Fréttablaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 45
Landlæknisembættið leggur til að
allar konur á barneignaraldri taki
0,4 milligrömm af fólinsýru dag-
lega, því rannsóknir sýna að ef kon-
ur taka vítamínið daglega fjórum
vikum fyrir þungun og á fyrstu 12
vikum meðgöngu dregur það úr lík-
um á miðtaugakerfisgöllum fóst-
ursins, svo sem klofnum hrygg, um
meira en helming. Á Íslandi greinast
fimm til sex tilvik af slíkum göllum
á ári hverju.
Fólasín er B-vítamín, og er einnig
nefnt fólínsýra, fólat eða fólín, og
það dregur einnig úr líkum á hjarta-
sjúkdómum meðal fullorðinna.
Te, duft, hylki, seyði, baðjurtir,
arómatik-vatn, blómadropar,
smyrsli, olíur og kjarnaolíur eru
meðal þess sem fáanlegt er í apó-
tekinu. Auk þess er Kolbrún með
gott úrval af baðsöltum, andlits- og
húðmöskum ásamt leir fyrir lík-
amann og jurtamaska.
Kolbrún hefur unnið sem grasa-
læknir á Íslandi í meira en 10 ár, og
selur bæði jurtir sem hreinsa lík-
amann, sem og þær sem hafa fyrir-
byggjandi áhrif, og bendir hún á
nokkrar jurtir sem virka vel gegn
kvefi og flensum.
Um leið og kvefið er að byrja er
gott að hafa Mími við höndina en
hann hreinsar mjög vel allt kvef
sem kemur í höfuðið. Blandan inni-
heldur hreinsandi engifer, cayenne
pipar sem hreinsar og losar slím í
höfði, piparmintu sem kælir og
lækkar hitann, bakteríudrepandi
hvítlauk, vallhumal gegn hitanum
og sólhatt sem styrkir ónæmiskerf-
ið.
Læðingur er slímlosandi jurta-
blanda og mýkjandi fyrir hálsinn
ásamt því sem hún er orkugefandi
og styrkir líkamann og ónæmis-
kerfið. Í blöndunni er lakkrísrót,
inula, síberíuginseng og hvannarót.
Eins er Kveðrungur góður fyrir
börnin vegna þess að hann inni-
heldur engan sykur eða vínanda,
auk þess sem hann er góður á
bragðið. Í Kveðrungi eru eucalypt-
us, timían, hyssop, piparminta og
engifer og er hann bakteríudrep-
andi, slímlosandi og mýkjandi fyrir
hálsinn. Hægt er að nota Kveðrung
sem fyrirbyggjandi meðferð gegn
sýkingum, en þá er gott að nota að-
eins minna af honum. Jafnframt er
gott að eiga ólífulaufs-extract til að
nota eins og penisillín gegn sýking-
um, en þó ber að varast að ofnota
það – rétt eins og sýklalyfið.
Að lokum er gott að sleppa mjólk-
urvörum og sykri á meðan kvefið
stendur yfir. Þá er gott að hvíla sig
og muna að kvef og bakteríur
ásækja þá sem eru ekki með nógu
sterkar varnir. Auk þess er mikil-
vægt að fólk hreyfi sig vel á vet-
urna, og sé úti svo það fái súrefni,
en hreyfingin örvar ónæmiskerfið
svo fólk verður betur í stakk búið til
að taka við áreiti.
Kolbrún býður einnig upp á nám-
skeið um allt varðandi jurtirm, svo
sem smyrslagerð, kremgerð, heima-
apótek og fleira.
4 ■■■■ { líf & heilsa } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Gott að hafa Mími
við höndina gegn kvefi
Jurtaapótek Kolbrúnar Björnsdóttur grasalæknis á Laugavegi 2 í Reykjavík er fullt af
vörum fyrir líkamann, þótt ekki bragðist þær allar vel. Apótekið er fyrsta jurtaapótekið
á Íslandi og býður Kolbrún bæði upp á ókeypis ráðgjöf og selur lífrænar vörur og
jurtablöndur í fjölbreytilegu formi sem ætlað er að styrkja líkama og sál.
Kolbrún Björnsdóttir selur ýmiss konar
jurtir sem góðar eru við kvefi og flensu.
Kalk er líkamanum nauðsynlegt og
fær hann það aðeins með fæðunni.
Langvarandi kalkskortur getur verið
alvarlegur en hægt er að skorta kalk
án þess að taka nokkuð eftir því.
Eitt stærsta hlutverk kalks í líkam-
anum er að viðhalda tönnum og
beinum, en vefir líkamans, tauga-
kerfi og vöðvar þarfnast þess líka.
Kalkskortur leiðir til beinþynningar,
auk þess sem hann getur haft áhrif
á blóðþrýsting, ristilkrabbamein og
fyrirtíðarspennu.
Það sem færri vita er að D-vítamín
er nauðsynlegt svo kalkið nýtist lík-
amanum, og því er mælt með að
D-vítamín sé tekið sem fæðubótar-
efni þar sem oft er lítið af því í
hefðbundinni fæðu. Sólarljós og
lýsi færa líkamanum D-vítamín, en
mjólkurvörur, spergilkál og spínat
eru rík af kalki.
Viðheldur fallegu brosi
Fólinsýra nauðsynleg konum á
barneignaraldri
kalk }
04-05 lífogheilsa-les 8.11.2005 15:53 Page 2