Fréttablaðið - 30.06.2005, Síða 61
FÓTBOLTI Það var ljóst frá fyrstu
mínútu að leikmenn ÍA ætluðu að
selja sig dýrt gegn ÍBV í gær-
kvöldi og voru leikmenn liðsins
afskaplega duglegir og agaðir all-
an leikinn.
Þeir voru verðlaunaðir með
marki strax á 17. mínútu leiksins
þar sem var að verki hinn ungi og
bráðefnilegi Hafþór Ægir Vil-
hjálmsson. Þá skoraði hann með
góðu skoti fyrir utan teig en þang-
að hrökk boltinn eftir að leikmenn
ÍBV höfðu hreinsað hornspyrnu
Dean Martin frá marki. Heima-
menn héldu áfram að þjarma að
marki ÍBV það sem eftir lifði leiks
og bættu verðskuldað við marki
stundarfjórðungi fyrir leikslok.
Það gerði Andri Júlíusson, annar
ungur leikmaður ÍA sem nýkom-
inn var inn á sem varamaður, þeg-
ar hann lagði boltann framhjá
Birki Kristinssyni í markinu eftir
meistaralega sendingu Dean
Martin.
Mörkin hefðu hæglega getað
orðið fleiri hjá heimamönnum en
þeir voru einstaklega óheppnir
með skot sín í leiknum í gær.
Fótboltinn sem boðið var upp á
í gær var í lágum gæðaflokki og
augljóst að þarna eru á ferð tvö lið
sem eiga í vandræðum í deildinni.
Þrátt fyrir að hafa verið nokk-
uð frá sínu besta voru Skagamenn
mun markvissari í öllum sínum
aðgerðum og hefðu á eðlilegum
degi skorað mun fleiri mörk.
Þeirra sprækastur var marka-
skorarinn Hafþór og fór hann oft
illa með varnarmenn ÍBV. Þá spil-
aði Pesic líklega sinn besta leik í
sumar og Dean Martin var gríðar-
lega duglegur í stöðu fremsta
miðjumanns.
Lið ÍBV var, eins og svo oft
áður á útivelli í sumar, heillum
horfið lengst af og var það aðeins
þegar boltinn fór í gegnum Atla
Jóhannsson á vinstri kanti sem að
eitthvað gerðist í sóknarleiknum.
Er það hér með fullyrt að Atli er
einn af hættulegustu upphafs-
mönnum skyndisókna sem til er á
landinu.
Þegar horft er til þess að ÍBV
lenti undir strax á 17. mínútu er
með ólíkindum að sjá hversu aft-
arlega liðið spilaði það sem eftir
lifði leiks.
Flestir leikmanna liðsins eru
afar takmarkaðir knattspyrnu-
menn sem geta þó á góðum degi
farið langt á baráttu og eljusemi,
en þegar kemur að hugmynda-
auðgi í sókninni er liði Eyjamanna
stórlega ábótavant.
vignir@frettabladid.is
41FIMMTUDAGUR 30. júní 2005
Keppni allra landsmanna
Frítt á leiki og happdrættispottur
Sextán ára og yngri fá frítt á leiki í Landsbankadeildinni í sumar og lenda
í happdrættispotti þar sem dregnir verða út 100 glæsilegir vinningar.
Miðar eru afhentir í útibúum bankans.
1. vinningur: 4 flugmiðar og 4 miðar á leik í Meistaradeild Evrópu.
Aðrir vinningar: Áritaðar landsliðstreyjur og vandaðir fótboltar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
88
81
06
/0
5
410 4000 | www.landsbanki.is
VIÐ STYÐJUM ÍSLENSKA
KNATTSPYRNU MEÐ STOLTI
fim. 30. júní 19:15 Þróttur R. - Valur
fim. 30. júní 19:15 FH - Fram
fim. 30. júní 20:00 Keflavík - Grindavík
lau. 02. júlí 16:00 ÍBV - Fylkir
NÆSTU LEIKIR LANDSBANKADEILDAR KARLA
Litlaus en langþráður SkagasigurLEIKIR GÆRDAGSINS
Landsbankadeild karla:
ÍA–ÍBV 2–0
STAÐAN:
FH 8 8 0 0 23–4 24
VALUR 8 6 0 2 18–5 18
KEFLAVÍK 8 4 2 2 15–18 14
FYLKIR 8 3 2 3 14–14 11
KR 8 3 1 4 8–11 10
ÍA 8 3 1 4 7–11 10
FRAM 8 2 2 4 9–9 8
GRINDAVÍK 8 2 2 4 9–15 8
ÍBV 8 2 0 6 6–18 6
ÞRÓTTUR 8 1 2 5 11–15 5
Álfukeppnin:
BRASILÍA–ARGENTÍNA 4-1
1–0 Adriano (11.), 2–0 Kaká (16.), 3–0
Ronaldinho (47.), 4–0 Adriano (63.), 4–1
Aimar (65.)
ÞÝSKALAND–MEXÍKÓ 4–3 (3–3)
1–0 Podolski (37.), 1–1 Fonseca (40.),
2–1 Schweinsteiger (41.), 2–2 Borgetti
(58.), 3–2 Huth (81), 3–3 Borgetti (85.),
4–3 Ballack (96.).
Norski bikarinn:
BRANN–AALESUND 3–2
Kristján Örn Sigurðsson lék allan leikinn
fyrir Brann en Haraldur Guðmundsson
fór af velli á 83. mínútu hjá Aalesund.
STABÆK–FREDRIKSTAD 4–2
Veigar Páll Gunnarsson kom af
bekknum á 69. mínútu hjá Stabæk.
Sænska úrvalsdeildin:
IFK GAUTABORG–HALMSTAD 4–0
ÍA vann mikilvægan sigur gegn arfaslökum Eyjamönnum í döprum knattspyrnuleik á Akranesi. Sigurinn sendi
Skagamenn í sjötta sæti Landsbankadeildarinnar.
Úrslitaleikur Álfukeppninnar fór fram í gærkvöldi:
Stórsigur Brasilíu
á Argentínu
FÓTBOLTI Brasilía vann sannfær-
andi sigur á Argentínu í úrslitum
Álfukeppninnar í gær. Síðast þeg-
ar liðin mættust fóru Argentínu-
menn illa með Brassana en taflið
snerist algjörlega við í gær og það
var aðeins eitt lið á vellinum allan
leikinn.
Framherjinn stórkostlegi,
Adriano, skoraði í tvígang og
tryggði sér um leið markakóngs-
titil keppninnar. Ronaldinho og
Kaká bættu við hvor sínu markinu
og Aimar klóraði að lokum í bakk-
ann. Litlu mátti muna að Brasilía
bætti við mörkum en Argentína
slapp með skrekkinn.
Þetta var 34. sigur Brasilíu á
Argentínu í opinberum landsleik
en alls hafa þjóðirnir mæst 89
sinnum frá árinu 1914. Argentína
hefur sigrað 33 leiki þjóðanna
þannig að það má vart á milli sjá
hvor þjóðin er stærri og sterkari
knattspyrnuþjóð.
Í leiknum um þriðja sætið í
keppninni bar Þýskaland sigurorð
af Mexíkó, 4–3, í framlengdum
leik. Það var Michael Ballack sem
skoraði sigurmark Þjóðverja í
framlengingunni með skoti beint
úr aukaspyrnu en flest mörk
leiksins voru ákaflega falleg.
- hbg
*MAÐUR LEIKSINS
ÍBV 4–5–1
Birkir 7
Bjarni Geir 5
Páll 5
Bjarni Hólm 5
Adolf 3
(55. Pétur 5)
Atli 7
Heimir Snær 4
Jeffs 5
Andri 4
Platt 4
Steingrímur 3
(70. Sam 4)
ÍA 4–5–1
Bjarki 6
Guðjón 6
Gunnlaugur 6
Reynir 6
Finnbogi 4
Hafþór 8*
(90. Kristinn –)
Pálmi 5
Martin 7
Pesic 7
(86. Sigurður –)
Ellert 3
(67. Andri 7)
Hjörtur Júlíus 4
HANDBOLTI Hornamaðurinn Einar
Örn Jónsson er búinn að semja við
spænska úrvalsdeildarfélagið
Torrevieja en hann hefur síðustu
ár leikið með Wallau Massenheim.
Þýska félagið fór sem kunnugt
er á hausinn og því varð Einar að
leita á önnur mið og úr varð að
hann fór til Spánar.
Einar Örn Jónsson:
Farinn til
Spánar
2-0
Akranes áhorf: 712 Garðar Örn Hinriks. (6)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 17–9 (6–0)
Varin skot Bjarki 0 – Birkir 3
Horn 5–3
Aukaspyrnur fengnar 10–13
Rangstöður 2–7
1–0 Hafþór Ægir Vilhjálmsson (17.)
2–0 Andri Júlíusson (75.)
ÍA ÍBV
BESTUR Á VELLINUM Hafþór Ægir
Vilhjálmsson var mjög sprækur á vinstri
kantinum í gær og skoraði gott mark.
FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR
SNILLINGAR Tveir af bestu knattspyrnumönnum heims, Robinho og Ronaldinho, kyssa
hér Álfubikarinn í sameiningu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP