Fréttablaðið - 20.07.2005, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 20. júlí 2005 MARKAÐURINN4
F R É T T I R
KB banki hækkar enn frekar á lista The Banker yfir eitt hundrað
stærstu banka heims þegar listinn verður birtur á næsta ári. Yfir-
töku KB banka á Singer & Friedlander (S&F) lýkur að öllum líkind-
um að fullu með haustinu. S&F var í 507. sæti listans en KB banki í
því 211. Ef bankarnir eru
lagðir saman skjótast þeir
upp í 169. sæti en vegna mik-
ils vaxtar íslensku
bankanna á þessu ári
má fastlega búast við
því að þeir hækki enn
frekar. - eþa
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Verð á auglýsingamarkaði hefur
farið lækkandi undanfarna mán-
uði og er skýringin sögð sú að
fjölmiðlum, einkum prent-
miðlum, hefur fjölgað mikið.
„Ég er að sjá verð sem ég hef
ekki séð á þessum markaði,“
segir Jón Viðar Stefánsson, mark-
aðsstjóri hjá Húsasmiðjunni.
„Heilt yfir verður maður mjög
var við alls konar gylliboð.“
Guðmundur Gíslason, mark-
aðsstjóri hjá B&L, verður einnig
var við að verð á auglýsingum
hafi lækkað – sérstaklega á síð-
ustu mánuðum. Það hafi þó ekki
lækkað markaðskostnað fyrir-
tækisins. „Þegar nýir miðlar hafa
verið að koma inn hefur auglýs-
ingaverð lækkað vegna sam-
keppninnar. Þegar ég var að
byrja í þessu starfi dugði heil-
síðuauglýsing í Morgunblaðinu
því öll þjóðin sá þá auglýsingu. Í
dag þarf allt aðra taktík. Maður
þarf að dreifa sér á mun fleiri
miðla.“
Hann býst við að þegar upp-
sveiflan í þjóðfélaginu er á enda
lækki auglýsingaverð enn þá
frekar.
Jón Viðar er ekki tilbúinn að
nefna tölur í þessu sambandi en
sagði að lækkunin væri allnokkur
mið-
að við
síðasta
sumar. Hann segir að þetta
ástand hljóti að vera mjög gott
fyrir marga auglýsendur þótt
hann hafi ákveðna skoðun á því
að sumir miðlar auglýsi betur en
aðrir. „Stærri fyrirtæki birta
eftir dekkunar- og tíðnimarkmið-
um og horfa í snertiverð en láta
ekki ódýrasta heildarverðið ráða
því hvar auglýsingin er.“
Barist um auglýsendur
Auglýsingaverð hefur farið lækkandi á undanförnum mánuð-
um vegna fjölgunar prent- og ljósvakamiðla. Erfiðara er fyrir
markaðsstjóra að átta sig á því hvar markhópana er að finna.
Citigroup er stærsti banki
í heimi samkvæmt lista
The Banker yfir eitt þús-
und stærstu banka heims í
lok síðasta árs. Sam-
steypan var einnig verð-
mætasti banki heims að
markaðsvirði en virði
bankans nam um sextán
þúsund milljörðum króna.
Í eignum talið er bankinn
þó í öðru sæti. Svissneski
bankinn UBS, sem skipar
nítjánda sæti, er stærstur
í eignum talið. Eignir hans
nema eitt hundrað þúsund milljörðum króna.
Annar í röðinni er í JP Morgan Chase sem hoppaði upp um þrjú
sæti á milli ára. Kínverski
bankinn Bank of China er
sá ellefti en hann stökk
upp um átján sæti frá
fyrra ári. Japanskir
bankar eiga erfitt ár að
baki samkvæmt niður-
stöðu The Banker. Mizuho
lækkaði um tvö sæti og
Sumitomo Mitsui Financial
Group, sem vermdi níunda
sætið árið 2003, féll niður í
það fimmtánda.
KB banki er í 211. sæti á
listanum, Íslandsbanki í
441. sæti og Landsbankinn
í því 471. eins og áður
hefur komið fram. - eþa
Citigroup í fyrsta sæti
Skammtímasjó›ur er fjárfestingarsjó›ur skv. lögum nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i.
Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings Búna›arbanka hf. Fjárfestingarsjó›ur telst vera
áhættusamari fjárfesting en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjó›s er fólgin
í r‡mri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í ver›bréfasjó›i. Nánari
uppl‡singar um framangreint má nálgast í útbo›sl‡singu e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins í
útibúum KB banka e›a á www.kbbanki.is.
* Nafnávöxtun sl. 12 mánu›i m.v. 30.06.2005
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
16
3
6
0
– kraftur til flín!
S K A M M T Í M A S J Ó ‹ U R
Skammtímasjó›ur er gó›ur kostur fyrir flá sem vilja
áhættulitla fjárfestingu og verja sig gegn ver›bólgu.
Enginn munur er á kaup- og sölugengi eftir 30 daga.
Innstæ›an er alltaf laus til útborgunar.
9, 0
*
%
AUGLÝSINGAVERÐ LÆKKAR Markaðsstjórar eru sammála að verð á
auglýsingum hafi lækkað. Fleiri ljósvaka- og prentmiðlar eru ástæða
þessarar þróunar.
CITIGROUP Bandaríski stórbankinn Citigroup er
stærsti banki heims að mati The Banker.
STÓR BANKI Við kaup KB
banka á Singer & Friedlander
verður bankinn kominn í hóp
170 stærstu banka heims.
T Í U S T Æ R S T U B A N K A R
H E I M S A Ð M A T I T H E B A N K E R
Sæti Banki Land Sæti
í fyrra
1. Citigroup BNA 1.
2. JP Morgan Chase BNA 5.
3. HSBC Holdings Bretland 3.
4. Bank of America Corp BNA 4.
5. Crédit Agricole Groupe Frakkland 2.
6. Royal Bank of Scotland Bretland 8.
7. Mitsubishi Tokyo Fin. Gr. Japan 7.
8. Mizuho Financial Group Japan 6.
9. HBOS Bretland 11.
10. BNP Paribas 10.
Kjötið snarhækkar
Svínakjöt hefur hækkað um 18 prósent á árinu.
Kjötframleiðendur á Íslandi hafa
dregið úr framleiðslu sinni og er
eftirspurnin eftir kjöti, sérstak-
lega nautakjöti, meiri en fram-
boðið. Það hefur leitt til mikilla
verðhækkana frá áramótum.
Svínakjöt hefur hækkað um 18
prósent, lambakjöt um tæp 16
prósent og nautakjöt um 7 pró-
sent samkvæmt mælingum Hag-
stofunnar.
Björgvin Jón Bjarnason,
framkvæmdastjóri Síldar og
fisks, segir jafnvægi að nást í
svínakjötsframleiðslu eftir mikla
rússibanareið. Dregið hafi verið
úr framleiðslu í júní um fjórtán
prósent miðað við sama tíma í
fyrra.
Sigurður V. Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Kjötsmiðjunnar,
segir að umtalsverð hækkun hafi
verið á öllu kjöti frá framleiðend-
um. Hún verði enn meiri í haust
því skortur sé á kjöti.
Þorgils Torfi Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Sláturhúss Hellu,
segir verðið hafa hrapað undan-
farin ár og sé að ná sér á strik
aftur. Það sé samt hvergi nærri
því sem áður var. – bg
KJÖTFJALL Fjallið minnkar og verðið hækkar.
M
ar
ka
ðu
rin
n/
Va
lli
Kaupin á Singer & Friedlander:
Fleytir KB banka enn hærra Lækki tengigjöld
Farsímanotendur á Íslandi nota
símann sinn að jafnaði minna í
hverjum mánuði en nágrannar
þeirra í Finnlandi, Frakklandi,
Írlandi og Bretlandi svo dæmi
séu tekin. Póst og fjarskipta-
stofnun telur möguleika á að
auka töluvert farsímanotkun
með því að lækka gjald fyrir
símtöl á milli farsímaneta. Það á
við þegar viðskiptavinur
Símans hringir í síma viðskipta-
vinar OgVodafone. Lægra verð
fyrir þessi símtöl gæti, að mati
Póst- og fjarskiptastofnunar,
skilað sér í aukinni notkun án
þess að heildartekjur farsíma-
fyrirtækja lækkuðu að sama
skapi. -bg
M Á N A Ð A R L E G
F A R S Í M A N O T K U N *
Land Mínútur
Finnland 247
Frakkland 213
Írland 198
Bretland 144
Ísland 140
Þýskaland 74
*Miðað er við meðalnotkun hvers notanda
04_05_Markadur lesið 19.7.2005 16:10 Page 2