangendum Notts County
að liðið muni leggja sig allt fram
undir sinni stjórn á komandi tíma-
bili, en leikmenn eru að koma
saman eftir sumarleyfi um þessar
mundir og munu hefja stífar æf-
ingar að hætti Guðjóns til að koma
sér í stand fyrir átökin.
Á heimasíðu félagsins í gær
segir Guðjón að hann muni leggja
sig fram við að bæta gengi liðsins
eftir fremsta megni og þá einkum
og sér í lagi í nágrannaslagnum
við Mansfield Town. County hefur
tapað þremur einvígjum liðanna í
röð og Guðjóni þykir kominn tími
á að breyta því.
„Það er jafnan allt undir í
svona leikjum og erfitt að tapa
fyrir grönnum sínum. Það er kom-
inn tími á að Notts County sigri
granna sína í Mansfield og ég segi
fyrir mína parta að þó svo færi að
við töpuðum fyrir þeim vil ég að
menn geti sagt að þeir hafi lagt
sig alla fram,“ sagði Guðjón en
gaman er að fylgjast með lífinu
sem kviknað hefur hjá Notts
County frá því Guðjón tók við
stjórnartaumunum. Daglega eru
birtar jákvæðar og spennandi
fréttir um starf félagsins og til að
mynda þótti fréttnæmt hjá
félaginu um daginn að íslenskir
fjölmiðlar skyldu hafa hringt til
félagsins og forvitnast um
ráðningu Guðjóns. - bb
GUÐJÓN ÞÓRÐARSON Er búinn að vinna
hug og hjörtu stuðningsmanna Notts
County.
Glazer-feðgarnir:
Funda me›
rá›herra
KNATTSPYRNA Richard Caborn,
íþróttamálaráðherra Bretlands,
sat í gær fund með Malcolm Glaz-
er og sonum hans þremur, Joel,
Avram og Bryan, þar sem mark-
mið þeirra með kaupunum á
Manchester United voru rædd.
Feðgarnir, sem allir sitja í
nýrri stjórn Manchester United,
fullvissuðu ráðherrann um að þeir
ætli sér að ná árangri með liðið,
en stór hópur aðdáenda félagsins
hefur gefið í skyn að Glazer sé
einungis að hugsa um að hagnast á
félaginu.
„Ef við ætlum að ná markmið-
um okkar, verðum við að ná góð-
um árangri bæði í ensku úrvals-
deildinni og meistaradeild Evr-
ópu,“ sagði Joel Glazer við fjöl-
miðla að fundi loknum. „Þó við
séum fjárfestar þá erum við ekki
að kaupa stærsta knattspyrnufé-
lag heims til þess að láta því
ganga illa. Það er öllum í hag að
liði félagsins gangi vel og við
munum reyna allt sem í okkar
valdi stendur til þess að svo megi
verða.“
Stuðningsmenn Man. Utd eru
ekki enn farnir að trúa Glazer-
feðgunum og nota þeir hvert
tækifæri til þess að mótmæla
kaupum þeirra á félaginu og sér
ekki fyrir endann á þeim
mótmælum. - mh
MALCOLM GLAZER. Glazer reynir nú hvað
hann getur til þess að vinna aðdáendur
Manchester United á sitt band.
Tony Pulis, fráfarandi knattspyrnustjóri Stoke, kve›st ekki hafa neitt á móti er-
lendum leikmönnum og a› stjóratí› hans sanni fla›. Johan Boskamp hefur
veri› rá›inn stjóri li›sins til næstu tveggja ára.
FÓTBOLTI „Ég vill taka það fram að
litarháttur eða þjóðerni hafa
aldrei haft áhrif á hvernig ég stilli
upp mínu liði,“ sagði vonsvikinn
Tony Pulis í samtali við breska
fjölmiðla í gær, daginn eftir að
hafa verið rekinn frá enska knatt-
spyrnufélaginu Stoke City, sem er
að mestu í eigu íslenska fjárfesta.
Gunnar Þór Gíslason, stjórnar-
formaður Stoke, sagði í samtali
við Fréttablaðið í gær að stjórnin
hefði tekið þá ákvörðun að láta
Pulis fara vegna tregðu hans við
að leita á erlenda markaði eftir
nýjum leikmönnum. Pulis gefur
lítið fyrir þær ástæður. „Ég hef
unnið með erlendum leikmönnum
á tíma mínum hér hjá Stoke sem
hafa verið að spila í mínu liði.
Þetta snýst ekki um að kaupa til
félagsins erlenda leikmenn, þetta
snýst um að kaupa til félagsins
góða leikmenn,“ sagði Pulis, sem
mun þó fá mánaðarlegan
launatékka frá Stoke næsta árið
þar sem hann hafði skrifað undir
nýjan samning við félagið í lok
apríl sl.
Leikmenn og aðdáendur Stoke
eru furðu lostnir yfir starfsað-
ferðum íslensku stjórnarinnar og
kvaðst Gerry Taggart, fyrrver-
andi leikmaður Leicester en nú-
verandi leikmaður Stoke, að hann
væri í sjokki yfir fréttunum.
„Þetta er hryllingur. Þetta sýnir
einfaldlega að það er aldrei hægt
að vita hvað er í gangi á bakvið
tjöldin,“ sagði Taggart.
Það er því ljóst að það er ekki
auðvelt starf sem bíður Johan
Boskamp, nýs knattspyrnustjóra
félagsins sem skrifaði undir
tveggja ára samning við félagið í
gær. Boskamp þessi stjórnaði
meðal annars Anderlecht til
þriggja meistaratitla í Belgíu fyr-
ir rúmum áratug áður hann tók
við Genk og gerði þá að bikar-
meisturum í landinu. Þar þjálfaði
hann meðal annars Þórð Guðjóns-
son, núverandi leikmann Stoke,
með góðum árangri.
Fyrsta verk Boskamp verður
að vinna traust leikmanna og
áhangenda liðsins, en að sögn fjöl-
miðla í Stoke gæti það reynst afar
erfitt þar sem ekki beri á öðru en
að stjórn félagsins sé að skiptast í
tvær fylkingar, þá íslensku og þá
ensku, þar sem flestir sem að fé-
laginu koma séu á bandi þeirra
síðarnefndu. Stjórnarmaðurinn
Peter Coates, sá hinn sami og
gerði Íslendingunum tilboð í fé-
lagið í fyrradag upp á 500 milljón-
ir sem var umsvifalaust hafnað,“
kveðst óttast um framtíð félags-
ins í kjölfarið á atburðum síðustu
daga. „Að reka Pulis var einhver
furðulegasta ákvörðun sem ég hef
vitað til í enskri fótboltasögu. Ég
hef miklar áhyggjur af því hvert
þetta félag er að stefna,“ sagði
hann. vignir@frettabladid.is
JOHAN BOSKAMP Á erfitt verkefni fyrir höndum hjá Stoke.
Guðmundur Viðar Mete skrifar undir hjá Keflavík:
Er hann ma›urinn sem
Keflavík hefur vanta›?
FÓTBOLTI Á laugardaginn kemur
knattspyrnumaðurinn Guðmund-
ur Viðar Mete hingað til lands og
skrifar undir samning við Kefla-
vík út tímabilið. Guðmundur steig
sín fyrstu skref með Austra á
Eskifirði en fór út til Svíþjóðar 10
ára gamall.
„Ég get ekki beðið eftir því að
spila fótbolta á ný,“ segir Guð-
mundur, sem er spenntur fyrir
því að sjá hvernig íslenska knatt-
spyrnan er, hann hefur verið bú-
settur í Svíþjóð undanfarin fjórt-
án ár. „Ég hef náttúrlega aldrei
spilað á Íslandi, ég er ákveðinn í
að gera vel þar og svo er stefnan
sett á að komast út aftur. Ég er bú-
inn að vera meiddur af og til í eitt
og hálft ár en hef verið í endur-
hæfingu undanfarinn mánuð.“
segir Guðmundur.
Hann hefur síðastliðin þrjú ár
verið hjá Norrköping en þar á
undan var hann hjá Malmö þar
sem hann fór í gegnum unglinga-
starfið. Ástæðan fyrir því að
Keflavík varð nú fyrir valinu er
sú að hann þekkir vel til þjálfar-
ans Kristjáns Guðmundssonar og
markvarðarins Ómars Jóhanns-
sonar frá því að hann var hjá Mal-
mö. „Þrátt fyrir að hafa aldrei
spilað í íslenska boltanum þá hef
ég fylgst ágætlega með honum í
gegnum fótbolta.net og þá hef ég
verið í sambandi við þá Kristján
og Ómar. Þetta verður örugglega
skemmtilegt.“ sagði Guðmundur,
en hann er 24 ára.
Vörn Keflavíkur hefur ekki
verið nægilega traust það sem af
er tímabili og vonir bundnar við
það að með komu Guðmundar lag-
ist hún. Hann á ellefu leiki að baki
fyrir U-21 landsliðið og var einnig
með U-19 og U-17. Kristján Guð-
mundsson lýsir honum sem sterk-
um leikmanni, góðum skalla-
manni og fínum leiðtoga. „Hann
er einmitt týpan sem okkur hefur
vantað í vörnina,“ sagði Kristján.
- egm
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON Ánægður með
nýja liðsmanninn.