Fréttablaðið - 30.06.2005, Síða 70
50 30. júní 2005 FIMMTUDAGUR
Orlando var feitur
Leikarinn og sjarmörinn Orlando
Bloom hefur viðurkennt þá stað-
reynd að hann hafi ekki alltaf
státað af svo glæsilegu útliti. Þeg-
ar hann var yngri var hann víst
alls ekkert flottur. „Þegar ég var
níu ára fótbrotnaði ég á skíðum
og neyddist til þess að vera í gifsi
í heilt ár. Ég sat heima, mjög
þunglyndur, og borðaði kex og
súkkulaði,“ sagði leikarinn mynd-
arlegi. „Ég fór ekki að stunda
íþróttir aftur fyrr en ég var orð-
inn sextán ára. Ég var feitur.“
Orlando, sem er líklega þekkt-
astur fyrir hlutverk sitt sem
Legolas í Hringadróttinssögu,
hefur nú þegar verið nefndur
heitasti piparsveinninn og mynd-
arlegasti leikarinn af hinum og
þessum glanstímaritum og vef-
síðum. ■
ÚTSAL AN
ER HAFIN
Kringlunni • 553 4141
d
e
sig
n
@
2
0
0
5
Hin árlega útihátíð á Skógum fer
fram núna um helgina eins og
endranær. „Mjög löng hefð er fyr-
ir útilegu fyrstu helgina í júlí á
vegum háskólanema, en verk-
fræðinemar hafa staðið fyrir
þessu síðustu fjögur ár,“ segir
Sigríður Vala Halldórsdóttir,
verkfræðinemi og aðstandandi
hátíðarinnar.
Gríðarlega góð stemning hefur
verið í útilegunni undanfarin ár
og margt í boði en fólk borgar
vægt gjald inn á svæðið. „Við
verðum með risagrill á laugardag-
inn þar sem allir fá hamborgara
og pylsur með öllu tilheyrandi,“
segir Sigríður Vala. „Svo verða
alls kyns skemmtiatriði þar á
meðal brekkusöngur, plötusnúðar
og íþróttakeppnir.“
Einn af vinsælustu viðburðum
hátíðarinnar eru hinir svokölluðu
Skógarleikar þar sem lið keppa í
alls kyns þrautum eins og
fjórlabbi og blautsápuhokkíi. „Þar
er ekki keppt í hefðbundnu líkam-
legu hreysti en verðlaunin eru
vegleg,“ segir hún og brosir.
Skipulagnin hefur staðið yfir í
rúman mánuð. „Það er margt sem
þarf að huga að og björgunar-
sveitafólk verður með gæslu. Við
fáum aðstöðu í félagsheimili stað-
arins og þar er góð salernisað-
staða svo enginn þarf að fara á
útikamar.“
Ekki eru skipulagðar rútuferð-
ir svo fólk mætir annað hvort á
einkabílum eða fer með rútum frá
BSÍ. Skipuleggjendur reikna með
því að um það bil þrjúhundruð
manns mæti í gleðina og eftir-
spurn eftir miðum er mikil. KB
banki er aðalstyrktaraðilinn þetta
árið og fær fólk afslátt ef það
borgar með ISIC korti frá þeim.
Skógar eru mjög fallegur og
rómantískur staður og ófá pörin
sem hafa kynnst þar. „Þeir sem
eru að leita sér að efnilegum
maka með góða framtíðarmögu-
leika væru á réttum stað,“ segir
Sigríður Vala og hlær. ■
Ást og ævint‡ri á Skógum
SKÓGAR Upplýsingar um útihátíðina á Skógum er hægt að nálgast á heimasíðunni www.skogar.tk
ORLANDO BLOOM Leikarinn sykursæti hefur viðurkennt að hann hafi ekki alltaf verið
svo sætur.