Fréttablaðið - 20.07.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.07.2005, Blaðsíða 6
6 20. júlí 2005 MIÐVIKUDAGUR Fellibylurinn Haitang veldur usla í Kína: Milljón manns leita›i skjóls KÍNA, AP Meira en ein milljón manna flúði heimili sín undan veðurofsanum sem fylgdi felli- bylnum Haitang inn á land á suð- austurströnd Kína í gær. Áður hafði bylurinn valdið usla á Taívan með mikilli úrkomu og mannskaðavindhæð. Fjórir fórust af völdum óveðursins þar. Vindhæðin var 119 kílómetrar á klukkustund er fellibylurinn skall á hafnarbænum Huangqi í Fujian-héraði síðdegis að staðar- tíma. Óttast var að flóð hefði eyði- lagt fjölda þorpa á ströndinni. Áður höfðu íbúarnir verið fluttir í neyðarskýli innar í landi. Alls flúðu þannig yfir ein milljón manna heimili sín í héruðunum Fujian og Zhejiang, að því er kín- verska ríkissjónvarpið greindi frá. Vindhraðinn gekk þó hratt nið- ur er bylurinn færðist inn á land í norðvesturátt og að sögn Xinhua- fréttastofunnar gerðu stjórnvöld ráð fyrir að fellibylurinn hefði breyst í venjulega hitabeltislægð innan við sólarhring eftir að hann kom inn yfir meginlandið. - aa Hungursneyð blasir við Afríkuríkinu Níger: Of máttfarin til a› neyta matar HUNGURSNEYÐ Hungursneyð ríkir í Afríkuríkinu Níger en þar búa 3,6 milljónir manna við alvarlega vannæringu. Börn eru talin í sér- stakri hættu. Miklir þurrkar hafa verið í suðurhluta Níger undanfarna mánuði og til að bæta gráu ofan á svart hafa engisprettur étið stærstan hluta uppskeru síðasta árs. Hjálparsamtökin World Vision vara við að tíunda hvert barn á þurrkasvæðunum geti dáið af völdum vannæringar. Sum barnanna í hjálparbúðum samtakanna eru svo illa haldin að þau geta ekki komið neinum mat niður. „Augljóslega eru ekki allir jafnir fyrir Guði. Sjáið okk- ur, ekkert okkar á neitt að borða,“ sagði móðir lítillar, sársvangrar stúlku við frétta- mann BBC. Hjálparsamtök gagnrýna hversu litla aðstoð Nígermenn hafa fengið þar sem ljóst var í hvað stefndi fyrir mörgum mán- uðum síðan. Þau telja að neyðin muni aukast á næstu mánuðum verði ekki gripið inn í. Níger er víðfeðmt en strjál- býlt eyðimerkurríki, eitt fátæk- asta land jarðar. -shg Stefán Jón segir erfitt a› flagga ni›ur í Össuri Össur Skarphé›insson segist ekki vilja útiloka a› gefa kost á sér sem borgar- stjóraefni en segir a› hugmyndin komi honum á óvart. Steinunn Valdís Óskarsdóttir segir hugsanlegt frambo› Össurar engin áhrif hafa á sitt frambo›. SVEITASTJÓRNARMÁL Össur Skarphéð- insson, þingmaður og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, segist ekki útiloka að hann gefi kost á sér sem borgarstjóraefni Samfylking- arinnar í Reykjavík. „En mér hefur ekki flogið þetta í hug. Það er skemmtilegt hvað menn eru hugmyndaríkir. Ég er þingmað- ur borgarbúa og ég hef mikinn áhuga á málefnum Reykjavíkurlist- ans. Ég vil ekki að þau málefni verði lokuð af í bakherbergjum flokks- maskínanna. Ég hef sterkar skoðan- ir á því sem Reykjavíkurlistinn hef- ur vel gert og líka á því sem mér finnst þurfa að lagfæra. Ég læt eng- an þagga niður í mér hvort sem það varðar málefni gæslukvenna eða viðhorf mín um að allir stuðnings- menn listans eigi að fá kost á að velja frambjóðendur eða borgar- stjóraefni,“ segir Össur. Aðspurður um hvort hann myndi íhuga að gefa kost á sér ef til hans yrði leitað segir Össur. „Þetta kem- ur svo algjörlega flatt upp á mig að ég hef ekkert meira um þetta að segja í bili.“ Stefán Jón Hafstein, borgarfull- trúi Samfylkingarinnar, segir að Össur geti tekið þátt í prófkjöri eins og aðrir. „Ég hef alltaf verið tals- maður þess að það verði sem opnast val og víðtækust þátttaka um það hvernig Reykjavíkurlistinn verður til og það hlýtur að fela í sér að Össur getur verið með eins og allir aðrir. En eins og öllum er kunnugt hefur enginn reynt að þagga niður í honum síðustu daga enda er það vonlaust,“ segri Stefán Jón. Steinunn V. Óskarsdóttir, borg- arstjóri og borgarfulltrúi Samfylk- ingarinnar, segir að mögulegt fram- boð Össurar hafi engin áhrif á hennar áform og hún hafi lítið um það að segja. „Það er algjörlega mál þeirra sem vilja fara fram. Mér finnst mestu máli skipta að sá sem verður borgarstjóraefni R-listans geti unnið með samstarfsflokkun- um að því gefnu að af framboði R- listans verði og það tel ég mig geta,“ segir Steinunn. hjalmar@frettabladid.is Skattframtöl öryrkja: Ekkert funda› fyrr en í ágúst FÉLAGSMÁL Fulltrúar Öryrkja- bandalags Íslands og Landssam- taka lífeyrissjóða hafa enn ekki fundað vegna bréfs sem um 1.300 öryrkjar fengu á dögunum þar sem þeir voru krafðir um skattframtöl síðustu þriggja ára fyrir örorkumat. Öryrkjabanda- lag Íslands óskaði eftir slíkum fundi í síðustu viku svo hægt væri að fara yfir málin. Ekki er búist við að fundur- inn verði haldinn í þessum mán- uði vegna sumarleyfa en sam- kvæmt heimildum blaðsins hef- ur verið rætt um halda hann í ágúst. - grs Á Árni Magnússon að fara í framboð í norðvestur- kjördæmi? SPURNING DAGSINS Í DAG: Getur Samfylking boðið fram R-lista án hinna flokkanna? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 30,4% 69,6% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN TÓMUR MAGI World Vision samtökin vara við því að allt að tíunda hvert barn á þeim svæðum þar sem neyðin er stærst geti dáið úr sulti. ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON „Þetta kemur algjörlega flatt upp á mig.“ STEFÁN JÓN HAFSTEIN Segir vonlaust að þagga niður í Össuri. STEINUNN V. ÓSKARSDÓTTIR Hefur lítið um framboð Össurar að segja. LEITAÐ SKJÓLS Hermenn hjálpa fólki úr fjallaþorpi í Wenling í Zhejiang-héraði í Suðaustur-Kína í skjól undan fellibylnum Haitang í gær. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P M YN D /P ÁL L B ER G M AN N 06-07 19.7.2005 21:01 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.