Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.06.2005, Qupperneq 68

Fréttablaðið - 30.06.2005, Qupperneq 68
Það virðist ekkert lát ætla að verða á stórsókn myndasöguper- sóna á hvíta tjaldið og nú hefur sjálfur Nicholas Cage bæst í hóp þeirra sem fá tækifæri til þess að blása lífi í teiknaða of- urtöffara en hann stefnir að því að taka sviðið næsta sumar í hlutverki Johnny Blaze í Ghost Rider. Cage er fyrir löngu búinn að leysa Arnold Schwarzenegger og Bruce Willis af sem hasarmynda- hetja númer eitt og ef marka má fyrstu myndir úr Ghost Rider hefur hann sjálfsagt ekki verið jafn svalur síðan hann barðist í hvítum hlýrabol við morðóða flugræningja í Con Air árið 1997. Marvel-hetjan Johnny Blaze er mótorhjólakappi sem selur djöflinum sálu sína til þess að bjarga ástvini en þegar samning- urinn fer út í tóma vitleysu breytist hann í hefndarengilinn Ghost Rider sem þeysist í gegn- um næturnar á mótorfáki sínum. Hasarmyndaskutlan Eva Mendez leikur á móti Cage í Ghost Rider en framleiðendur myndarinnar telja sig ekki geta hafa fengið betri mann í aðal- hlutverkið þar sem Cage er for- fallinn myndasöguaðdáandi og hefur ekki farið leynt með aðdá- un sína á Ghost Rider. ■ 48 30. júní 2005 FIMMTUDAGUR War of the Worlds Internet Movie Database 6,7 / 10 Rottentomatoes.com 79% / Fresh Metacritic.com 8,2 / 10 Guess Who Internet Movie Database 5,0 / 10 Rottentomatoes.com 44% / Rotten Metacritic.com 6,4 / 10 The Upside of Anger Internet Movie Database 7,1 / 10 Rottentomatoes.com 73% / Fresh Metacritic.com 6,2 / 10 Are We There Yet? Internet Movie Database 3,7 / 10 Rottentomatoes.com 12% / Rotten Metacritic.com 3,4 Batman Begins Internet Movie Database 8,4 / 10 Rottentomatoes.com 83% / Fresh Metacritic.com 8,7 / 10 NÝJAR Í KVIKMYNDAHÚSUM (DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM) Rödd hvíta hákarlsins og E.T. Við leggjum oft ekki eyrun við þeirri tónlist sem við heyrum í kvikmyndahúsum. En ef tónlist John Williams hljómar þar er líklegt að okkur þyki hún ómissandi enda hefur hann samið stef fyrir hvíta hákarlinn í Jaws. „You know for what else the Bible asks for death as a punishment? For adult- ery, prostitution, homo- sexuality, trespass upon sacred grounds, profane in a sabbath and contempt to parents.“ Nunnan Helen Prejean útskýrir fyrir fangaverði að ekki sé eingöngu krafist dauðarefsingar fyrir morð í kvikmyndinni Dead Man Walking. Susan Sarandon fór með hlutverk Helen sem fær það hlutverk að fá glæpamanninn Matthew Poncelet, leikinn af Sean Penn, til þess að iðrast fyrir gjörðir sínar. Sarandon uppskar Óskarsverðlaun fyrir leik sinn en myndin þykir sterk ádeila á dauðarefsinguna. bio@frettabladid.is Tim Robbins sem leikur Ogilvy í War of the Worlds verður seint talinn venjulegur Hollywood-leikari sem baðar sig í sviðsljósinu. Honum finnst betra að láta verkin tala. Ro- bert Altman sagði að hann hefði hæfileika til þess að verða næsti Orson Welles. Þeir eiga það sameiginlegt að vera góðir leikarar og ekki síðri leikstjórar. Tim Robbins er alinn upp meðal leikara og tónlistar- manna sem höfðu sterkar stjórnmálaskoðanir. Þessi upp- vöxtur mótaði feril Robbins en hann verður seint talinn skoðanalaus og er meðal annars svarinn andstæðingur Ge- orge W. Bush og stríðsins í Írak. Robbins er menntaður leikari frá UCLA og útskrifaðist þaðan með láði. Hann stofnaði leikhópinn Actor's Gang sem vakti snemma athygli fyrir frumleika og laðaði að leikara eins og John Cusack. Það fór ekki mikið fyrir honum í sjónvarps – og kvik- myndaleik í upphafi en hann tók að sér smáhlutverk í b – myndum. Það var ekki fyrr en hann lék Ebby „Nuke“ Laloosh í myndinni Bill Durham að ferill hans á hvíta tjaldinu hófst á loft. Hann fékk síðan verulegt lof fyrir leik sinn í Jacob's Ladder og þegar honum hlotnuðust verðlaun Cannes hátíðarinnar fyrir leik sinn í Robert Altman myndinni The Player var ferill hans tryggð- ur. Það væri síðan einfaldlega of langt mál að telja upp allar gæða- myndirnar sem Tim Robbins hef- ur leikið í á undanförnum áratug- um en hann er einn virtasti leik- ari Hollywood. Robbins fékk sín fyrstu Óskarsverðlaun fyrir tveimur árum fyrir leik sinn sem Dave Boyle í Mystic River. Tim Robbins er leikari sem getur brugðið sér í allra kvikinda líki án þess að þurfa að bæta á sig mörgum kílóum eða sitja lengi í förðunarstól. Hann getur verið góði og slæmi náunginn, einfeldningur og snillingur ásamt því að geta verið eitursvalur eins og Ian Ray Raymond í High Fidelity. EKKI MISSA AF... ... mögnuðum lokakafla Stjörnu- stríðsóperu George Lucas. Revenge of the Sith er orðin að- sóknarmesta mynd ársins á Ís- landi og þegar hafa yfir 37.000 manns séð hana. Það ætti því varla að þurfa að minna á þessa mynd en nú er byrjað að auglýsa síðustu sýningar þannig að það eru síðustu forvöð fyrir eftir- legukindur að drífa sig. Svona myndir verður fólk að sjá í bíó. Næsti Orson Welles? Cage ver›ur vítisengill „Hann er rödd Jaws, sál móður- skipsins í Close Encounters of Third Kind og hjartslátturinn í Raiders of the Lost Ark.“ Þetta á við ekki um Steven Spielberg, leikstjóra um- ræddra kvikmynda, heldur John Williams, manninn á bak við tónlist- ina. Hins vegar lét Spielberg sjálfur hafa þetta eftir sér. Spielberg bætti um betur þegar hann sagði Williams vera E.T. „Fyrir mína parta er E.T besta tónverk kvikmyndanna,“ sagði Spielberg. John Williams hóf snemma af- skipti af tónlist í sjónvarpi. Hann samdi fyrir þætti Irwin Allen, Lost in Space, Time Tunnel og Land of Giants. Þegar gullöldin svokallaða í Hollywood hófst flutti Williams sig yfir í kvikmyndirnar. Honum var ekki strax leyft að semja heldur vann hann sem píanóleikari og út- setjari fyrir tónskáld á borð við Al- fred Newman, Franz Waxman og Henry Mancini. Endurnýjuð kynni Irwin Allen og John Williams leiddu til þess að hann samdi tónlist við frægar stórslysamyndir á borð við The Towering Inferno. Þegar hér var komið sögu var Williams búinn að koma sér nokkuð vel fyrir og nafn hans orðið býsna þekkt. Segja má að árið 1974 hafi verið mikið happaár fyrir tvo menn. Þá kynntust ungur leikstjóri, Steven Spielberg og tónskáldið Williams. Spielberg fékk Williams til þess að semja fyrir sig tónlistina við kvik- myndina Sugarland Express, fyrstu alvöru kvikmynd sína. Augljóslega hefur Spielberg verið mjög ánægð- ur með tónlistina því ári seinna var komið að kvikmynd um hvítan há- karl, Jaws. Sagan segir að þegar Williams hafði leikið fyrir hann stef hákarlsins, þessar djúpu nótur á pí- anó, hafi Spielberg spurt hvort þetta væri eitthvert grín. Eins og flestir vita þá var það ekki raunin heldur telst þetta með bestu stefum kvikmyndanna. Frá árinu 1975 má segja að Willi- ams hafi samið flest þekkt stef kvikmyndanna. Hvert mannsbarn getur til að mynda raulað upphafs- stef Star Wars og veit hvenær Svarthöfði er í grendinni. Allir hvetja Indiana Jones undir stefi Williams og Superman gæti varla flogið án lagsins síns. Williams var snemma gagn- rýndur fyrir að semja tónlist við myndir sem voru ævintýrlegar og ekki af þessum heimi. Sú gagnrýni telst heldur ómarkverð í dag þar sem hann hefur samið fyrir jafn ólíkar kvikmyndir og J.F.K og Home Alone. John Williams hefur verið hálf- gert einkennismerki fyrir kvik- myndir Steven Spielberg og semur meðal annars tónlistina fyrir nýj- ustu mynd hans, War of the Worlds. Eina myndin sem Spielberg leik- stýrði og Williams samdi ekki tón- listina fyrir er Colour of Purple. ■ TIM ROBBINS JOHN WILLIAMS Afrekaskrá tónskáldsins er með ólíkindum og hefur hann hlotið fimm Óskarsverðlaun á ferli sínum. HELSTU VERK JOHN WILLIAMS: Jaws 1975 Star Wars 1977 Close Encounters of the Third Kind 1977 Superman 1978 Raiders of the Lost Ark 1981 E.T 1982 JFK 1991 Schindler's List 1993 Jurasic Park 1993 SVARTHÖFÐI Sérhvert mannsbarn veit hvenær illmennið Svarthöfði er nærri. FÉKK ÁRS FANGELSI Í HÆSTARÉTTI Í MAÍ FYRIR AÐ MISNOTA TVO DRENGI DÆMDUR NÍÐINGUR MISNOTAÐI BARN MEÐAN HANN BEIÐ AFPLÁNUNAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.