Fréttablaðið - 09.11.2005, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 9. nóvember 2005 21
Coke og
Pringles
meðan bir
gðir
endast
FYLGIRFYLGIR
1.499
Þarft ekki að skila
Þarft ekki að borga sekt
Tvíburarnir Jón Oddur og Jón
Bjarni eru ósköp venjulegir
frískir strákhnokkar.
Stundum eiga þeir það til að
vera ansi uppátektarsamir og
jafnvel óþekkir en með
barnslegu sakleysi sínu
bræða þeir auðveldlega
hvers manns hjarta.
Frábært
tilboð
Ranghermt var í pistlinum Sjón-
armið í Fréttablaðinu á laugardag-
inn að enginn borgarfulltrúi hefði
mætt á fund Höfuðborgarsamtak-
anna um Hringbrautarmálið vorið
2004. Rétt er að borgarfulltrúarn-
ir Dagur B. Eggertsson og Kjartan
Magnússon mættu á fundinn.
LEIÐRÉTTING
Ég vakti á dögunum máls á stöðu
hestamannafélagsins Gusts í Kópa-
vogi. Menn sem kalla sig fjárfesta
hafa keypt með látum hesthús á
svæði félagsins í Glaðheimum.
Nú eiga þeir töluvert af hesthús-
um, jafnvel þó hestamannafélagið
berjist á móti. Gustur hefur keypt
heilu einingarnar með forkaups-
rétti, enda samningur félagsins við
Kópavog til ársins 2038. Á fundi
með frambjóðendum Framsóknar-
flokksins í fyrrakvöld kom fram að
þeir eru allflestir, ef ekki bara allir,
sammála því að verja beri hesta-
mannafélagið og samning þess við
bæinn. Það er fínt.
Það er raunar ansi hreint óvænt
staða þegar menn taka sig til og
fleyta miklu fjármagni í að kaupa
upp á yfirverði fasteignir á heilum
svæðum svo á endanum megi brjó-
ta þær niður og byggja aftur á upp-
sprengdu verði. Í þessu tilfelli þarf
líka að mölva niður öflugt íþrótta
og æskulýðsstarf og tómstundir
fólks. Svo er eftir að beygja bæjar-
yfirvöld og breyta skipulaginu. Og
breyta því svo aftur úr atvinnuhús-
næði í íbúðabyggð af því þá kostar
fermetrinn helmingi meira.
Félagar í Gusti eru logandi
hræddir við að þetta takist hjá
peningamönnunum. Ætli tíundi
hluti hesthúsbása í hverfinu sé
ekki falur á hverju ári, vegna eðli-
legra breytinga á högum fólks.
Hesthúsbásinn kostaði nálægt
hálfri milljón þegar þessi vitleysa
byrjaði, en er nú líklega í kringum
milljón. Með því að kaupa húsin og
nota þau ekki þagga peningamenn-
irnir niður í hverfinu, fækka fólk-
inu og lama félagsstarfið. Þá min-
nka umsvif í kringum glæsilega
reiðhöll Gusts, sem byggð var að
ótrúlega stórum hluta í sjálfboða-
vinnu.
Ég hef lagt til að á málinu verði
tekið með táknrænni endurnýj-
un og lengingu samningsins við
Gust. Þá hafa menn frið til að ræða
framtíðarskipulag. Hestamennska
er raunar ákaflega vel sett í Glað-
heimum. Það er engin þörf á því
að sportið sé á heiðum uppi. Vilji
menn einhverju breyta í lengri
framtíð skyldi það vera á réttum
forsendum. Það er nógur tími,
enda veitir bæjaryfirvöldum ekki
af. Þó framtíðarskipulag sé til um
hestasvæðið á Heimsenda, á Kópa-
vogsbær minnst af landinu sem fer
undir það. Ætli peningamennirnir
bendi ekki á endanum á vini sína
sem eiga landið þar?
Höfundur býður sig fram í 1.
sæti á lista Framsóknarflokksins
í Kópavogi.
Að mölva
hús og fólk
Í Fréttablaðinu sunnudaginn 6. nóv-
ember gefur að líta ummæli ríkis-
skattstjóra, Indriða G. Þorlákssonar,
um að verslunin blekki viðskiptavini
með því að auglýsa að virðisauka-
skattur sé felldur niður af vörum.
Hann viðurkennir samt að oft sé til-
greint með minna letri að virðisauka-
skattur sé eftir sem áður greiddur af
vörunum, en samt sé um blekkingu
að ræð. Manni fallast næstum hend-
ur við lestur svona yfirlýsinga. Það er
með ólíkindum hvernig sumir menn
geta gengið um með augnblöðkur
sem varna þeim sjónar á öðru en
því sem er beint fyrir framan þá. Ef
ríkisskattstjóri hugleiddi ofurlítið
hvernig þessi markaðsfærsla hefur
orðið til þá myndi hann fljótlega átta
sig á því að umrædd háttsemi versl-
unarinnar er andsvar við siðlausri
og óskammfeilinni háttsemi ríkisins
í komuversluninni í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar (FLE). Oftast ef ekki
alltaf sé þess getið, reyndar með
smáu letri, að verslanir greiði virðis-
aukaskatt af þessum tilboðsvörum.
Þegar komufarþegar í FLE
koma á það svæði sem farangur
þeirra kemur inn blasir við þeim
gólfauglýsing sem staðhæfir að
verð í komuversluninni sé allt að 50
prósent lægra en í Reykjavík. Og
hvernig skyldi nú þessi ríkisversl-
un fara að því að selja vörur svona
ódýrt miðað við það að húsnæði, laun
og aðrir rekstrarliðir eru vart lægri
en í almennri verslun í Reykjavík?
Jú, það gerist með því að fella niður
tolla, vörugjöld og virðisaukaskatt á
þeim vörum sem þarna eru seldar
í samkeppni við innlenda verslun.
Hvað heitir þetta í orðasafni ríkis-
skattstjóra? Getur það verið að rík-
isskattstjóri þekki ekki til þessa fyr-
irkomulags í FLE? Ég ætla honum
það ekki og er næstum viss um að
hann hefur gengið yfir umrædda
auglýsingu eins og svo margir aðrir.
Getur verið að öll sú umræða sem
hefur farið fram um siðleysi, og
jafnvel lögleysi (á það verður látið
reyna) sem felst í þessum verslun-
arrekstri ríkisins hafi farið fram hjá
eina æðsta embættismanni ríkisins í
skattamálum? Hefur hann ekki orðið
var við gagnrýni SVÞ á þetta fyrir-
komulag og háttalag starfsmanna
umræddrar ríkisverslunar, sem eru
í lítt dulbúinni samkeppni um snyrti-
vörur, raftæki o.fl. við verslun á
höfuðborgarsvæðinu?
Ég vil benda ríkisskattstjóra á að
horfa á bjálkann í eigin auga áður en
hann gagnrýnir flísina í augum ann-
arra. Hann verður að axla þá ábyr-
gð að vera í þessu máli sá sem hlífa
ætti fremur en að höggva. Hann er
fulltrúi stjórnvalda sem reka komu-
verslunina og má ekki mæla með
klofinni tungu með því annars vegar
að hvetja fólk til að greiða ekki skat-
ta af innkaupum sínum og hins vegar
að ásaka þá sem á er hallað um að
bregðast við með því að draga fram
það sem veldur verðmun og nota
það í markaðsfærslu sinni. Með því
að taka fram, þótt með smáu letri
sé, að virðisaukaskattur sé greiddur
af viðkomandi tilboðum, er enginn
blekktur og reyndar rétt að vekja
athygli á því að það stjórnvald sem
fylgist með auglýsingum fyrirtækja
á markaði, áður Samkeppnisstofnun
og nú Neytendastofa, hefur ekki séð
ástæðu til að gera athugasemdir við
tilvitnaðar auglýsingar verslunar-
fyrirtækja í Reykjavík. Maður líttu
þér nær!
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samtaka verslunar og þjónustu.
Maður, líttu þér nær!
UMRÆÐA
SAMÚEL ÖRN ERLINGSSON
SKRIFAR UM ÚTIVIST Í GLAÐHEIMUM
UMRÆÐA
UMMÆLI RÍKIS-
SKATTSTJÓRA
SIGURÐUR JÓNSSON