Fréttablaðið - 09.11.2005, Qupperneq 50
Kaupáss hefur verið á árinu en segir að hún
sé í samræmi við áætlanir félagsins.
SELT UNDIR KOSTNAÐARVERÐI
Brynjar Steinarsson, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Samkaupa, segir að álagning lágvöru-
verðsverslana geti verið með þeim hætti að
vörur séu seldar með lágri álagningu tímun-
um saman en slíkt hljóti að koma niður á
rekstrinum.
Varðandi verðþróun á matvörumarkaði er
ljóst að matvöruverð getur ekki annað en
hækkað eins og raunin er orðin. Að hans mati
eru það neytendur sem borga fyrir verðstríð-
ið á endanum. Brynjar segir að markaðsstaða
fyrirtækisins sé væntanlega verri en áður og
eigi það við um flesta minni aðila á markaðn-
um. Fyrirtækið er að skila hagnaði þótt hann
sé minni en á síðasta ári vegna minnkandi
framlegðar úr rekstrinum.
Túlka má uppgjör Haga með ýmsum hætti:
„Það hlýtur að segja til sín hjá stóru fyrirtæki
ef það selur vörur undir kostnaðarverði með
kerfisbundum hætti. Menn hljóta að spyrja
sig þeirrar spurningar hvort og þá hvers
vegna aðilar geri slíkt, einkum ef þeir eru í
markaðsráðandi stöðu. Sala á vörum undir
kostnaðarverði getur haft áhrif á samkeppn-
ina því með slíkum aðgerðum væri fyrirtæki
að ná til sín auknum markaði með fjárfram-
lagi. Slíkt væri í raun greiðsla fyrir aukna
markaðshlutdeild og væri það mikið áhyggju-
efni fyrir neytendur í landinum til lengri
tíma litið.“
Finnur Árnason hafnar því alfarið að Hag-
ar nýti styrk sinn til að losa sig við keppinaut-
ana og segir að Bónus hafi frá stofnun félags-
ins fyrir sextán árum alltaf keppst við að
bjóða upp á lægsta verðið. Aðgerðir Bónuss
undanfarna mánuði verði að skoða í því ljósi.
Hann segir að stefna Haga á matvörumarkaði
ráðist af eftirspurn markaðarins. „Við höfum
breytt okkar verslunum eftir því hvað okkar
viðskiptavinir hafa kosið með fótunum.“
ÍSLANDSBANKI SPÁIR VERÐHÆKKUN
Greining Íslandsbanka dregur þá ályktun af
uppgjöri Haga að dagvöruverð lækki ekki
meira og spáir töluverðum verðhækkunum á
næstunni. Mikil eftirspurn eftir starfsfólki í
verslun muni líklega hafa áhrif á vöruverð.
Jón Bjarki Bentsson, hjá Greiningu bank-
ans, segir að uppgjör Haga bendi til þess að
það séu töluverðar líkur á að fyrirtæki á þess-
um markaði velti eitthvað kostnaði vegna
launahækkana út í verðlag. Hagar eru það
stórir á markaði að líklegt má telja að þeir
gefi einhvers konar mynd af stöðu markaðar-
ins. „Verð á innfluttum mat- og drykkjarvör-
um hefur þróast að stórum hluta í takt við
lækkun gengisvísitölunnar þar til í síðasta
mánuði. Maður veltir því fyrir sér hvort
lengra verði seilst.“
Neytendasamtökin álíta að sterk staða
krónunnar hafi ekki skilað sér í lækkun vöru-
verðs í mörgum vöruflokkum að fullu. Aftur
á móti hafi vöruverð hækkað fljótt þegar
krónan veiktist á árinu 2001. Svipuð umræða
kom einnig upp á Alþingi nýlega.
Brynjar segir að það vera athyglisvert að
einstaka Alþingismenn hafi uppi stór orð um
að styrking krónunnar hafi ekki skilað sér í
lækkun vöruverðs og beinlínis gefið í skyn að
kaupmenn sitji á stórfelldum gengishagnaði.
Hann segir þetta á misskilningi byggt en fyr-
irtækið hafi ekki orðið vart við miklar verð-
lækkanir frá birgjum og framleiðendum í
takt við styrkingu krónunnar á undanförnum
mánuðum frekar en margir kaupmenn á hans
róli, hún endi annars staðar. Undantekning á
þessu eru beinn innflutningur Samkaupa en
þar fari allur gengishagnaður til lækkunar á
smásöluverði. „Einstaka birgjar hafa boðað
lækkanir en þeir eru því miður allt of fáir.
Álagning íslenskra matvöruverslana er með
því lægsta sem þekkist í kringum okkur.“
Kaupás hefur í vaxandi mæli einbeitt sér
að eigin innflutningi og dregið sig að hluta til
úr Búri sem er sameiginlegt innflutningsfyr-
irtæki Kaupáss og Samkaupa. Sigurður Arnar
segir að fyrirtækið hafi náð verulegum ár-
angri í því og náð að lækka innkaupsverð með
þeim hætti.
HEILDSÖLUM HALDIÐ VIÐ EFNIÐ
„Ég get ekki talað fyrir aðra birgja en ég veit
að okkar viðskiptavinir halda okkur nokkuð
vel við efnið í gengismálunum,“ segir Októ
Einarsson, framkvæmdastjóri markaðs- og
sölusviðs hjá Danól sem er einn stærsti inn-
flytjandi matvæla til landsins. Októ segir að
Danól hafi lækkað allan sinn verðlista þríveg-
is á þessu ári vegna gengisstyrkingar krón-
unnar, 10. janúar, 14. mars og síðast 20. októ-
ber. Lækkanir hafa numið að jafnaði 3-4 pró-
sentum í hvert skipti, ekki má heldur gleyma
því að stór hluti okkar innkaupsverðs er
flutningur og vörugjöld sem gengislækkanir
hafa ekki áhrif á. „Þar fyrir utan
höfum við breytt verði í fjöl-
mörgum vöruflokkum á árinu,
nær undantekningarlaust til
lækkunar.“
Októ býst ekki við öðru en að
stóru matvörukeðjurnar haldi
áfram að þrýsta á heildsölurnar
um að veita lægra verð. „Við höf-
um skilgreint erlendu vöruhúsin
sem okkar helstu samkeppnisað-
ila en ekki bara aðra heildsala
hérlendis. Það er svo auðvelt að
kaupa okkur vörur annars staðar
frá. Ef við getum til dæmis ekki
skaffað lægsta verðið á af Nes-
kaffi þá kaupa menn bara ná-
kvæmlega sömu vöru erlendis
frá. Þannig að ef menn halda það
að við séum að taka einhvern
mismun þá eru hæg heimatökin
að taka það sjálfir.“
Októ getur ekki séð
að afkoman í heildsala-
stéttinni sé það glæsi-
leg að hún geti borgað
upp eitthvað verðstríð á
matvörumarkaði. Af-
koman hjá birgjum er í
engu samræmi miðað
við það sem hún var.
Smásöluverslunin hef-
ur kallað á hagræðingu
í innkaupum og þjón-
ustu og hefur það leitt
til mikillar breytinga
hjá birgjum. Á fáeinum
árum hefur fjöldi inn-
flutningsaðila í mat-
vöru farið úr því að
vera rúmlega fimmtíu
aðilar sem eitthvað
hvað að niður í um fjóra
til fimm. Velta hefur
aukist mikið hjá hverj-
um þessara aðila en
mun meira er haft fyrir
hverri krónu.
OPINBER GJÖLD VEGA
ÞUNGT
Brynjar, sem er jafn-
framt stjórnarformað-
ur hjá Rannsóknasetri
verslunarinnar, bendir
á að aðrir þættir hafa
mikil áhrif á verðmynd-
un í landinu og bendir á
að skattlagning vöru og
þjónustu sé einna mest
hér á landi, samanborið
við okkar helstu ná-
grannalönd. Þetta eigi
einkum við um matvör-
ur og þá sérstaklega
landbúnaðarvörur sem
framleiddar eru hér á
landi en þetta sé ýmist í
formi tolla eða vöru-
gjalda. Hann vísar til
skýrslu sem setrið gaf
út og unnin var af Birni
Snæ Atlasyni og dr. Jóni
Þór Sturlusyni en meg-
inniðurstaða höfunda er
sú að skynsamlegra sé
að lækka tolla og vöru-
gjöld af matvælum
fremur en að lækka
virðisaukaskatt.
Finnur tekur undir
með Brynjari að álagn-
ing í matvöruverslun á Íslandi er ekki hærri
en álagning matvöruverslana í nágrannalönd-
um okkar. Álagning er eini mælikvarðinn
sem er raunhæfur til að meta frammistöðu
verslunar. Tollar og vörugjald er í mörgum
tilfellum óheyrilegt og bendir Finnur á að
þegar gjöld voru lækkuð á grænmeti fyrir
nokkrum árum hafi það skilað sér til neyt-
enda.
„Stjórnvöld hafa það í hendi sér ef þau
vilja lækka verð á matvælum á Íslandi,“ seg-
ir Finnur.
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 13
Ú T T E K T
arkaði
12 mánaða breytingar gengisvísitölu og nokkurra undirflokka vísitölu neysluverðs
-0,2
-0,15
-0,1
-0,05
0
0,05
0,1
1.8.2003 1.10.2003 1.12.2003 1.2.2004 1.4.2004 1.6.2004 1.8.2004 1.10.2004 1.12.2004 1.2.2005 1.4.2005 1.6.2005 1.8.2005 1.10.2005
Matur og drykkur
Föt og skór
Innfluttar mat- og
drykkjarv.
Gengisvísitala
FINNUR ÁRNASON, FOR-
STJÓRI HAGA „Almennt
gengur þetta ekki mikið
lengur. Verslanir geta ekki
gefið vörur endalaust.“
BRYNJAR STEINARSSON,
AÐSTOÐARFRAM-
KVÆMDASTJÓRI SAM-
KAUPA „Það hlýtur að segja
til sín hjá stóru fyrirtæki ef
það selur vörur undir kostn-
aðarverði með kerfisbund-
um hætti. Menn hljóta að
spyrja sig þeirrar spurningar
hvort og þá hvers vegna að-
ilar geri slíkt, einkum ef þeir
eru í markaðsráðandi stöðu.“
SIGURÐUR ARNAR SIG-
URÐSSON, FORSTJÓRI
KAUPÁSS „Við vildum auka
samkeppni á matvörumark-
aði sem okkur fannst vera
mjög lítil þar sem einn aðili
var með yfirburða stöðu.“
OKTÓ EINARSSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI
HJÁ DANÓL „Ég get ekki
talað fyrir aðra birgja en ég
veit að okkar viðskiptavinir
halda okkur nokkuð vel við
efnið í gengismálunum.“
H
ei
m
ild
: I
sl
an
ds
ba
nk
i
12 MÁNAÐA BREYTINGAR GENGISVÍSITÖLU OG NOKKURRA UNDIRFLOKKA VÍSITÖLU NEYSLUVERÐS
12_13_Markadur-lesin 8.11.2005 15:55 Page 3