Fréttablaðið - 09.11.2005, Page 54

Fréttablaðið - 09.11.2005, Page 54
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 17 S K O Ð U N Hagstofan birtir vísitölu neyslu- verðs á morgun. Verðbólga hefur verið á uppleið og áhugi á nýjum verðbólgutölum vaxið í takt við aukin þenslumerki í hagkerfinu. Greiningardeild Landsbankans telur ekki þörf á að endurskoða sína spá fyrir nóvember, þrátt fyrir lækkanir á eldsneytisverði: „Við gerum ráð fyrir að vísi- tala neysluverðs hækki um 0,2% á milli mánaða í nóvember. Þrátt fyrir nokkrar lækkanir á elds- neytisverði bæði hér heima og erlendis í mánuðinum teljum við ekki þörf á að endurskoða spánna sem birt var í vegvísi þann 14. október síðastliðinn. Þeir liðir sem hækka vísitöluna mest eru, líkt og síðastliðna mán- uði matar- og drykkjarliðurinn og húsnæðisliðurinn.“ „Í spánni töldum við að hægja færi á hækkunum á matvæla- verði, en slæmt uppgjör Haga, eiganda einnar stærstu lágvöru- verðsverslunar landsins gæti hugsanlega aukið á hækkanir á matvælum, en í uppgjöri félags- ins kom fram að tap félagsins hafi að mestu mátt rekja til verð- stríðs á matvörumarkaðnum. Undanfarin misseri hafa hækk- anir á húsnæðisliðnum verið hraðar. Lækkun á vísitölu íbúða- verðs í ágúst (birt í september) blés lífi í umræðuna um að nú væri húsnæðisverð komið í há- mark og færi nú að hægja um- talsvert á hækkunum. Hækkun íbúðaverðsvísitölunnar í septem- ber sló nokkuð á þá umræðu. Í nóvember gerum við ráð fyrir hóflegri hækkun húsnæðisliðar- ins.“ „Lækkanir á eldsneytisverði hér á landi í október munu draga úr hækkun vísitölunnar í nóvem- ber. Frá upphafi til loka október- mánaðar lækkaði eldsneytisverð hér á landi um 4,5%.“ „Hagstofa Íslands mun birta niðurstöður mælinga sinna á vísitölu neysluverðs fyrir nóv- ember þann 10. nóvember næst- komandi kl. 9 og munum við þá fjalla ítarlega þróun vísitölunn- ar,“ segir greiningardeild Lands- bankans. Slæmt uppgjör eykur líkur á matvöruhækkun                                         !  "#      $        %                                                                    !       "#     $ % &' &()#     *   "#      $     &   '                 !   +,--        .----   *  !     "     /     012(3& 3&4  &5667&8/  &"5 #  9 #/ / 1    :(;%.--<&% /#= .--<>                  ? ,@A-B  !@! CC-D---@EEE                                        Enginn rík- ur á að rífast Ég tel mig sjálfan í hópi lítilla hluthafa, þótt ég sé náttúrlega ríkur. Ég gæti mín alltaf á því að fara aldrei yfir þau mörk í einstöku fyrirtæki að ég þurfi að tilkynna viðskipti. Ég legg nefnilega mikið upp úr því að vera ósýnilegur. Þess vegna stend ég aldrei upp á hluthafafundum og ríf kjaft. Ég hef eina aðferð til þess að lýsa óánægju minni með stjórnendur hlutafélaga sem ég á í og sú að- ferð hefur reynst mér vel. Hún er að selja bréfin ef ég hef ekki trú á því sem þeir eru að gera. Ég er þannig andstæðan við Vil- hjálm Bjarnason sem hefur reglulega reynt að tala niður gengi félaga sem hann á í sjálf- ur. Mér finnst það ekki skyn- samlegt út frá sjónarmiði ávöxt- unar. Nema hann sé náttúrlega að kaupa á sama tíma og hann talar gengið niður. Þá get ég al- veg skilið hvað hann er að pæla. Ég hef nú ekki mikla trú á því. Ég skil ekkert í þessum lát- um í honum yfir þessu öllu. Hann varð alveg vitlaus þegar Bjöggarnir tóku Kolkrabbann í nefið. Aðgerð sem var til því- líkra hagsbóta fyrir litlu hlut- hafana að annað eins hefur aldrei sést á Íslandi. Ég held að ég hafi grætt meira á því að elta Bjöggana í atlögunni að Kolkrabbanum en á nokkru öðru sem ég hef gert. Enda var ég vel skuldsettur í kaupunum í Burðarási á sínum tíma. Þessi saga um þrjá milljarð- ana er ansi lífseig og maður heyrt hana í mörgum útgáfum. Ég hef reynt að fá hana stað- festa, en ekki tekist. Sú útgáfa sem er núna er að í júní hafi þrír milljarðar farið á reikning Fons til að kaupa Sterling. Ég held reyndar að Pálmi hafi ekki þurft slíkt lán og ef hann hefði þurft þess, þá hefði verið nær- tækara að Jón Ásgeir vinur hans myndi redda honum þrem- ur milljörðum svona í bili. Myndi sjálfsagt gera það fyrir hálft orð. Mér finnst þessi út- gáfa ekki trúverðug. Auk þess sem fyrrum stjórnarmenn hættu ekki út af einhverri milli- færslu, heldur fannst þeim Hannes ekki hafa samráð við sig og ganga hratt um gleðinnar dyr. Lykilspurningin um FL Group er sú hvort menn hafa trú á því sem þeir eru að gera eða ekki. Ef þeir trúa á fyrir- tækið þá kaupa þeir, ef ekki þá selja þeir. Það hefur enginn orð- ið ríkur á því að rífast á fund- um, heldur með réttum fjárfest- ingarákvörðunum, enda er ég holdtekja þeirra. Spákaupmaðurinn á horninu S P Á K A U P M A Ð U R I N N Þ J Ó Ð A R B Ú S K A P U R I N N Í spánni töldum við að hægja færi á hækkunum á matvælaverði, en slæmt upp- gjör Haga, eiganda einnar stærstu lágvöruverðsverslunar landsins gæti hugs- anlega aukið á hækkanir á matvælum, en í uppgjöri félagsins kom fram að tap félagsins hafi að mestu mátt rekja til verðstríðs á matvörumarkaðnum. 16-17 Markadur-lesin 8.11.2005 15:22 Page 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.