Fréttablaðið - 09.11.2005, Side 30
Eggert Þór Aðalsteinssonar
skrifar
„Tilboðið var engan veginn
ásættanlegt. Ég ætlaði mér held-
ur aldrei að selja fyrirtækið,“
segir Jón Örn Árnason, eigandi
og framkvæmdastjóri Júmbó
samlokugerðarinnar sem fékk
kauptilboð frá eigendum aðal-
keppinautarins Sóma á dögunum.
Hann telur að Sómi sé hættur
við, enda hafi hann einnig hafnað
öðru tilboði frá þeim sem kom
stuttu síðar. Jón Örn segir að
mikill áhugi hafi skapast á
Júmbó eftir að Markaðurinn
greindi frá því að Íslandsbanki
ætlaði að leggja fram kauptilboð
fyrir hönd Sóma. Þrjú önnur til-
boð fylgdu í kjölfarið. „Tilboðið
frá Sóma var fáranlegt. Ég
spurði Íslandsbanka hvort þeir
héldu að ég væri að reka videó-
leigu?“
Jón Örn, sem hefur átt Júmbó
í þrjú ár og starfað við fyrirtækið
frá 1985, segir að verðmæti
Júmbó liggi í gríðarlega öflugu
dreifingarkerfi. „Við förum á 280
staði á hverjum degi og seljum
tíu til tólf þúsund samlokur á
dag.“
Samkvæmt lista Frjálsrar
verslunar yfir 300 stærstu fyrir-
tækin veltu Júmbó og Sómi sam-
anlagt yfir 700 milljónum króna á
síðasta ári á markaði sem hefur
vaxið jafnt og þétt á síðustu
árum. - eþa
Vika Frá áramótum
Actavis Group 1% 12%
Bakkavör Group 1% 85%
Flaga Group -15% -43%
FL Group 1% 42%
Grandi 0% 16%
Íslandsbanki -1% 36%
Jarðboranir 1% 10%
Kaupþing Bank -1% 33%
Kögun 1% 18%
Landsbankinn -1% 88%
Marel -2% 28%
SÍF -1% -12%
Straumur 3% 47%
Össur 5% 26%
*Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
Júmbó samlokur
hafna tilboði Sóma
Eigandinn fengið mörg tilboð en ætlar ekki að selja
410 4000 | www.landsbanki.is
B2B | Banki til bókhalds
Betri þjónusta og upplýsingagjöf til viðskiptavina og lánardrottna
Fyrirtækjabanki
Straumur-Burðarás hafnar því
að fyrirtækið hafi selt bréf í
Skandia. Samkvæmt nýlegum
hluthafalista frá Skandia kemur
fram að hlutur Straums hafi
minnkað úr 3,2 prósentum í 1,6
prósent. Hlutur Straums er enn
4,5 prósent en hluti er í vörslu
annarra aðila.
Ragnar Þórisson, fjárfesting-
arstjóri hjá Straumi, er hissa á
vinnubrögðum stjórnar Skandia.
Í viðtali við Dagens Industri seg-
ir hann að stjórnin hefði átt að
hringja í Straum áður en hún
hefði sent út nýjan hlutahaf-
alista. „Hún leikur undarlegan
leik,“ segir Ragnar og vísar þar
með til þess að stjórn Skandia
hefur hafnað yfirtökutilboði Old
Mutual. Straumur ætlar hins
vegar að ganga að því. - eþa
Hagnaður íslenskra lífeyrissjóða
af eign sinni í KB banka var um
17,6 milljarðar króna á árinu
2004 og þar af voru arðgreiðslur
um 210 milljónir. Þetta kom fram
í erindi Sigurðar Einarssonar,
starfandi stjórnarformanns KB
banka, sem hann hélt í Þjóðmenn-
ingarhúsinu fyrir helgi af því til-
efni að bankinn hefur nú tekið
yfir starfsemi breska bankans
Singer & Friedlander.
„Á fyrstu níu mánuðum þessa
árs er hagnaður þeirra orðinn 17
milljarðar króna. Þessi upphæð,
samtals um 34,6 milljarðar
króna, er meira en nóg til að
greiða allan ellilífeyri, örorkulíf-
eyri og makalífeyri á einu ári á
Íslandi,“ sagði Sigurður.
Lífeyrissjóðir áttu um 15,6
prósent af hlutafé KB banka,
miðað við stöðu 30. september, að
andvirði rúmlega 61 milljarður
króna.
Sigurður sagði að ef heldur
sem horfir og allt gengur vel,
geta fjárfestingar lífeyrissjóð-
anna í fjármálageiranum mætt
auknum lífslíkum almennings
og aukið greiðslur til lífeyris-
þega. - hb
Hagnast um 35 milljarða á KB banka
Stjórnandi Intrum
í fasteignarekstur
Domus fasteignasölur hefja starfsemi.
Sameining
hjá Atorku
Austurbakki, Icepharma og Is-
med, munu sameinast undir
nafni Icepharma hf. um næstu
áramót. Félögin eru öll í eigu At-
orku Group og starfa á sviði heil-
brigðismála. Áætluð velta nýja
félagsins er um fjórir milljarðar
króna.
Atorka Group hefur á undan-
förnum árum fjárfest í fyrir-
tækjum á sviði heilbrigðismála.
Samhliða sameiningunni hefur
stjórn Atorku ákveðið að selja
vín- og íþróttadeild Austurbakka
hf. - hb
SIGURÐUR EINARSSON Fagnar kaupum
á Singer & Friedlander í Þjóðmenningarhús-
inu.
VINSÆL SAMLOKA Eigandi Júmbó hafnaði tveimur tilboðum frá Sóma, aðalkeppinautin-
um. Hann ætlar ekki að selja fyrirtækið.
Gengi krónunnar er að gera út
af við útgerðina í landinu. Þetta
segir Ólafur Eggertsson, út-
gerðarmaður í Sjóla ehf., í við-
tali við Útveginn, fréttabréf
Landssambands íslenskra út-
vegsmanna. Þótt verð í erlendri
mynt hafi hækkað hafi þróun
gengisins leitt til þess að af-
koman er mun lakari en áður og
munar þar verulega. Ólafur
segir furðulegt að auðlinda-
gjald sé ekki lagt af af á meðan
aðstæður eru með þessum
hætti. Í núverandi ástandi geti
atvinnugreinin ekki hagnast.
Útgerðin hafi ekki nokkra
burði til að greiða þetta gjald
og einungis sé verið að skatt-
leggja tapið. - hhs
Auðlindagjald furðulegt
Stofnfé ekki hlutabréf
Stefán Svavarsson gagnrýnir viðskipti með stofnfé.
Stefáni Svavarssyni, stjórnar-
formanni Fjármálaeftirlitsins,
sýnist það beinlínis stríða gegn
tilgangi laga um fjármálafyrir-
tæki að stofnfjáreigendur í
sparisjóðum geti fengið meira
fyrir stofnfjárhlut sinn en verð-
bætt stofnfé. Það liggi þó fyrir
að í viðskiptum með stofnfjár-
hluti hafi meira verið greitt.
Þetta kom fram í ræðu Stef-
áns á ársfundi Fjármálaeftirlits-
ins. Hann áréttaði að hann teldi
ekki að viðskiptin með stofnfé
hefðu verið ólögleg og hann einn
væri ábyrgur fyrir þessum orð-
um.
Eftir að hafa lýst ákvæðum
laga þar sem fjallað er um spari-
sjóði sagði Stefán að draga
mætti þá ályktun að stofnfé
samsvari í raun svokölluðum
forréttindahlutabréfum. Þau
væru að efni til frekar skuld en
eigið fé. Eigendur slíkra bréfa
nytu ekki ávinnings í félagi við
slit umfram nafnverð hlutarins.
Þeir hirtu vexti eða arð af nafn-
verði á sama hátt og stofnfjár-
eigendur. Sú vaxtagreiðsla væri
ekki háð duttlungum aðalfundar
til greiðslu arðs. -bg
Sigurður Arnar Jónsson, fram-
kvæmdastjóri innheimtufyrir-
tækisins Intrum Justitia og
Bjarni Þór Óskarsson lögmaður
hafa ætlanir um að hefja starf-
semi á fasteignasölum undir
nafninu Domus. Þeir hafa í því
skyni undanfarin misseri komið
að máli við nokkrar fasteigna-
sölur á höfuðborgarsvæðinu í
því skyni að kaupa þær og reka
undir nafninu Domus. Fast-
eignalög heimila ekki fjármála-
fyrirtækjum að eiga meirihluta í
fasteignasölum.
Sigurður neitar því að Intr-
um komi nokkuð að rekstri á
fasteignasölunni sem reka á
undir nafninu Frans ehf. en
stærstu eigendur Intrum eru
viðskiptabankar og fjármála-
fyrirtæki. „Ég hef verið spurð-
ur að þessu áður en það er ekki
Intrum sem á þennan rekstur
heldur ég og Bjarni Þór Óskars-
son lögmaður. Ef þú skoðar
fasteignalögin þá geturðu séð
að fjármálafyrirtæki mega ekki
eiga meirihluta í fasteignasöl-
um,“ segir Bjarni. - hb
STEFÁN SVAVARSSON Stefán segir stofn-
fé frekar skuld en eigið fé.
Straumur hissa á SkandiaNetverslun
tvöfaldast
Í fréttabréfi Samtaka verslunar
og þjónustu segir að samkvæmt
tölum frá greiðslukortafyrirtæk-
inu Visa hafi netverslun á Norð-
urlöndum aukist um 96 prósent
frá 1. júlí 2004 til 1. júlí 2005.
Hliðstæðar tölur væru ekki til
fyrir Ísland eitt og sér en ljóst
væri að mikil aukning hefði orðið
í netverslun meðal Íslendinga á
síðustu mánuðum samkvæmt
Visa Ísland. Netverslun á Norð-
urlöndum væri lítil í alþjóðlegum
samanburði og nemi aðeins um
einu prósenti af heildarveltu net-
verslunar í heiminum. – bg
02_03_Markadur-lesið 8.11.2005 15:37 Page 2