Fréttablaðið - 20.07.2005, Side 19

Fréttablaðið - 20.07.2005, Side 19
3MIÐVIKUDAGUR 20. júlí 2005 Síðumúla 11 • 108 Reykjavík • Sími: 588 6500 • www.utivistogveidi.is OPIÐ Í SUMAR: laugardaga 10-17, sunnudaga 11-16, virka daga 9-19 Neyðarsími allan sólarhringinn 844 7000 Útsölustaðir Loop vörunnar fyrir utan Útivist og veiði er Sjóbúðin á Akureyri og Veiðiflugan á Reyðarfirði Vegna mikillar eftirspurnar og sölu á Gray-line stöngunum hefur Loop ákveðið í samvinnu við Útivist og veiði að lækka verð á stöngunum um 20% Sértilboð Útivist og veiði býður í þessu sambandi Gray-line stöng fyrir línu 6 á sérstöku tilboði með 30% afslætti ef keypt er Loop-hjól og Loop-Opti skotlína með. Eitt helsta töfraorð í íslenskri veiðimenningu er orðið MOK. Það á nú við í að minnsta kosti tveimur laxveiðiám á Íslandi þessa dagana: Norðurá og Þverá/Kjarrá þar sem nú þegar er ljóst að sumarið 2005 verður metár. Norðurá er komin vel yfir 2000 laxa þegar öll svæði eru tal- in og ekkert lát á. Hún og Þverá/Kjarrá skera sig mjög úr með þessa ótrúlegu magnveiði, en svo má þess geta að Leir- vogsá (45 laxar á einum degi á tvær stangir!) og Elliðaárnar gefa mjög vel, en batamerkin á Elliða- ánum eru sérlega jákvæð. Stóra Laxá og fleiri fara hægar af stað, Langá fer tæpast í mokveiðiflokk þessu sumri, ekki frekar en Kjós- in og er merkilegur þessi mikli munur á ám á sama landssvæði. Sjóbleikjan er farin að gefa sig fyrir norðan og austan. Menn hafa glímt við „kusur“ eins og þær kallast risableikjunar – svo sem í Eyjafjarðará sem er komin á fulla ferð. Tveir fé- lagar settu í um það bil 20 fiska og náðu 13 á einum degi. Þar af var einn sex punda og þeir misstu eina algjöra „kusu“. Sú tók á lítt áberandi veiðistað og urðu þeir að hlaupa á eftir henni langt niður með á. Þeir sáu fiskinn greinilega og sögðu að hann hefði ekki verið undir 5 kg eða 10 pundum. Pheasant Tail var sem áður flugan sem virkaði og fer að verða þrá- látur gestur á þessum síðum! Lónsá í Þistilfirði gaf fína fiska í vikunni og Hofsá er komin inn fyrir austan með bleikju á báðum svæðum. Heldur er daprara af silungsvötnum hér syðra. Mönn- um þykir Hlíðarvatn hafa misst flugið, og heldur vera VEIÐISUMARIÐ með Stefáni Jóni Hafstein VEIÐIFRÉTTIR Í SAMSTARFI VIÐ FLUGUR.IS MOK! smátt á Þingvöllum. Á urriðasvæðinu íLaxá er ,,millibilsástand“ eins og náttúru- lögmálin gera ráð fyrir, þegar fyrsta mýflugnagangan er búin hefur fiskurinn ekkert að éta og hefur hægt um sig þar til lirfan hefur þroskast nægilega til að kom- ast á veisluborðið á ný. Á meðan eru það helst stórar straumflugur sem gefa, menn hafa náð að æsa urriðann upp með því að sökkva Rektor, Black Ghost og Nobbler vel með sökklínum og draga hratt inn. Þessi aðferð er reyndar alveg sígild í urriðaveið- um hvar sem er í heiminum! Aldrei þessu vant voru það ekki litlu púpurnar sem gáfu þegar við félagar voru þar fyrir nokkrum dögum, þýddi ekki að bjóða þær. Það helgast af því að ekkert svipað æti er í ánni þessa dagana og því er at- hygli urriðans hreint ekki við sambærilegar flugur. Heilræði vikunnar kemur beint af bakka Hlíðarvatns þar sem náungi var að veiðum í vikunni og setti í stóra bleikju. Hann var langt úti í vatni og háflaus, svo hann varð að þreyta hana vandlega og feta sig var- lega til lands. Allt gekk vel, þar til hann fór á taugum og ætlaði að vippa fiskinum á land með því að kippa í tauminn með handafli! Eins og vænta mátti slitnaði úr fiskinum og hann synti frelsinu feginn burt. Við silungsveiðar er gott að hafa lítinn háf hangandi á sér og þreyta fiskinn þar til maður getur smeygt honum varlega undir fiskinn og lyft upp. Best hefur mér reynst að landa stórum fiskum, laxi og urriða, með því að „stranda“ þeim. Þreyta fiskinn upp að lágum malar- bakka eða sandrifi og láta hann sjálfan um að leggjast þar á hliðina með því að halda línu vel strekktri án þess að toga mik- ið á móti. Fleiri veiðifréttir daglega og heilræði við veiðar á www.flugur.is; Flugufréttir koma alla föstudaga í tölvupósti til áskrifenda á flugur.is með ítarlega umfjöllun um allt sem varðar veiðiskap í sumar. Einar Sigurðsson tók 5 punda urriða á Nobbler í Laxá í Mývatnssveit. „Við eldum úr því sem er nýjast og ferskast og upp úr matarkistu Skagafjarðar. Það er fuglinn úr Málmey og Drangey, svartfugl og oft lundi, og svo auðvitað sjávar- fangið að ógleymdu fjallalamb- inu. Þar að auki eru ýmis landsins gæði eftir árstíðum eins og til dæmis bláberin þegar fer að halla að hausti,“ segir Ólafur Jónsson, sem rekur ferðaþjónustu og veit- ingahús í Lónkoti í Skagafirði. Kúltúr og krásir eru einkennis- orð Lónkots þar sem leitast er við að bjóða upp á veitingar í hæsta gæðaflokki innan um menningu svæðisins. Veitingahúsið heitir Sölvabar eftir Sölva Helgasyni myndlistarmanni sem er fæddur í sveitinni en myndir eftir hann hanga í veitingahúsinu. Maturinn er síðan bæði fyrir augað og bragðlaukana þar sem hver disk- ur er vandlega skreyttur. „Við segjum að þetta sé matargerðar- list sem stendur undir nafni,“ seg- ir Ólafur. Bæði list og lyst. Um þessar mundir heldur Lón- kot upp á þrefalt afmæli. Tuttugu ár er síðan fjölskylda Ólafs keypti jörðina að Lónkoti, fimmtán ár síðan ferðaþjónustan þar var stofnuð og tíu ár síðan veitinga- þjónustan var opnuð en það ár var einnig afhjúpaður minnisvarði um Sölva Helgason. ■ Lónkot heldur upp á þrefalt afmæli í ár. Bæði list og lyst Lónkot í Skagafirði heldur upp á þrefalt afmæli á þessu ári. Þar er ferðaþjónusta og frábær veitingastaður. 18-19 (02-03) Allt-Ferðir 19.7.2005 19:38 Page 3

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.