Fréttablaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 37
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 9
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Ný auglýsing frá Apple hefur hrundið af
stað deilum um hvernig tryggja eigi höf-
undarrétt á auglýsingum. Deilurnar eru
þær nýjustu af fjölmörgum um hvaðan
hugmyndir sem fram koma í auglýsing-
um eru sprottnar og hvernig eigi að
tryggja að hugmyndum sé ekki stolið.
Auglýsingastofan TBWA/Chiat/Day
sem vinnur fyrir Apple er ásökuð um að
hafa stolið hugmyndinni að nýju herferð-
inni úr auglýsingu frá skóframleiðandan-
um Lugz. Auglýsingin sýnir skuggamynd
af manni í stórborgarumhverfi með rauðan, app-
elsínugulan, gulan og svartan bakgrunn. Þykir
henni svipa svo mikið til auglýsingar frá skófram-
leiðandanum Lugz frá árinu 2003 að það geti tæp-
lega verið tilviljun. Í auglýsingu Apple er
skuggafígúran söngvarinn Eminem en í þeirri
fyrri óþekktur ungur maður í Lugz-
skóm.
Framkvæmdastjóri auglýsingastofu
Lugz hefur gefið út yfirlýsingu um mál-
ið. Þar segir að Apple noti kröftugustu
þættina úr auglýsingaherferð Lugz sem
geri það að verkum að auglýsingarnar
eru afskaplega líkar. Hann sagði fyrir-
tækið tilbúið til að fylgja málinu eftir
frammi fyrir dómstólum ef þess gerist
þörf til að tryggja rétt sinn.
Auglýsingastofan TBWA/Chiat/Day
sem gerði auglýsingu Apple hefur nú sent frá sér
yfirlýsingu þar sem fram kemur að það sé miður
að auglýsingarnar séu svo svipaðar, það sé tilvilj-
un og komi þeim á óvart eins og öðrum. Það full-
yrðir að nýja auglýsingaherferðin hafi ekki haft
neinar skírskotanir til auglýsingar Lugz. - hhs
Apple ásakað um hugmyndastuld
Auglýsing frá Apple þykir nauðalík auglýsingu skóframleiðandans Lugz.
SKUGGINN AF
EMINEM Í AUGLÝS-
INGU FRÁ APPLE
Apple er ásakað um að
hafa hermt eftir annarri
auglýsingu.
!!" # "
$
%
&
'
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+
!"#$%$&'#$%$
Yahoo kemst á kortið
Hörð samkeppni við Google.
Yahoo-vefsetrið hefur
endurgert kortaum-
hverfi sitt á vefsetr-
inu í þeim tilgangi að
veita ökumönnum
enn betri leiðbeining-
ar á götum úti. Google-vefsetrið
hefur fram að þessu haft nokkra
forystu í akstursleiðbeiningum
fyrir netnotendur og kynnti end-
urgerða þjónustu fyrir rúmum
mánuði en núna blæs Yahoo til
sóknar.
Tilgangurinn er sá hinn sami
hjá báðum fyrirtækjunum – að
draga fleiri notendur að vefsíð-
unum svo þeir nái að
selja fleiri auglýs-
ingar. Akstursleið-
beiningar á netinu
hafa orðið sífellt
vinsælli hjá netnot-
endum og hafa fyrirtækin tvö
auk annarra vefsetra fundið fyr-
ir auknum áhuga og kynna sífellt
fleiri nýjungar til sögunnar.
Nú er orðið einfaldara en áður
að skrifa inn götuheiti frá brott-
fararstað og götuheiti áfanga-
staðarins og teikna vefsetrin upp
auðveldustu og stystu leiðina
milli staðanna tveggja. - hb
Yahoo! Er í harðri samkeppni við
Google um kort á netinu.
Í fangelsi fyrir sjóræningjastarfsemi
Í frétt Herald Tribune í kemur
fram að íbúi í Hong Kong hefur
verið dæmdur í þriggja mánaða
fangelsi fyrir sjóræningjastarf-
semi á netinu. Maðurinn setti upp
þrjár Hollywood-kvikmyndir á
tölvu sína og tilkynnti á netsíðum
að myndirnar mætti nálgast frítt
hjá honum. Maðurinn notaði til
þess hið vinsæla skráarskipta-
forrit Bit Torrent.
Dómstólar annarra landa,
meðal annars í Svíþjóð, hafa gef-
ið út sektir fyrir svipaðar sakir.
Þetta er hins vegar fyrsti fang-
elsisdómurinn yfir manneskju
fyrir að nota skráaskiptaforrit
fyrir sjóræningjastarfsemi.
Dómurinn þykir harður en með
þessu vilja stjórnvöld í Hong
Kong sýna fram á að þar sé höf-
undarréttur tekinn alvarlega.
Hong Kong hefur haft það orð á
sér að vera miðstöð þjófnaðar
sem þessa á netinu. - hhs
DONNIE YEN ER ÞEKKT KVIKMYNDASTJARNA Í HONG KONG Íbúi í Hong Kong hef-
ur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að deila skrám á netinu.
08-09 Markadur-lesin-laga mynd 8.11.2005 15:48 Page 3