Fréttablaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 6
6 9. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
SKIPULAGSMÁL Úthlutun á lóðum
undir 200 íbúðir í Krikahverfi í
Mosfellsbæ hófst í gær. Sá háttur-
inn verður hafður á, í fyrsta sinn
á Íslandi svo vitað sé, að hreyfi-
hömluðum og fjölskyldum þeirra
er veittur forgangur að umsókn-
um um fjögur einbýlishús víðs
vegar í hverfinu.
Markmiðið með því er að gera
hreyfihömluðum kleift að byggja
hús sem hannað er frá upphafi
með þarfir þeirra í huga og auð-
veldar þeim því að lifa eðlilegu
heimilislífi, að sögn Haraldar
Sverrissonar, formanns skipu-
lags- og byggingarnefndar.
Áætlað er að samanlagður
kostnaður vegna framkvæmd-
anna í Krikahverfi verði um átta
milljarðar og að fólksfjölgun í
Mosfellsbæ verði um átta prósent
þegar hverfið er fullbyggt.
Gert er ráð fyrir 68 einbýlis-
húsum í hverfinu, sex parhúsum,
átta raðhúsum sem í verða alls 31
íbúð og fimm fjölbýlishúsum sem
verða alls með 83 íbúðum. Hægt
verður að byggja á lóðunum 1. júlí
á næsta ári.
Krikahverfið liggur að Vestur-
landsvegi til vesturs, Reykjavegi
til norðurs, landi Teigs til austurs
og Lágafelli til suðurs þar sem við
tekur gróið skógræktarsvæði.
- jse
Nýtt íbúðahverfi í Mosfellsbæ:
Hreyfihamlaðir
fá forgang
KRIKAHVERFI Í MOSFELLSBÆ Krikahverfi er nálægt miðbæjarkjarna en er einnig útivistar-
svæði og telja bæjarstjórnarmenn að mikil eftirspurn verði eftir lóðum.
KJÖRKASSINN
Á ASÍ að segja upp kjarasamn-
ingum við Samtök atvinnulífsins?
Já 69%
Nei 31%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á Fjármálaeftirlitið að birta
hvaða fyrirtæki hafa brotið af sér
við verðbréfaviðskipti?
Segðu skoðun þína á vísi.is
�������� �������
� � ��������������������������������������������������������������
�������� ����������������������������������
� � �������������������������������������������������������������
������ � ���������������������������������������������������������
� � ������������������������������������������������
������ � ������������������������������������������������������������������
� � ���������������������������������
������ � �����������������������
� � �����������������������������
������ � ����������������� ����������������
� � ��������������������������������� � �
� � ������������������������������������
�������� ��������������������������������
� � ���������������������������
� � ������������������������
� � ���������������������
� � ��������������
�����������
���������������
�����������������������������������������������������
�������������������������� �����������������������������
�����������������������������
Lausn úr varðhaldi hafnað Hæsti-
réttur Chile hafnaði í gær kröfu verjenda
Albertos Fujimori, fyrrverandi forseta
Perús, um að hann yrði látinn laus gegn
tryggingu. Fujimori var handtekinn í fyrra-
dag í Chile þar sem hann birtist óvænt.
Talið er víst að perúsk yfirvöld reyni að fá
forsetann fyrrverandi framseldan.
CHILE
FANGAR Evrópuráðið hóf í gær
rannsókn á því hvort bandaríska
leyniþjónustan CIA starfræki
leynifangelsi í Austur-Evrópu.
Bandaríska dagblaðið Wash-
ington Post greindi frá þessu í
síðustu viku og sagði að þar væru
meintir hryðjuverkamenn í haldi
þar sem þeir væru pyntaðir til
sagna. Búið er skipa yfirmann
rannsóknarinnar og heldur hann
til Rúmeníu síðar í mánuðinum
til þess að kanna hvort staðhæf-
ingar mannréttindasamtaka um
að leynifangelsin séu í Rúmeníu
og Póllandi eigi við rök að styðj-
ast. Stjórnvöld þessara landa hafa
þvertekið fyrir það. ■
Leynifangelsi CIA:
Evrópuráðið
kannar málið
ÞÝSKALAND, AP Forystumenn
beggja stærstu stjórnmála-
flokka Þýskalands leituðu í
gær enn leiðar til sátta um það
hvernig fara eigi að því að fylla
upp í fjárlagahallann. Hann
stefnir annars í að stækka
stjórnlaust. Fulltrúar Jafnaðar-
mannaflokksins vörðust tillögu
kristilegra demókrata um að
hækka virðisaukaskatt; hinir
síðarnefndu vildu aftur á móti
ekki fallast á hækkun á hátekju-
skatti sem jafnaðarmenn leggja
til.
Nokkuð miðaði þó í átt að sam-
komulagi um málefnasamning
„stóru samsteypu“ undir forystu
Angelu Merkel. Ákveðið var að
eftirlaunaaldur yrði hækkaður
smám saman og umbætur gerð-
ar á hinu flókna sambandsríkis-
kerfi Þýskalands.
Verðandi kanslarinn, Merkel,
tjáði þingflokki kristilegra
demókrata að viðræðunum um
málefnasamninginn ætti að
ljúka á föstudagsmorgun.
Erfið ágreiningsmál eru þó
óleyst, svo sem í atvinnu- og
heilbrigðismálum, og ekki síst
hvernig stöðva eigi fjárlaga-
hallann sem á þessu ári verður
um 35 milljarðar evra eða um
2.500 milljarðar króna.
- aa
Stjórnarmyndunarviðræðurnar í Þýskalandi:
Mjakast nær málefnasamningi
BILIÐ MINNKAR Angela Merkel, leiðtogi
CDU og verðandi kanslari, talar við Matthias
Platzeck, verðandi formann SPD og Peter
Struck, þingflokksformann jafnaðarmanna, í
Berlín í gær.
STARFSMANNALEIGUR Í héraðsdómi
voru í gær tekin fyrir mál sem
Starfsgreinafélag Austurlands
höfðar gegn Impregilo og starfs-
mannaleigunum N.E.T.T. og Select
I Servicos. Deilt er um hvort starfs-
mannaleigunum beri að greiða
iðgjöld í sjúkrasjóð.
„Upphaflega höfðu ekki verið
greidd félags-, orlofs- eða sjúkra-
sjóðsgjöld og málið fór af stað.
Orlofs- og félagsgjöldin voru greidd.
Eftir stóð ágreiningur um sjúkra-
sjóðsgjöldin sem núna er fyrir
dómi,“ segir Eva Dís Pálmadóttir,
lögmaður starfsgreinafélagsins. - saj
Starfsmannaleigur:
Greiddu ekki í
sjúkrasjóð
STARFSMENN VIÐ KÁRAHNJÚKA Ágreining-
ur er um hvort starfsmannaleigur eigi að
borga í sjúkrasjóð.
FRAKKLAND, AP Jacques Chirac
Frakklandsforseti lýsti í gær yfir
neyðarástandi til að hægt væri
að setja á útgöngubann í þeim
sveitarfélögum þar sem verstu
óeirðirnar hafa átt sér stað að
undanförnu. Þessi ráðstöfun á sér
vart fordæmi í sögu Frakklands
eftir stríð, en til hennar er gripið
til að binda enda á verstu bylgju
uppþota sem orðið hafa í landinu
í áratugi.
Yfirlýsingin um neyðarástand,
sem heimilar að sett sé útgöngu-
bann þar sem ástæða þykir til, tók
gildi á miðnætti í gærkvöld og er
í gildi í tólf daga til að byrja með.
Allt tiltækt lögreglulið hefur verið
kallað á vakt til að fylgja útgöngu-
banninu eftir, einkum og sér í lagi
í innflytjenda-úthverfunum norð-
ur af París. Herinn hefur ekki
verið kallaður til.
„Þetta er nauðsynlegt til að
flýta því að koma á friði og spekt,“
sagði Chirac á ríkisstjórnarfundi.
Neyðarástandslögin sem Chir-
ac ákvað að beita nú voru upp-
runalega sett árið 1955, er stríð
Frakka í Alsír stóð sem hæst. Eftir
að hafa staðið svo til ráðþrota
gagnvart óeirðunum tólf daga í
röð og horft upp á þær breiðast
út til æ fleiri borga í landinu - og
jafnvel út fyrir landamærin - sá
ríkisstjórnin ekki annan kost í
stöðunni en að grípa til svo rót-
tækra ráðstafana.
Þeir sem staðnir eru að því að
brjóta útgöngubannið eiga yfir
höfði sér allt að tveggja mánaða
fangelsi. Enn fremur munu sýslu-
menn og aðrir fulltrúar héraðsyf-
irvalda hafa vald til að úrskurða
fólk í heimafangelsi, gera vopn
upptæk og loka opinberum stöð-
um þar sem gengi koma saman.
Frá þessu greindi Dominique de
Villepin forsætisráðherra í ræðu
á þingi. Hann bætti því við að það
myndi taka tíma að koma á lögum
og reglu.
En Villepin rétti líka út sátta-
hönd til innflytjendanna í „vand-
ræðaúthverfunum“ með því að
viðurkenna að þeir mættu
þola stöðuga mismunun, sem
væri blettur á frönsku sam-
félagi. „Þetta er ögurstund
fyrir lýðveldið,“ sagði hann.
Hvernig aðlögun innflytj-
enda að frönsku samfélagi
væri háttað yrði að endur-
skoða.
Fulltrúar mannréttinda-
samtaka lýstu í gær áhyggj-
um af flýtimeðferð sem
dómstólum er ætlað að beita
við afgreiðslu ákæra gegn
meintum brennuvörgum og
óeirðaseggjum.
audunn@frettabladid.is
Frakkar setja útgöngubann
Jacques Chirac Frakklandsforseti lýsti í gær yfir neyðarástandi svo að setja mætti útgöngubann í óeirða-
bæjum. Villepin forsætisráðherra segir að uppræta verði misréttið sem innflytjendur megi stöðugt þola.
LÖG OG REGLA Í FORGANG Chirac forseti talar í
Elysée-höll í París í gær. Lögregluvörður í forgrunni.
NORDICPHOTOS/AFP
BARIST VIÐ BRUNA Kveikt var í bílum í Cenon nálægt
Bordeaux í Suðvestur-Frakklandi rétt eins og annars
staðar í landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UMFERÐARSLYS Kona slasaðist þegar
rúta og fólksbíll lentu í árekstri
við afleggjarann að Bjarnarhöfn
á Snæfellsnesi í hádeginu í gær.
Konan var flutt með sjúkrabíl í
Stykkishólm en þangað sótti þyrla
landhelgisgæslunnar hana og flut-
ti Landsspítalann í Fossvogi. Þyrl-
an var komin til Reykjavíkur í þri-
ðja tímanum í gær. Konan hafði
þríbrotnað á fótlegg.
Einn farþegi rútunnar var flutt-
ur til Grundarfjarðar til skoðunar
með minniháttar meiðsli. - saj
Umferðarslys á Snæfellsnesi:
Þyrlan sótti
slasaða konu
TF-LÍF Þyrla landhelgisgæslunnar sótti
slasaða konu á Snæfellsnes í gær.
Þjónustu verður ekki hætt Sæunn
Stefánsdóttir aðstoðarmaður heilbrigð-
isráðherra segir mikilvægt að árétta að
geðlæknisþjónustu við börn og unglinga
verði ekki hætt í desember. Haft var
eftir geðlækni í fréttum Útvarpsins að
fjárveiting frá ríkinu yrði þá uppurinn og
þjónustu yrði því hætt. Sæunn segir að
samningar sem undirritaðir hafa verið
við lækna tryggi að þjónustu verði ekki
hætt þó svo farið yrði fram úr fjárveit-
ingu.
HEILBRIGÐISMÁL