Fréttablaðið - 09.11.2005, Síða 35
BlackBerry® frá Vodafone
BlackBerry® frá Vodafone er fremsta þráðlausa samskiptatækið í dag og gerir
notendum mögulegt að vera í stöðugum samskiptum við viðskiptavini og
samstarfsmenn. Auk þess að vera GSM sími veitir BlackBerry frá Vodafone
notendum aðgang að tölvupósti, dagbók, tengiliðalista og Vefnum, allt í rauntíma.
Með BlackBerry frá Vodafone er hægt að gera flest það sem þú gerir á
skrifstofunni, óháð stað og stund.
BlackBerry frá Vodafone er hluti af MobileOffice, heildstæðu þjónustuframboði Og Vodafone fyrir
viðskiptalífið sem gerir fólki mögulegt að miðla upplýsingum óháð stað og stund. Hraði, öryggi og einfaldleiki eru
einkunnarorð okkar í þeim lausnum sem við bjóðum fyrirtækjum.
» BlackBerry frá Vodaone er alltaf
tengdur og tölvupóstur berst og er
sendur samstundis
» Stór skjár sem hentar vel við að skoða
viðhengi
» Aldrei þarf að uppfæra upplýsingar á
milli farsímans og tölvunnar
» BlackBerry frá Vodafone uppfyllir
ítrustu öryggisstaðla
» BlackBerry frá Vodafone er
einstaklega vel hannaður fyrir
kerfisumsjón
Mobile Office
FRÁ OG VODAFONE
Alvöru
ferðaskrifstofa
KOMIÐ
Vodafone
Mobile
Connect
NÓVEMBER
Global
Hotspots
DESEMBER
Vodafone
World
ÍSL
EN
SK
A A
UG
LÝ
SIN
GA
ST
OF
AN
/SI
A.I
S O
GV
29
86
7 1
0/2
00
5
Nánari upplýsingar veitir Fyrirtækjaþjónusta Og Vodafone, Síðumúla 28, í síma 599 9500. Einnig er hægt að senda tölvupóst á 5999500@ogvodafone.is
Einn helsti arkitekt sameinaðrar Evrópu, Jean
Omer Marie Gabriel Monnet, fæddist þennan dag
árið 1888. Hann var raunsær alþjóðasinni sem
aldrei var settur í embætti en vann bak við tjöldin
með amerískum og evrópskum ríkisstjórnum.
Monnet er einna frægastur fyrir setninguna „Það
er engin framtíð fyrir fólkið í Evrópu án samein-
ingar.“ Hann var kominn af koníakskaupmönnum í
Cognac í Frakklandi. Hann varð fljótt mjög alþjóð-
legur í hugsun og ferðaðist mikið fyrir hönd fjöl-
skyldufyrirtækisins sem ungur maður.
Af heilsufarsástæðum gat Monnet ekki sinnt
herskyldu sjálfur en hann trúði því að eina leiðin
að sigri bandamanna væri með sameiningu krafta
Frakklands og Englands. Hann lagði fram fyrir
ríkisstjórnina áætlun um samnýtingu herafla þjóð-
anna og hlaust góður árangur af skipulagningu
hans. Að stríðinu loknu átti Monnet sinn þátt í efna-
hagslegri uppbyggingu Mið- og Evrópuríkja sem
alþjóðlegur fjárfestir. Á árunum 1934-1936 var
hann búsettur í Kína þar sem hann aðstoðaði við
endurskipulagningu kínverska járnbrautakerfis-
ins.
Árið 1934 hafði Monnet yfirumsjón með
samnýtingu hergagnaframleiðslu Frakklands og
Englands. Sama ár var hann sendur til Bandaríkj-
anna til að semja um kaup á hergögnum. Monnet
gerðist þar ráðgjafi Roosevelts forseta og sann-
færði hann um að hefja umfangsmikla vopnafram-
leiðslu til hjálpar bandamönnum. Fljótlega urðu
Bandaríkin formlega þátttakendur í stríðinu.
Breski hagfræðingurinn John Maynard Keynes
sagði Monnet væntanlega hafa orðið til þess að
stytta stríðið.
Eftir heimsstyrjöldina hafði Monnet yfirumsjón
með nútímavæðingu og uppbyggingu franska efna-
hagsins. Árið 1949 fengu Monnet og samstarfs-
menn hans hugmyndina að bandalagi Evrópu þar
sem ágreiningur milli Frakklands og Þýskalands
vegna yfirráða Ruhr-héraðsins var að komast á
hættulegt stig. Vísirinn að Evrópusambandi varð
til með stofnun Kola- og stálbandalagsins árið
1951. Monnet hafði svo rík áhrif á þróun sam-
bandsins allt til dauðadags árið 1979.
Árið 1929 hitti Monnet, sem þá var 42 ára,
ítalska málarann Silviu Giannini. Hún hafði nýlega
gifst einum af starfsmönnum Monnets, Francisco
Giannini. Þau felldu hugi saman og ekki leið á
löngu uns hún varð ófrísk að barni Monnets. Skiln-
aður var á þeim tíma ólöglegur á Ítalíu og í mörg-
um öðrum Evrópulöndum. Þau komust þó í kring-
um það og árið 1934 hittust þau í Moskvu þar sem
hún fékk sovéskan ríkisborgararétt, skildi við
eiginmanninn og giftist Monnet.
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005
Ú T L Ö N D
ARKITEKT EVRÓPUSAMBANDSINS, JEAN MONNET Hann var
mikill alþjóðasinni og af mörgum talinn arkitekt Evrópusambands-
ins.
S Ö G U H O R N I Ð
Jean Monnet 117 ára
AUGL†SINGASÍMI
550 5000Sögurnar, tölurnar, fólki›.
06_07_Markadur-lesin 8.11.2005 15:46 Page 3