Fréttablaðið - 09.11.2005, Side 34
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN6
Ú T L Ö N D
Asíski þróunarbankinn telur að fuglaflensa í mönnum og áfallið í
kjölfar hennar myndi kosta asískan efnahag allt að 283 milljarða
bandaríkjadala. Þetta kemur fram á
vefsíðu BBC. Verg landsframleiðsla
svæðisins myndi minnka um
6,5 prósent.
Í skýrslu Alþjóðabankans
um efnahag Austur-Asíu kom
fram að fuglaflensan gæti hamlað
efnahagsvexti á árinu 2006 vegna
hugsanlegra aðgerða annarra landa
og ferðatakmarkana til svæðisins.
Ef til heimsfaraldurs kæmi myndi
tveggja prósenta minnkun í vergri
landsframleiðslu á meðan á honum
stæði kosta allt að 200 milljónir banda-
ríkjadala á einum ársfjórðungi. - hhs
TTT auglýsingastofa/Ljósm
.S
S
J
Mark
skrifstofustólar
Ótrúlegt verð!
Mark er ný og glæsileg lína skrifstofustóla frá
Á. Guðmundssyni ehf. fyrir vinnustaði og heimili.
Stólarnir eru hannaðir af Pétri B. Lútherssyni.
Hæðarstilling
á baki
Pumpa til að
stilla stuðning
við mjóhrygg
Hæðarstillanlegir
armar
Hallastilling
á baki
Sleði til að færa setu
fram og aftur
Mjúk hjól
Hæðarstilling
á setu og baki
Hægt er að stilla stífleika
setu og baks eftir þyngd
notanda
Veltustilling
á setu og baki
TILBO
Ð
Bæjarlind 8-10 • Sími 510 7300 • www.ag.isHeildarlausnir í skrifstofuhúsgögnum
Mark 30 fullt verð kr. 57.855
Tilboðsverð:Kr.40.900
Mark 10 fullt verð kr. 19.900
Tilboðsverð:Kr.13.930
Mark 20 fullt verð kr. 38.010
Tilboðsverð:Kr.26.976
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir
skrifar
Evrópskir vínframleiðendur eru
margir hverjir eru hræddir við
breytingarnar sem fylgja auk-
inni alþjóðavæðingu. Um þetta er
fjallað á vefsíðu Der Spiegel. Að
mati þeirra framleiðenda sem
vilja halda í hefðirnar eiga ný-
stárlegar aðferðir ekki við í
framleiðslu vína. Til dæmis er sú
aðferð að nota viðarflísar og
bæta við sykri í framleiðsluna
umdeild. Jarðvegurinn, loftslagið
og veðrið eigi að vera þeir þættir
sem ákvarða bragð vínsins.
Hverju sem því líður standa
framleiðendur nú frammi fyrir
því að þurfa að aðlagast alþjóða-
væðingunni. Spurningar sem
vakna snúa að því vernig eigi að
bregðast við henni, hvernig eigi
að aðlaga vínið nýjum smekki
heimsins og hvort framleiðslan
eigi nafnbótina „vín“ skilið eftir
breytingarnar.
Evrópusambandið og Banda-
ríkin hafa þegar samþykkt sín á
milli að Bandaríkjamenn megi
nota eikarflísar í framleiðslu
sína. Nú er í burðarliðnum við-
skiptasamningur sem kynntur
verður fyrir ráðherranefnd Evr-
ópusambandsins í lok nóvember.
Verði samningurinn samþykktur
fá evrópskir framleiðendur leyfi
til að nota sömu aðferðir og
Bandaríkjamenn. Þá má búast
við því að Alþjóðaviðskiptastofn-
unin krefjist þess að slíkar til-
slakanir muni ganga jafnt yfir
alla. Ljóst er því að evrópskir
vínframleiðendur verða að aðlag-
ast og með því eru breytingar
nauðsynlegar
Sérfræðingar telja að árið
2005 verði fyrsta árið sem Evr-
ópa flytur inn meira vín en það
flytur út. - hhs
EVRÓPK VÍN NJÓTA EKKI SÖMU VIRÐINGAR OG ÁÐUR Áætlað er að í ár verði í fyrsta
sinn meiri innflutningur en útflutningur á vínum í Evrópu.
Evrópsk vín
há lífsbaráttuna
Alþjóðavæðingin heldur innreið sína á
vínmarkaðinn.
Fyrirtæki Land Gengi Gjald- (Gengi Breyting
miðill gjaldmiðils)
BTC Búlgaría 10,36 Lev 36,93 2,01%
Carnegie Svíþjóð 101,50 SEK 7,45 5,87%
Cherryföretag Svíþjóð 26,60 SEK 7,45 -7,35%
deCode Bandaríkin 8,69 USD 60,57 0,88%
EasyJet Bretland 3,00 Pund 105,86 5,31%
Finnair Finnland 10,87 EUR 71,59 3,77%
French Connection Bretland 2,43 Pund 105,86 -1,13%
Intrum Justitia Svíþjóð 68,00 SEK 7,45 -3,20%
Keops Danmörk 18,70 DKR 9,59 -3,46%
Low & Bonar Bretland 1,11 Pund 105,86 1,23%
NWF Bretland 6,33 Pund 105,86 10,05%
Sampo Finnland 13,25 EUR 72,11 5,58%
Saunalahti Finnland 2,42 EUR 71,59 -1,53%
Scribona Svíþjóð 15,50 SEK 7,45 -2,06%
Skandia Svíþjóð 41,30 SEK 7,45 3,85%
Miðað við gengi bréfa og gjaldmiðla á mánudag
Ú T R Á S A R V Í S I T A L A 1 0 9 , 5 9 3 , 8 3 %
Nítján ára breskur flugmaður,
Martin Halstead, hefur stofnað
sitt eigið flugfélag. Flugfélagið
Alpha One Airlines mun fara sitt
fyrsta flug á mánudagsmorgun
frá Southampton-flugvelli til The
Isle of Man. Halstead hefur fjár-
fest í 18 sæta flugvél af gerðinni
BAE Jetstream 31 og mun leigja
aðra til að standa undir tveimur
áætlunarflugum á dag milli flug-
vallanna tveggja. Áætlað er að
flug milli Isle of Man og Black-
pool hefjist einnig innan skamms.
Martin Halstead, sem af gár-
ungunum er kallaður Litli Bran-
son, segir í viðtali við BBC að
hann sé sannfærður um að áætl-
anir sínar muni standast þrátt fyr-
ir efasemdarraddir í samfélaginu.
Hann ætli að nálgast innanlands-
flug á nýjan og frumlegan hátt og
að hann hafi eldri og reyndari
menn til að leita til þurfi hann
hjálp. Áætlað er að flugfélagið
flytji 75 þúsund farþega á fyrsta
ári starfsemi sinnar. - hhs
Unglingur stofnar flugfélag
Alpha One Airlines hefur áætlunarflug innanlands í Bretlandi á mánudag.
ALPHA ONE AIRLINES Í LOFTIÐ 19 ára
breskur flugmaður sem er nefndur Litli
Branson ætlar að umbylta bresku innan-
landsflugi.
Flensan yrði dýrkeypt
Þýski íþróttavöruframleiðandinn Puma hefur hækkað eigin afkomu-
spá fyrir árið 2005. Einn helsti samkeppnisaðili Puma, Adidas, gerði
slíkt hið sama. Þetta var gert í framhaldi af góðri sölu í Bandaríkj-
unum á þriðja ársfjórðungi sem var umfram vætningar markaðar-
ins. Hagnaður fyrirtækisins á
öðrum ársfjórðungi hækkaði
um 11,5 prósent milli ára og
var 91,9 milljónir evra eða
rúmlega 6,5 milljarðar
íslenskra króna.
Puma lítur hýrum
augum til heimsmeist-
aramótsins í knatt-
spyrnu sem haldið er í
Þýskalandi árið 2006 og undir-
býr sig nú að kappi fyrir mikla sölu í að-
dragandanum að því. - hhs
Puma hækkar afkomuspá
06_07_Markadur-lesin 8.11.2005 15:38 Page 2