Fréttablaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 51

Fréttablaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 51
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN14 F Y R I R T Æ K I F Ó L K Á F E R L I „Ég held að ef ég ætti að gefa einhverjum ráð þá væri það að óttast ekki breytingar,“ segir Runólfur Ágústsson, lögfræðing- ur og rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, þegar hann er inntur eftir því hvert er besta ráðið sem hann býr yfir. Hann segir það mikilvægt að átta sig á að í al- þjóðavæddu nútímasamfélagi sé umhverfi morgundagsins breytt frá því sem við þekkjum í dag og bjuggum við í gær. Við búum í samfélagi breytinganna og mörg okkar viti ekki hvaða verkefni morgundagurinn færir okkur. Það hvernig við höndlum breytt umhverfi muni ráða árangri okk- ar. Runólfur líkir lífinu við eina samfelld breytingastjórnun og segir að við þurfum að nota breytingarnar til að skapa okkur tækifæri og forskot. Hann segir að í raun sé það svo að nýjunga- girni okkar Íslendinga sé ótrú- legur kostur á tímum þegar íhaldssemi er löstur. „Við lifum skemmtilega og spennandi tíma, þökk sé breytingum sem við sjaldnast ráðum nokkru um, en getum yfirleitt nýtt okkur til góðra verka,“ segir Runólfur. - hhs B E S T A R Á Ð I Ð Sportvörukeðjan Intersport hefur innan sinna vébanda um fimm þúsund verslanir í 25 löndum en styrkur hennar er þó mestur í Evrópu. Eignarhaldsfélagið Norvik, sem er móðurfé- lag BYKO og Kaupáss, er sérleyfishafi Inter- sport á Íslandi og rekur þrjá verslanir hér á landi. Stærsta Intersport-verslunin er staðsett í Húsgagnahöllinni en þetta er jafn- framt stærsta íþróttavöruverslun landsins – um 1.800 fermetrar – og ein stærsta Intersport verslunin á Norðurlöndum. Önnur stór versl- un er í Smáralind og sú þriðja er inni í Nóatúni á Selfossi. Intersport opnaði í Húsgagnahöllinni í apr- íl árið 1998 og var þá í eigu eigenda hússins, Jóns Hjartarsonar og fjölskyldu, sem seldu verslunina til Kaupáss árið 2002. Norvik eign- aðist Kaupás seinni part árs 2003 og Intersport hefur verið innan þeirrar keðju síðan. BJÓÐA BESTA VERÐIÐ „Við erum með merkjavöru og bjóðum hana á lægra verði en gengur og gerist á markaðn- um,“ segir Birgir Örn Friðþjófsson, rekstrar- stjóri Intersport sem jafnframt er rekstrar- stjóri Húsgagnahallarinnar. Hann er spurður um kosti þess að vera hluti af fjölþjóðlegri keðju. „Intersport er öflugt vörumerki sem er þekkt um allan heim og er stærsta keðja í heimi í þessum geira. Við fáum þarna mikilvæg viðskiptasambönd og aðgang að stórum aðila sem semur um innkaupsverð við birgja og því fáum við hagkvæm verð. Það er mikið í umræðunni svokölluð verðvernd og samstarfsaðilar okkar á Norðurlöndum eru meðvitaðir um slíka hluti. Við byrjuðum að bjóða verðvernd fyrir einu ári og fögnum því ársafmæli verðverndarinnar nú í nóvember,“ segir Birgir Örn. Intersport gerir reglulegar verðkannanir og síðasta könnun, sem fyrirtækið lét gera, sýndi að við vor- um mun ódýrari en helstu samkeppnisaðilarnir. „Á þeim vöruflokkum sem við könnuðum síðast þá vorum við í 90 prósent tilvika með lægsta verð- ið. Við ætlum okkur að vera stærstir, bestir og með lægsta verðið,“ segir Birgir og brosir. TÍSKUMERKIN ALLTAF ÖFLUG Veturinn var snemma á ferðinni og urðu starfsmenn Intersports strax varir við mikla söluaukningu á alls kyns vetrarfatnaði. Sala á úlpum og sleðum rauk upp og heilu gámarnir af vetrarvörum kláruðust á augabragði. Mikil söluaukning hefur verið hjá Inter- sport á árinu og er það tilfinning Birgis að fyrirtækið sé að vaxa meira en sem nemur veltuaukningu í geiranum. Það getur verið erfitt að meta vöxt markaðarins þar sem íþróttavöruverslanir eru að mörgu leyti sam- tvinnaðar við tískuvörubransann. „Ég myndi halda að markaðurinn sé að vaxa um tuttugu prósent á þessu ári.“ Ekkert eitt er að vaxa umfram annað, aukningin er þvert yfir hvort sem um er að ræða fatnað eða skó. Tískumerkin haldast alltaf sterk í íþróttavörunum. Adidas og Nike eru klassískar grunnvörur en Puma hefur sótt mjög á í tískuvörunum á síðustu árum. Þá er Hummel einnig að koma sterkt inn í föt- unum. Intersport er einnig með eigin vöru- merki eins og McKinley, Firefly og Protouch, sem eru gæðavörur á hagstæðu verði. Birgir býður spenntur eftir jólavertíðinni eins og margir kollegar hans og gerir ráð fyr- ir mikilli sölu. Að sögn hans er undirbúning- ur fyrir jólin í fullum gangi og talsvert af vörum eru komnar inn í verslanirnar og rest- in dettur inn á næstu tveimur til þremur vik- um. „Það er mjög mikil sala í alls konar sport- fatnaði og skóm. Gjafavörur eru mikið tengd- ar útivistinni, til dæmis áttavitar og göngustafir.“ ÞRETTÁN ÞÚSUND FÉLAGSMENN Markaðsstarf Intersports er öflugt og eru ríf- lega þrettán þúsund manns skráðir meðlimir í vildarklúbbnum Club Intersport. Öll verslun félagsmanna er skráð og eftir tólf mánuði fá þeir veltutengdan bónus í formi inneignar. Þeir sem kaupa fyrir meira en 120 þúsund á ári fá fimmtán prósent endurgreidd í formi inneignar. Birgir segir að Intersport endur- greiði félagsmönnum margar milljónir á hverju ári. Meðlimir fá svo ýmis sérkjör bæði frá keðjunni sem og samstarfsaðilum og fá forgang á útsölur. Konur eru meira áberandi í viðskipta- mannahópnum en karlar en viðskiptavinir eru á öllum aldri. „Við verðum varir við það al- mennt að sú mikla umræða sem er í þjóðfélag- inu um hreyfingu og að halda sér í formi skil- ar sér til okkar og annarra sem selja íþrótta- vörur.“ Margt hefur breyst. Línuskautar sem aðeins ungmenni voru á eru nú orðnir vinsæl- ir meðal allra hópa. Einnig er almenningur orðinn meira meðvitaður um nauðsyn þess að eiga góðan búnað eins og skó. „Við leggjum ríka áherslu á að viðskiptavinir fái ráðlegg- ingu frá starfsmönnum um hvaða skór eru réttir fyrir hvern og einn því skóbúnaður skiptir gríðarlegu máli.“ Birgir getur ekki gefið upp hver verða næstu skref Intersport en það er alveg klárt mál að keðjan ætli sér frekari landvinninga á Íslandi. Intersport Eigandi: Norvik Rekstrarstjóri: Birgir Örn Friðjónsson Fjöldi starfsmanna: 20 í fullu starfi, 30 í hlutastörfum. Sterkir í sportinu Intersport rekur þrjár íþrótta- og útivistarverslanir, þar á meðal stærstu verslun landsins á sínu sviði. Markaðurinn vex hratt og samkeppnin er hörð en keðjan leggur ríka áherslu á að bjóða upp á besta verðið. Eggert Þór Aðalsteinsson kynnti sér rekstur Intersport á Íslandi. MAGNÚS BJARNASON hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri yfir starfsemi Ís- landsbanka í Ameríku og Asíu. Meginhlutverk hans verður að styrkja alþjóðleg verkefni bankans í Bandaríkjun- um, Kanada, Chile og að auki í Asíu. Magnús starfaði áður sem sendifulltrúi og staðgengill sendiherra í sendráði Ís- lands í Peking en hafði þar áður meðal annars starfað sem viðskiptafulltrúi í Bandaríkjunum og Kanada á vegum ut- anríkisþjónustunnar á árunum 1997 til 2003, við stofnun Viðskiptaþjónustu utan- ríkisráðuneytisins (VUR), hjá Arnarflugi, Olís, 10-11 og í fyrirtækjaviðskiptum Landsbankans. Magnús hefur einnig fengist við ráðgjöf og kennslu. Magnús lauk MBA-gráðu í alþjóðaviðskiptum með áherslu á markaðsfræði og samruna Evrópu frá Thunderbird, Garvin School of International Management. Eiginkona hans er Anna Sveinsdóttir, leikskóla- kennari, og eiga þau fjögur börn. EVA MARGRÉT ÆVARSDÓTTIR lögfræð- ingur hefur verið ráðin til starfa á Evr- ópuskrifstofu SA í Brussel. Eva Margrét útskrifaðist sem lög- fræðingur frá Háskóla Íslands og er með LL.M. gráðu í Evrópu- rétti frá Katholieke Universiteit í Leuven í Belgíu. Áður hef- ur hún meðal annars starfað sem lög- maður og rekið Lögmannsstofuna Síðu- múla 9 (nú Lögborg) og unnið sem nefndaritari á nefndasviði skrifstofu Al- þingis. Eva Margrét tekur við af Ástfríði M. Sigurðardóttur sem starfsmaður SA í Brussel en Ástfríður lætur af störfum hjá SA í nóvemberlok. Eva Margrét hef- ur þegar hafið störf og mun starfa við hlið Ástfríðar fyrst um sinn. STEINUNN KRISTÍN ÞÓRÐARDÓTTIR, for- stöðumaður Alþjóða lánveitinga hjá Ís- landsbanka, hefur ver- ið ráðin framkvæmda- stjóri útibús Íslands- banka í London. Meg- inverkefni Steinunnar verða að byggja upp viðskiptasambönd við viðskiptavini sem eru að fara inn á breskan markað og einnig að stofna og styrkja viðskiptasambönd við fyrirtæki í Bretlandi sem starfa í matvælaiðnaðin- um. Steinunn Þórðardóttir hefur byggt upp og leitt teymi reyndra sérfræðinga í lánsfjármögnun til alþjóðlegra fyrirtækja sem forstöðumaður Alþjóða lánveitinga frá árinu 2003. Hún er varamaður í stjórn KredittBanken í Noregi og situr einnig í stjórn Rekstrarfélags ÍSB. Áður en Steinunn tók til starfa hjá Íslands- banka starfaði hún hjá fyrirtækinu En- ron víða um heim. Steinunn er við- skipta- og stjórnmálafræðingur frá há- skóla í Suður-Karólínu og lauk MBA- námi með áherslu á fjármál frá Thund- erbird-háskólanum í Arizona árið 1999. REKA STÆRSTU ÍÞRÓTTAVÖRUVERSLUN LANDSINS „Það er mikið í umræðunni svokölluð verðvernd og samstarfsaðilar okkar á Norð- urlöndum eru meðvitaðir um slíka hluti. Við byrjuðum að bjóða verðvernd í byrjun þessa árs og erum þar af leiðandi með lægsta verðið á markaðnum,“ segir Birgir Örn Friðjónsson, rekstrarstjóri Intersport. RUNÓLFUR ÁGÚSTSSON, REKTOR VIÐSKIPTAHÁSKÓLANS Á BIFRÖST. Það hvernig við höndlum breytt umhverfi mun ráða árangri okkar. Að óttast ekki breytingar Fr ét ta bl að ið /H ei ða 14-15 Markadur-lesin 8.11.2005 15:20 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.