Fréttablaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 47
6 ■■■■ { líf & heilsa } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
„Segja má að lyfjafræðin hafi haf-
ist á Íslandi árið 1760 þegar fyrsta
apótekið var opnað hér á landi á
sama tíma og fyrsti landlæknirinn
var settur. Aðsetur hans var á Sel-
tjarnarnesi þar sem Læknaminja-
safnið er, en þegar safnið var opn-
að fengu læknarnir íbúðarhúsið, og
lyfjafræðingarnir fjósið,“ segir Þor-
steinn Loftsson, deildarforseti lyfja-
fræðideildar Háskóla Íslands.
„Lyfjafræðingarnir hafa gert margt
gott við fjósið, þetta er skemmtilegt
safn.“
Eins og nafnið gefur til kynna fjall-
ar lyfjafræðin um lyf frá öllum
hugsanlegum sjónarhornum, allt
frá þróun nýrra lyfjaefna og lyfja-
forma til framleiðslu, notkunar og
verkunar lyfjanna. Lyfjafræðin við
Háskóla Íslands er fjölbreytt fimm
ára nám, með bæði bóklegri og
verklegri kennslu í hinum ýmsu
greinum líf- og raunvísinda, auk
félagslegra greina. Einnig er hægt
að taka meistara- og doktorsgráðu í
lyfjafræðinni frá skólanum, og eru
þá margir nemar með bakgrunn í
matvælafræði, líffræði eða öðrum
raungreinum.
Deildin útskrifar um 12 lyfjafræð-
inga að meðaltali á ári, fyrir utan
þá sem ljúka meistara- og doktors-
námi. Aðsóknin hefur aukist mjög
seinustu ár og eru nú 40 nemar á
fyrsta ári og 30 á öðru ári í deild-
inni, en Þorsteinn segir mikinn
skort vera á lyfjafræðingum í þjóð-
félaginu.
„Það er uppgangur í lyfjaiðnaðin-
um á Íslandi, og það er þó nokkuð
mikill skortur á lyfjafræðingum,
það eru allir rifnir út undir eins og
menn eru jafnvel farnir að vinna
með námi eftir þriðja árið, svo þá
sækja fleiri í námið,“ segir Þor-
steinn.
Störfin sem útskrifuðum lyfjafræð-
ingum bjóðast eru margs konar, og
hafa breyst mikið á síðustu áratug-
um, en fram að þeim tíma voru
lyfjaverslanirnar nánast eini starfs-
vettvangur lyfjafræðinga.
Lyfjafræðingar hafa nú möguleika á mun
fleiru en að vinna sem apótekarar.
Mjög góð aðsókn í lyfjafræði
Það er liðin tíð að störf lyfjafræðinga séu bundin við apótekið, og undanfarin ár hef-
ur markaðurinn fyrir þessa menntun farið mjög vaxandi á Íslandi.
Þorsteinn Loftsson, deildarforseti lyfjafræði-
deildar Háskóla Íslands segir lyfjafræðinám-
ið afar fjölbreytt og skemmtilegt.
„Við bindum geysilegar vonir við
þetta lyf,“ segir Dagný Lárusdóttir,
formaður Astma- og ofnæmisfé-
lagsins. „Ef þetta fer eins og rann-
sóknir benda til, mun þetta lyf
verða afar mikilvæg viðbót við þau
lyf sem eru á markaðnum í dag.“
Astmi er algengasti langvinni sjúk-
dómurinn sem hrjáir börn og ungt
fólk á Vesturlöndum, en tíðni hans
er á milli fimm og tuttugu prósent í
löndum Norður-Ameríku og Evr-
ópu, og þjást tveir af hverjum
þremur astmasjúklingum einnig af
ofnæmi.
Sjúkdómurinn lýsir sér í bólgum í
litlum berkjugreinum og mikilli
viðkvæmni og ertanleika vöðva
sem þrengja öndunarveg, og eru
einkenni sjúklinga því öndunarerf-
iðleikar, sem eru afar óþægilegir og
geta verið hættulegir. Lyfin sem
notuð eru í dag eru ósértæk, og
virka illa á marga astmasjúklinga,
auk þess sem sum þeirra, svo sem
barksterar, geta valdið aukaverkun-
um einkum hjá börnum.
Nýja lyfið hefur áhrif á afurð mein-
gens, sem vísindamenn Íslenskrar
erfðagreiningar hafa sýnt fram á að
gegnir mikilvægu hlutverki í
myndun sjúkdómsins.
Íslensk erfðagreining rannsakar nú nýtt lyf við astma, og binda astmasjúklingar miklar
vonir við það.
Rannsóknir á nýju astmalyfi
Íslensk erfðagreining er nú að prófa nýtt tilraunalyf við astma í samstarfi við erlent
lyfjafyrirtæki sem upphaflega þróaði lyfið við öðrum sjúkdómi.
lyf }
Enginn vafi leikur á því að uppfinning penisillínsins er ein sú markverð-
asta sem gerð hefur verið innan lyfjafræðinnar. Þó penisillín ráði alls ekki
við allar bakteríusýkingar, er það enn mest notaða sýklalyfið í heiminum,
og án þess væru minni háttar aðgerðir enn hættusamar.
Árið 1928 var skoski læknirinn Alexander Fleming að þvo óhreina glasa-
bakka í rannsóknarstofu við St. Mary spítalann í London, þegar hann tók
eftir auðu svæði hringinn í kringum penicillium chrysogenum, myglu-
svepp sem hafði sest í bakteríustíu. Áhugi Flemings vaknaði, og hann
komst að þeirri niðurstöðu að sveppurinn dræpi bakteríurnar.
Áður, eða árið 1896, hafði ungur franskur læknisfræðinemi, Ernest
Duchesne, rannsakað áhrif myglusveppsins á bakteríur, en rannsóknir
hans náðu þó ekki lengra, og Fleming gafst líka upp á rannsóknum sín-
um því hann taldi að penisillín gæti ekki verið nógu lengi í líkamanum til
að vinna bug á bakteríum.
Þó olli uppgötvun hans umbyltingu í læknisfræði árið 1939 þegar
Howard Walter Florey og lið rannsóknarmanna við Oxford háskóla not-
uðu sveppinn til að drepa sýkla í manneskjum. Sérfræðingar notuðu pen-
isillín til þess að bjarga þúsundum mannslífa í seinni heimstyrjöldinni, og
kom lyfið á almennan markað árið 1944. Fleming fékk Nóbelsverðlaunin
í læknisfræði árið 1945, ásamt Howard Walter Florey og Ernst Boris
Chain, sem uppgötvuðu aðferð til að fjöldaframleiða lyfið.
Saga penisillínsins
Penisillín er fjöldaframleitt í gríðarstórum kerum.
Ekki ofgera E-vítamíni
Fjölmargir Íslendingar taka E-vítamín daglega, og vonast þar með til að
draga úr tíðni ýmissa alvarlegra sjúkdóma, svo sem
krabbameina, kransæðasjúkdóma og heila-
blóðfalla. Auk þess trúa sumir að notkun E-
vítamíns geti einnig aukið frjósemi og kyn-
getu og jafnvel hamlað ótímabærri öldrun.
Nýlegar rannsóknir sýna hins vegar að of
mikil neysla E-vítamíns ýtir undir ýmsa
sjúkdóma. Leggur Landlæknisembættið til
að sem flestir reyni að fá E-vítamín úr
fæðunni, en það finnst í sólblómaolíu,
maísolíu, lárperum, möndlum og hnetum,
ásamt fleiri afurðum.
Actavis í uppgangi
Mikill vöxtur hefur verið í alþjóðlega lyfjafyrirtækinu Actavis allt frá árinu 1999,
og nú vinna þar alls yfir 10.000 manns, þar af 500 á íslandi.
Actavis, sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu
hágæðasamheitalyfja, er með höfuðstöðvar í 32
löndum í fimm heimsálfum og er í hópi fimm stærstu
samheitalyfjafyrirtækja heimsins.
„Actavis á Íslandi framleiðir og selur lyf og lyfjahug-
vit bæði innanlands sem utan,“ segir Halldór Krist-
mannsson, talsmaður Actavis.
Fyrirtækið, sem áður hét Pharmaco, var stofnað á Ís-
landi árið 1956. Mikil áhersla er lögð á gæði, og
uppfylla lyfjaverksmiðjur og tækjabúnaður Actavis
kröfur um góða framleiðsluhætti í lyfjagerð. Til
dæmis hefur verksmiðjan í Hafnarfirði, sem hönnuð
er með Bandaríkjamarkað í huga, hlotið verðlaun
fyrir framúrskarandi hönnun.
Eitt af markmiðum Actavis er að vera með þeim
fyrstu á markaðinn með samheitalyf þegar einkaleyfi
renna út. Þar sem einkaleyfaumhverfið er hagstætt á
Íslandi getur Actavis á Íslandi unnið að þróun lyfja,
þó þau séu vernduð af einkaleyfum í flestum Evr-
ópulöndum, og verið tilbúið til að markaðssetja lyf-
in um leið og einkaleyfin falla úr gildi erlendis.
Mikill uppgangur hefur verið í íslenska lyfjafyrirtækinu Actavis
seinustu misseri.
06-07 lífogheilsa-lesin 8.11.2005 15:56 Page 2